Morgunblaðið - 06.10.2004, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Golli
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á BUGL, og Ást-
björn Egilsson, Evrópuforseti Kiwanis.
FORSVARSMENN Kiwanishreyfingarinnar kynntu í
gær Landssöfnun til styrktar geðsjúkum sem fram fer
dagana 7.–10. október nk. Ágóði af K-lyklinum svo-
nefnda rennur að þessu sinni til Barna- og unglinga-
geðdeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss við upp-
byggingu göngudeildar BUGL og til Geðhjálpar, sem
hyggst koma á fræðslu- og tengslaneti í því skyni að
rjúfa einangrun geðsjúkra um land allt.
K-lykillinn verður seldur við verslanir og í fyr-
irtækjum, auk þess sem gengið verður í hús en einnig
er hægt að styrkja söfnunina um eitt þúsund, þrjú og
fimm þúsund krónur með því að hringja í símanúmerin
905-5001, 905-5003 og 905-5005.
Fyrsti K-dagurinn til styrktar geðsjúkum var hald-
inn fyrir þrjátíu árum, í október 1974, og hafa alls tæp-
ar 200 milljónir króna safnast á þeim tíma framreikn-
aðar til núgildis. K-dagurinn er nú haldinn í 11. sinn en
söfnunin fer fram þriðja hvert ár.
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á BUGL, og Sig-
ursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, þökkuðu báðir
á fundi með fréttamönnum í gær, rausnarlegt framlag
Kiwanishreyfingarinnar sem hefði komið sér mjög vel
fyrir starfsemi þeirra í gegnum tíðina. Sigursteinn
bætti við að án aðstoðar Kiwanis-manna hefði Geðhjálp
tæpast getað komið sér upp aðstöðu í húsnæðinu á Tún-
götu 7.
Landssöfnun Kiwanis fyrir geðsjúka hefst á morgun
Safna fyrir BUGL og Geðhjálp
6 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17-19
DALALAND 9 - LAUS STRAX
Nýtt á skrá. Falleg 4ra herb. íbúð á 2.
hæð (miðhæð ) í fjölbýli. Þrjú svefn-
herb., rúmgóð stofa og stórar flísa-
lagðar suðursvalir. Nýbúið að leggja
parket á eldhús, hol og stofu. Bað-
herbergi nýlega flísalagt, baðkar og
t.f. þvottavél. Björt og vel skipulögð
íbúð á eftirsóttum stað í Fossvogin-
um. Stutt í skóla og alla almenna
þjónustu. Verð 14,5 millj.
22. daga ævintýraferð á ári Hanans:
til Kína með
KÍNAKLÚBBI UNNAR
13. maí – 3. júní 2005
á besta tíma ársins, hitastig um 28º
Farið verður til Beijing, Xian, Guilin, Shanghai, Suzhou
og Tongli. Siglt verður eftir Li ánni og Keisaraskurð-
inum og gengið á Kínamúrinn.
Heildarverð kr. 350 þús. Allt innifalið
þ.e. allar skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum, fullt
fæði, allir skattar og gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn
Unnar Guðjónsdóttur, sem er sérfræðingur í skipulagningu ferða
til Kína, en þetta verður 20. ferðin sem hún leiðir um Kína.
Kínaklúbbur Unnar, Njálsgötu 33, 101 Reykjavík
sími/símbréf 551 2596 og 868 2726
Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
Ljósmyndasýning Unnar: MYNDIR FRÁ KÍNA
1. – 31. okt. mánud. - laugard. 11.00 - 18.00
FENG SHUI húsinu, Laugarv. 42 B,
inngangur frá Frakkastíg.
Geymið auglýsinguna
SÉRA Hjálmar Jóns-
son dómkirkjuprest-
ur gekkst undir
hjartaaðgerð þann
20. september síð-
astliðinn. Hann
kveðst vera á góðum
batavegi og reiknar
með að snúa aftur til
starfa í byrjun að-
ventu.
