Morgunblaðið - 06.10.2004, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 7
FRÉTTIR
nx7010 fartölvan
hefur slegið í
gegn á Íslandi
- yfir 1000 fartölvur
seldar á einu ári
10 fáanlegar hjá
TRS á Selfoss
10 fáanlegar
hjá TÞA
á Akranesi
10 fáanlegar
hjá Snerpu Ísafirði
5 tölvur fáanlegar hjá
Tölvusmiðjunni á Austurlandi
5 tölvur fáanlegar hjá
Pennanum Akureyri
5 tölvur fáanlegar hjá Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar
Húsavík
10 tölvur fáanlegar hjá
Samhæfni í Reykjanesbæ
10 fáanlegar hjá
Pennanum Hallarmúla
10 fáanlegar hjá
Odda Höfðabakka
40.000 kr. lækkun á nx7010
aðeins 149.900 kr. næstu tvo daga!
Aðeins 75 tölvur eftir
hjá viðurkenndum
HP umboðs- og þjónustuaðilum
víða um land
Fyrstur kemur
fyrstur fær
HP Compaq nx7010
Örgjörvi: Intel Pentium-M Centrino1.5GHz,
Minni: 256MB DDR í 1 kubb (mest 2GB)
Netkort: Innbyggt 10/100
Innbyggt þráðlaust 802.11b netkort og Bluetooth
Skjár: 15.4" Wide Screen WXGA+ skjár
Harður diskur: 40GB
Drif: Sambyggt DVD/CD-RW 24x
Rafhlöðuending: allt að 5 klst.
Stýrikerfi: Microsoft Windows XP Pro
Ábyrgð: 2ja ára neytendaábyrgð
(árs fyrirtækjaábyrgð)
Vörunúmer: DU391A
TÞA á Akranesi, sími 430 7000
Penninn Akureyri, sími 461 5070
TRS á Selfoss, sími 480 3300 Samhæfni Reykjanesbæ, sími 421 7755
Tölvusmiðjan
Austurlandi, sími 470 2230 Snerpa Ísafirði, sími 520 4000
Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar, s. 464 1234
Oddi Höfðabakka, sími 515 5100 Penninn Hallarmúla, sími 540 2000
Innflutnings- og dreifingaraðili: Opin kerfi ehf. - Höfðabakki 9 - 110 Reykjavík - www.ok.is
MIKLAR breytingar eru fyrirhug-
aðar á miðbæ Kópavogs á næstu ár-
um og er vinna nú hafin við að
leggja torg þvert yfir Hafnarfjarð-
arveginn á milli menningarmið-
stöðvarinnar vestanmegin og Fann-
borgar austanmegin.
Torgið verður lagt á milli tveggja
húsa sem einnig brúa Gjána, sem
hingað til hefur klofið bæinn í
tvennt. „Þetta hefur það í för með
sér að bæjarhlutarnir sameinast [...]
og bærinn virkar meira sem ein
heild. Þetta var bein afleiðing þess
að þegar ákvörðun var tekin um að
gera Hafnarfjarðarveginn klofnaði
bærinn í raun í tvo hluta. Þarna er
verið að sameina bæinn á ný,“ segir
Benjamín Magnússon arkitekt, en
hann hefur hannað þennan nýja
miðbæ Kópavogs. Torgið sjálft verð-
ur hellulagt, og á því verður stórt
svið sem mun snúa að kirkjunni
vestan megin við gjána.
Búið er að reisa húsið sem stend-
ur norðan megin við fyrirhugað
torgstæði, og reiknar Benjamín með
því að fyrsta hæðin í húsinu verði
tekin í notkun fyrir áramót. Á fyrstu
hæðinni verða banki og lyfjabúð, en
annarri hæðinni er enn óráðstafað.
Hugmyndir hafa m.a. verið uppi um
að færa heilsugæsluna í þetta hús-
næði, en engin ákvörðun hefur verið
tekin um það á þessari stundu.
Byrjað er að hanna húsið sem
verður sunnan megin við Gjána, en
ekki er reiknað með að byrjað verði
að byggja það fyrr en búið er að
loka yfir Gjána. Húsin tvö sem af-
marka torgið verða um 2.000 fer-
metrar á tveimur hæðum. „Þetta er
dálítið flókin framkvæmd af því að
þetta er allt á hreyfingu,“ segir
Benjamín. Hann segir að hugsa
þurfi alla hönnun eins og ef um risa-
vaxna brú væri að ræða, annar end-
inn þurfi að vera laus til að gera ráð
fyrir áhrifum hitabreytinga og jarð-
skjálfta.
Ætla að ljúka
verkinu árið 2007
Benjamín segir að vinna sé nú
þegar farin í gang við að brúa gjána
að fullu, og er verktakinn byrjaður
að reisa stoðveggi sem halda eiga
gólfinu uppi. Hann reiknar með því
að verkið verði klárað á árinu 2007,
en auk þess að leggja torgið sjálft á
einnig eftir að byggja annað af
tveimur húsum sem munu afmarka
torgið á miðri gjánni.
Búið er að semja við verktakafyr-
irtækið Ris ehf. um að byggja yfir
gjána, auk þess að byggja húsið sem
verður sunnan megin við torgið.
Í Kópavogi verður torg lagt yfir Gjána milli menningarmiðstöðvar og Fannborgar
Teikningar/ONNO
Nýtt miðbæjartorg í Kópavogi eins og það kemur til með að líta út eftir þrjú ár, séð úr lofti úr norðurátt.
Torgið sameinar bæjarhluta
Húsið fyrir miðju mun rísa sunnan megin við fyrirhugað torgstæði. Á
miðju torginu verður stórt svið sem snýr að kirkjunni vestan við Gjána.
FORRÁÐAMENN Iceland Ex-
press útiloka ekki að viðræður
verði teknar upp milli fyrirtæk-
isins og flugfreyja og flugþjóna
vegna fyrirhugaðra uppsagna og
endurráðningar
hjá flugfélaginu
Astraeus sem
annast flug fyr-
ir Iceland Ex-
press.
Flugfreyjur
og flugþjónar
fyrirtækisins
hafa lýst því yf-
ir að uppsagn-
irnar hafi komið þeim í opna
skjöldu. Vona þau að Iceland Ex-
press semji áfram við Flugfreyju-
félag Íslands svo þau geti verið
áfram félagar þar.
Ólafur Hauksson, talsmaður
Iceland Express, kvaðst í samtali
við Morgunblaðið í gær vita til
þess að gagnkvæmur vilji væri til
viðræðna um málið hjá flug-
freyjum og flugþjónum annars
vegar og Iceland Express hins
vegar.
Segir Ólafur að erfitt sé fyrir
Iceland Express að ná fram hag-
ræðingu í rekstrinum þegar gera
þurfi kjarasamninga við t.d. flug-
freyju- og flugþjónahópinn í
gegnum Flugfreyjufélagið sem
tæki um of mið af stærsta at-
vinnurekandanum í faginu, Flug-
leiðum.
Sagði hann flugfreyjur og flug-
þjóna Iceland Express aðeins
vera um 7% félagsmanna Flug-
freyjufélagsins eða um 40 í allt.
Kvaðst hann vona og raunar ekki
útiloka að lausn fyndist á málinu
sem báðir aðilar gætu sætt sig
við.
Vilja ræða við
flugfreyjur og
flugþjóna