Morgunblaðið - 06.10.2004, Page 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KANADAMAÐURINN Douglas
Fishbone skreytti í gær Trafalg-
artorgið í London með listaverki úr
banönum. Hrúgan fékk að keppa
um athyglina við Þjóðlistasafnið (í
baksýn) og Nelsonstyttuna fram
eftir degi. En síðan var vegfar-
endum boðið að snæða verkið og
tóku margir boðinu.
Reuters
Listrænir bananar, gjörið svo vel!
PAUL Bremer, fyrrverandi land-
stjóri í Írak, sagði í ræðu í fyrradag að
Bandaríkjamenn hefðu ekki haft
nógu marga hermenn í Írak eftir að
Saddam Hussein var steypt af stóli og
að þeir hefðu „goldið þess dýru
verði“. Bremer sagði að þegar hann
fór til Íraks 6. maí í fyrra til að stjórna
uppbyggingarstarfinu í landinu hefði
ástandið þar verið mjög slæmt vegna
rána og gripdeilda.
„Við guldum þess dýru verði að
stöðva þetta ekki vegna þess að það
skapaði andrúmsloft lögleysu,“ sagði
Bremer á ráðstefnu samtaka trygg-
ingasala í V-Virginíu. „Við höfðum
aldrei nógu marga hermenn í Írak.“
Bremer bætti þó við að hann væri
„sannfærðari en nokkru sinni fyrr“
um að rétt hefði verið að koma Sadd-
am frá völdum. „Ég er bjartsýnn á
framtíð Íraks.“
Skömmu eftir ræðuna sendi Brem-
er The Washington Post yfirlýsingu
þar sem hann kvaðst styðja stefnu
George W. Bush forseta í málefnum
Íraks. „Ég tel að við séum núna með
nógu marga her-
menn í Írak,“
bætti hann við.
Rumsfeld
missaga
Donald Rums-
feld varnarmála-
ráðherra sagði í
ræðu í New York í
fyrradag að hann hefði ekki vitað um
skýr tengsl milli al-Qaeda og Sadd-
ams Husseins fyrir innrásina í Írak.
Þegar ráðherrann var spurður um
tengslin neitaði hann í fyrstu að svara
en sagði síðan: „Að því er ég best veit
hef ég ekki séð nein skýr og óræk
sönnunargögn sem tengja þessa tvo.“
Nokkrum klukkustundum eftir
ræðuna gaf Rumsfeld út yfirlýsingu
þar sem hann sagði að ummælin
hefðu „því miður verið misskilin“.
Hann kvaðst hafa sagt frá september
2002 að tengsl hefðu verið milli sam-
taka Osama bin Ladens og stjórnar
Saddams.
Rumsfeld sagði einnig á ráðstefn-
unni að upplýsingar leyniþjónustunn-
ar um meint gereyðingarvopn Íraka
hefðu verið rangar.
„Núna kemur á daginn að við höf-
um ekki fundið nein gereyðingar-
vopn,“ sagði Rumsfeld. „Ég er ekki í
aðstöðu til að svara því hvers vegna
upplýsingar leyniþjónustunnar voru
rangar, en heimurinn er betur settur
með Saddam Hussein í fangelsi.“
Þetta virtist stangast á við ummæli
Rumsfelds í sjónvarpsviðtali á sunnu-
dag þegar hann kvaðst telja að Sadd-
am Hussein hefði átt gereyðingar-
vopn fyrir stríðið og að sannleikurinn
kæmi í ljós eftir nokkra mánuði eða á
næstu árum.
John Kerry, forsetaefni demó-
krata, gerði sér í gær mat úr ummæl-
um Bremers og fagnaði því að hann
hefði viðurkennt mistökin. En einnig
réðst Kerry á Rumsfeld fyrir meint
dómgreindarleysi og ekki síst Dick
Cheney varaforseta. Hinn síðar-
nefndi hefði ávallt verið bak við tjöld-
in þegar rangar ákvarðanir hefðu ver-
ið teknar, að sögn Kerrys.
„Höfðum aldrei nógu
marga hermenn“
Washington, Tipton í Iowa. AP, AFP.
Bremer segir andrúmsloft lögleysu hafa tekið við í Írak
Paul Bremer
LANDSFUNDUR breskra íhalds-
manna hófst í gær með stefnuræðu
Michaels Howards, leiðtoga flokks-
ins. Fyrr um daginn hafði birst skoð-
anakönnun sem sýnir að Bretar eru
almennt þeirrar hyggju að Howard
eigi engan möguleika á að verða
næsti forsætisráðherra Bretlands.
Í stefnuræðu sinni á þinginu í
Bournemouth lagði Howard mesta
áherslu á að Íhaldsflokkurinn væri
verðugur þess að njóta trausts kjós-
enda. Hann viðurkenndi að síðasta
ríkisstjórn Íhaldsflokksins hefði
svikið kosningaloforð sín og það
mætti ekki gerast aftur.