„Þetta kom
skyndilega til,“
sagði séra Hjálmar í
samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Hjartaþræðing
leiddi í ljós alvar-
legar stíflur við
hjartað þannig að
ekkert annað en
skurðaðgerð myndi
duga. Ég gekkst
undir aðgerð 20. september síð-
astliðinn. Það var tengt fram hjá
stíflum í kransæðum og stofnæð-
um hjartans á fjórum stöðum. Að-
gerðin heppnaðist mjög vel.“
Séra Hjálmar segir að við nána
athugun hafi komið í ljós að líf
hans hafi raunar verið í hættu
undanfarin fimm ár vegna ástands
hjartans. Þó hafi hann talið sig
fylgjast vel með heilsunni.
„Ég hélt að mér ætti ekkert að
líða betur en mér leið. Hafði
stundum þreytuverki í öxlum og
hélt að það væri bara vöðvabólga.
En málið er að hjartakransæð-
arnar voru hættar að flytja blóð
og blóðstreymið til hjartans orðið
heft. Ég hef mikinn
áhuga fyrir því að
fólk láti athuga vel
heilsuna. Fari til
hjartalæknis og í
þolpróf og láti mæla
ástand hjartans. Ég
fór í hjartaómun og
síðan hjartaþræð-
ingu sem leiddi
þetta í ljós.“
Séra Hjálmar fór
í þriggja mánaða
veikindaorlof. Hann
segist vera að ná
sér undrafljótt og
heilsast mjög vel
eftir aðstæðum.
Fram undan er end-
urhæfing. Hann
segist horfa fram til
þess að verða miklu
betri til heilsu en
hann var fyrir aðgerðina.
„Hjartalæknirinn minn, Bjarni
Torfason, segir að þetta hafi
heppnast mjög vel. Við eigum
hörkulið þarna á hjartaskurð-
deildinni. Ég fór tiltölulega ung-
ur í þessa aðgerð og Bjarni telur
að ég verði fljótur að ná fullum
styrk aftur. Ég reikna með að
verða kominn aftur til starfa á
aðventunni,“ sagði séra Hjálmar.
Hann kvaðst vilja þakka allar þær
fjölmörgu góðu óskir sem hann
hefur fengið, beint og óbeint,
heimsóknir og fyrirbænir. Þær
hafi á allan hátt verið hjarta-
styrkjandi og reynst sér styrkur í
baráttunni.
„Hélt að mér ætti
ekkert að líða betur“
Séra Hjálmar Jónsson
dómkirkjuprestur.
Morgunblaðið/Sverrir
NORÐFIRÐINGAR fóru ekki var-
hluta af veðurofsanum í fyrrinótt.
Telja margir að brostið hafi á með
Nípukollsveðri, en svo kallast mjög
slæm veður í austnorðaustan- eða
norðnorðaustanáttum, þegar sterk-
ar bylgjur myndast niður með Níp-
unni með tilheyrandi ofsahviðum,
einkum í ytri hluta bæjarins.
Nípukollsveður eru tiltölulega
sjaldgæf og oft líða mörg ár, jafnvel
áratugir, á milli þeirra. Veðurfræð-
ingar skýra slík fyrirbrigði sem
dæmigert ofsaveður sem verður hlé-
megin fjalla, en þá myndast fjalla-
bylgjur er valda sterkum hviðum
sem oft eru tvisvar sinnum sterkari
en meðalvindurinn.
Töluverðar skemmdir urðu í veð-
urofsanum og segjast margir ekki
muna svo slæmt veður í langan tíma.
Tré rifnuðu upp með rótum, þakplöt-
ur fuku og garðhús bútaðist niður.
Gömul hús á Neseyrinni urðu illa úti
og m.a. skemmdist austurgaflinn á
gamla vélaverkstæðinu og þak fór af
íbúðarhúsi. Þá urðu skemmdir á þaki
tónskólans sem stendur ofarlega á
eyrinni og rafmagnslaust var um
tíma í öllum bænum.
Flutti sig í barnaherbergið
Sumir íbúar, einkum þeir er búa
yst í bænum, völdu að flytja sig úr
svefnherbergjum sem snéru í norður
og austur og á skjólbetri staði sunn-
an og vestan megin í húsum sínum.
