Morgunblaðið - 06.10.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 9
FRÉTTIR
AFAR góðar lokatölur úr lax-
veiðiánum berast hvaðanæva af
landinu og ljóst að í nokkrum ám
er um metveiði að ræða. Má þar
nefna Selá, Haffjarðará, Hrúta-
fjarðará og Breiðdalsá, auk nokk-
urra áa sem byggja alla sína veiði
á sleppingu gönguseiða, s.s. báðar
Rangárnar, Skógá og Laxá í Nesj-
um.
Áður hafði verið greint frá met-
veiði í Selá, þar veiddist nú 1.691
lax, en gamla metið er frá 2002 er
heildarveiðin var 1.653 laxar.
Hofsá, sem skilaði frábærri veiði,
1.864 löxum, var þó ekki með met
því árið 1992 veiddust þar 2.238
laxar, 1993 2.028 laxar og 2002
1.877 laxar.
Guðni Guðbergsson fiskifræð-
ingur hjá Veiðimálastofnun fletti
upp þessum tölum fyrir Morg-
unblaðið og gat þess í leiðinni að
sveiflur í veiði í Vopnafjarð-
aránum hefðu á stundum verið
gífurlegar, þannig hefðu veiðst
123 laxar í Selá árið 1984 og árin
1981 og 1982 veiddust 141 og 145
laxar í Hofsá. Um líkt leyti, eða
1984, gaf Breiðdalsá 4 laxa, að-
eins sex árum eftir metveiðina
sem féll í sumar, en þá veiddust
412 laxar, en 701 lax nú.
Met í Haffjarðará … og víðar
Guðni fletti upp Haffjarðará og
sagði þar um metveiði að ræða,
1.133 laxar, en fyrra metið var
1.131 lax árið 1986. Met í Hrúta-
fjarðará féll líka í sumar, gamla
metið var 536 laxar teknir árið
1986, en í sumar veiddust þar 610
laxar.
Þá er ljóst að met er fallið í
Eystri-Rangá, Ytri-Rangá, Skógá
og Laxá í Nesjum.
Ekki met …
810 laxar á tvær stangir í Leir-
vogsá er ekki metveiði, en 1.057
laxar veiddust í ánni 1988. Guðni
telur þó að taka beri með í reikn-
inginn að það sumar var mikið af
eldis- og hafbeitarlaxi í ám á suð-
vestanverðu landinu, m.a. veidd-
ust hátt í 4.000 laxar í Laxá í Kjós
og Bugðu það sumar.
Frábær tala, 523 laxar, í Flóku
er heldur ekki met, en hún gaf t.d.
613 laxa 1975. Sama með Fnjóská
með sína 446 laxa, áin gaf t.d. 554
laxa 1992. Þá hefur Víðidalsá
nokkrum sinnum gefið meira en
1.770 laxa, t.d. 1.948 laxa 1979,
1.851 1978 og 1.792 1977. Þá má
nefna að stórkostleg veiði í Mið-
fjarðará, 2.268 laxar, er ekki met
í ánni, sumarið 1977 veiddist þar
2.581 lax og sumarið eftir 2.337
laxar.
Skilyrði og samsetning
Guðni Guðbergsson sagði að
ýmsu að hyggja varðandi sum-
arið, t.d. var hann ekki sammála
þeim röddum sem segja Borg-
arfjarðarárnar hafa „klikkað“ og
taldi þær nærri sínu meðaltali þó
sumar þeirra væru neðan við það
á meðan aðrar voru mjög góðar.
Hann sagði líka að á gullaldarár-
unum, ’70–’80, hefði verið miklu
meira af stórlaxi í bland við smá-
lax, en athyglisvert að þessi mikla
veiði í sumar væri borin uppi af
smálaxi. „Veiðin á árunum 1970–
1980 byggðist upp á góðum skil-
yrðum sem héldust í hendur og
maður hélt satt að segja að kæmu
aldrei aftur, en maður spyr sig
eftir sumar eins og nú var að
líða,“ bætti Guðni við.
Metveiði í nokkrum ám í sumar
Morgunblaðið/Einar Falur
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
H
rin
gb
ro
t
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Gallajakkar, pils og buxur
Bankastræti 3 • sími 551 3635
Póstkröfusendum • www.stella.is
Snyrtistofa Lilju, Stillholti l4, Akranesi.
Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi l, Akureyri.
Ný kremlína
Útsölustaðir:
Ný kremlína
Moisturizing
Formula
• Dagkrem
• Næturkrem
Sn y r t i v ö r u r
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Nýjar micro-úlpur
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
frá
Flott föt og skór
(str. 39-44)
Bankastræti 8 • 101 R.
Snyrtivöruverslunin
hættir rekstri
eftir nokkra daga
Að því tilefni verða vörur í versluninni
seldar með góðum afslætti.
Sara vill þakka öllum sem átt hafa viðskipti
við verslunina á undaförnum árum.
Látum ekki
kuldabola bíta
börnin okkar
Laugavegi 51, sími 552 2201
Vind- og vatnsheldir
kuldagallar og fylgihlutir
Ný sending
Flauelsbuxur - Flauelsjakkar - Flauelspils
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
TVEIR starfsmenn Sorpu í Gufu-
nesi voru fluttir á slysadeild eftir að
eitraðar gufur bárust frá sorppressu
á laugardag. Líklegt er talið að guf-
urnar hafi stafað frá neyðarblysi
sem hent hafði verið í ruslið.
Ásmundur Jónsson, verkstjóri hjá
Sorpu, segir að mennirnir hafi orðið
slappir og kastað upp en þó ekki
misst meðvitund. Einkennin hafi í
raun ekki verið ósvipuð reykeitrun.
Þeir hafi verið tiltölulega fljótir að
braggast. Ásmundur bendir á að
hlutum eins og neyðarblysum eigi
menn ekki að kasta í ruslið heldur
skila hjá Efnamóttökunni ehf.
Eitraðar gufur
í Gufunesi
FLUGLEIÐIR hafa auglýst tilboð
þar sem meðlimum Vildarklúbbs
Flugleiða býðst að kaupa flugmiða
fyrir börn yngri en 12 ára á 1.000
vildarpunkta. Auglýsingin hefst á
þessum orðum: „Kæru mömmur og
pabbar, nú er ráð að bregða sér til
útlanda með alla fjölskylduna því í
fjarsölu Icelandair kostar flugmið-
inn aðeins 1.000 vildarpunkta fyrir
börn undir 12 ára.“Að sögn Guðjóns
Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa,
er auglýsingin viðbrögð við því
ástandi sem nú ríkir í samfélaginu
vegna kennaraverkfalls. „Fjölskyld-
ur eru í allt öðrum gír heldur en
venjulega á þessum árstíma og við
höfum fundið fyrir því í okkar sölu-
starfi að við fáum mun meira af fyr-
irspurnum um fjölskyldutengd
ferðalög en við eigum að venjast á
þessum árstíma. Þannig að það var
ákveðið að setja út svona auglýsingu
og þar að auki er verið að prófa
áfram Vildarklúbbinn og bjóða upp á
ýmsar á nýjungar.“
Bjóða sérkjör á
fjölskylduferðum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111