„Þetta er með því versta sem ég hef
upplifað í langan tíma,“ sagði Smári
Geirsson sem flutti sig um set og
svaf í barnaherbergi sem snýr á móti
vestri um nóttina.
„Fyrsta hviðan í mikilli byljasúpu
sem byrjaði upp úr miðnætti mæld-
ist um 54 m/sek, en því miður týndi
ég skráningum á þeim hviðum sem á
eftir komu, því rafmagnið fór af og
allt fór úr minni mælisins,“ sagði
Halldór Þorsteinsson. „Hviðurnar
stóðu stutt, kannski 15–20 sekúndur
og aldrei meira en mínútu.“
Veðrið versnaði verulega þegar
nálgast tók miðnættið, en um fjög-
urleytið var farið að lægja aftur.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Ásmundur Þorsteinsson, Haukur I. Sigurbergsson og Guðmundur H. Þórsson byrjaðir að lagfæra eftir óveðrið.
Nípukollsveður gekk
yfir í Neskaupstað
Neskaupstað. Morgunblaðið.
ÁFORMAÐ er að byggja um 1.400 fermetra húsnæði á
lóð barna- og unglingageðdeildar Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss við Dalbraut, sem er álíka stórt og það hús-
næði sem deildin hefur yfir að ráða í dag, að sögn Ólafs Ó.
Guðmundssonar, yfirlæknis á BUGL. Áætlað er að kostn-
aður við bygginguna nemi a.m.k. 300 milljónum króna og
hefur BUGL yfir að ráða um 150 milljónum í dag.
Ólafur segir tilvísunum og bráðamálum hafa fjölgað ört
á deildinni á undanförnum árum og samanlagt séu þau
um 500 á ári. Í flestum tilfellum nægi göngudeildarþjón-
usta en innlögnum hafi einnig fjölgað verulega þannig að
ekki verði komist hjá „yfirinnlögnum“ yfir vetrartímann.
BUGL sé í raun eina deildin sinnar tegundar á landinu
sem sinni sérhæfðu hlutverki í þjónustu við börn og ung-
linga með geðraskanir. Um 90 manns voru á biðlista
BUGL í haust, samanborið við 50 við lok árs í fyrra.
„Núna stöndum við þannig að húsnæði okkar við Dal-
braut er löngu sprungið og báðar legudeildir okkar fyrir
börn og unglinga búa við mjög þröngan kost, sérstaklega
unglingadeildin, og göngudeildin getur ekki sinnt hlut-
verki sínu að fullu og alls ekki aukið þjónustuna miðað við
núverandi stöðu.“
„Húsnæðið
löngu sprungið“
SIGURSTEINN Másson, formaður Geðhjálpar, greindi
í gær frá fyrirhuguðu verkefni Geðhjálpar „Rjúfum ein-
angrun“ sem ráðist verður í fyrir tilstilli Landssöfnunar
Kiwanis-hreyfingarinnar.
„Það sem við ætlum að leggja áherslu á að þessi sinni
er að ná til fólks sem býr við einangrun vegna sinna geð-
raskana og geðsjúkdóma vítt og breitt um landið.“
Samkvæmt þarfagreiningu sem Rauði kross Íslands
hefði unnið væri þjónusta við geðsjúka mjög takmörkuð
víða á landsbyggðinni utan höfuðborgarsvæðisins og Ak-
ureyrar.
„Jafnvel á Suðurnesjum er mjög mikill skortur á þjón-
ustu. Það er enginn geðlæknir í Reykjanesbæ svo dæmi
sé tekið,“ sagði Sigursteinn.
Ráðgert er að verkefnið verði unnið í nánu samstarfi
Geðhjálpar og RKÍ við að koma á öflugu tenglaneti við
allar byggðir landsins þannig að fólk með geðsjúkdóma
hafi greiðari aðgang að stuðningi og þjónustu sem sam-
tökin veita. Áformar Geðhjálp að senda fulltrúa sinn á
vettvang um landið í því skyni. Framgangur verkefnisins
er þó undir því kominn hvernig söfnun Kiwanis-
hreyfingarinnar tekst til, að sögn Sigursteins.
„Mikill skortur
á þjónustu“