Howard sagði að aukin glæpatíðni
væri sá samfélagsvandi sem hann
myndi taka fyrst á fengi hann til þess
umboð eftir næstu þingkosningar
sem almennt er talið að fram fari
næsta vor. „Hanskanum verður kast-
að,“ sagði hann en breskir íhalds-
menn hafa löngum haldið því fram að
aukinni glæpatíðni beri að svara með
aukinni hörku.
Vilja segja þjóðina frá
sjávarútvegsstefnu ESB
Þá lýst Howard yfir því að hann
myndi á fyrsta degi sínum sem for-
sætisráðherra ákveða dagsetningu
fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja
stjórnarskrá Evrópusambandsins.
Breskir íhaldsmenn eru andvígir
stjórnarskránni. Lýsti Howard yfir
því að íhaldsmenn vildu segja Breta
frá hinni sameiginlegu sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins og fé-
lagsmálalöggjöf þess.
Howard hét skattalækkunum en
lagði jafnframt áherslu á að Íhalds-
flokkurinn myndi aðeins gefa loforð
sem hann treysti sér til að uppfylla.
Minnti hann á að flokkurinn hefði
heitið skattalækkunum árið 1992 en
raunin hefði orðið sú að skattarnir
hækkuðu. „Fólk er dauðleitt á stjórn-
málum vegna þess að stjórnmála-
menn hafa brugðist því,“ sagði How-
ard.
Hann veittist einnig harkalega að
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og sagði hann rúinn trausti.
Einkum gagnrýndi hann Blair fyrir
að segja þjóðinni ekki satt um raun-
verulegar ástæður þess að innrás var
gerð í Írak. Þá aðgerð studdu íhalds-
menn á sínum tíma. Sagði hann al-
menning krefjast þess af stjórnmála-
mönnum að þeir sýndu „ábyrgð og
örlitla auðmýkt“ eða í stuttu máli al-
gjöra andhverfu þess sem einkennt
hefði framgöngu Tonys Blairs.
Kvaðst hann vona að Blair þyrfti ekki
á ný að fara fyrir Bretum í stríði því
fólk hlyti að spyrja sig hvort unnt
væri að treysta þeim manni eftir rás
atburða í Írak.
Fáir telja Howard
eiga möguleika
Howard verður aldrei forsætisráð-
herra í Bretlandi, að því er 78% að-
spurðra sögðu í skoðanakönnun sem
breska útvarpið, BBC, birti í gær.
Samkvæmt könnuninni telur miklu
hærra hlutfall kjósenda að Frjáls-
lyndi demókrataflokkurinn sé skil-
virkari í stjórnarandstöðu en Íhalds-
flokkurinn. Aðeins 22% telja flokk
Howards skilvirkasta stjórnarand-
stöðuaflið en 42% Frjálslynda.
Aðeins 12% aðspurðra telja að
Howard verði forsætisráðherra eftir
næstu þingkosningar. Meirihluti
stuðningsmanna Íhaldsflokksins –
eða 65% – telur meira að segja að
Howard eigi ekki eftir að gegna hlut-
verki forsætisráðherra. Könnunin
var framkvæmd 1.–3. þessa mánaðar.
Howard segir
íhaldsmenn
traustsins verða
Skoðanakönnun leiðir í ljós veika
stöðu Howards og Íhaldsflokksins
Reuters
Michael Howard, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, flytur stefnuræðu
sína í Bournemouth í gær.
Bournemouth. AFP.
NÓBELSVERÐLAUNIN í eðlisfræði
hljóta í ár Bandaríkjamennirnir
David J. Gross, H. David Politzer og
Frank Wilczeck. Fá þeir verðlaunin
fyrir uppgötvun og könnun á svo-
nefndum sterkum kröftum og
kvörkum.
Sænska Nóbelsakademían greindi
frá verðlaunahöfunum í gær. Þre-
menningarnir starfa við Háskólann í
Kaliforníu í Santa Barbara, Tækni-
stofnun Kaliforníu og Tæknistofnun
Massachusetts (MIT) og hafa gert
mikilvægar, kennilegar uppgötvanir
„varðandi sterka kraftinn, eða „lita-
kraftinn“ eins og hann er einnig
nefndur,“ segir akademían í tilkynn-
ingu sinni. „Sterki krafturinn er
ríkjandi í frumukjarna á milli kvark-
anna inni í róteind og nifteind.“
Uppgötvanir Gross, Politzers og
Wilczecks voru birtar opinberlega
1973 og voru undirstaða svo-
nefndrar skammtalitfræði.
Verðlaunaðir fyrir
rannsóknir á kvörkum
Stokkhólmi. AP.
Reuters
David Gross (t.v.), David Politzer (fyrir miðju) og Frank Wilczek.
TVÖ stutt gufu- og öskugos urðu í
eldfjallinu St. Helens í Washington-
ríki í Bandaríkjunum í fyrradag og
jarðvísindamenn sögðu líklegt að
þau væru undanfari eldgoss sem
gæti hafist hvenær sem væri.
Fyrra gufu- og öskugosið stóð í
40 mínútur en síðara gosið í um það
bil tíu mínútur.
Almannavarnayfirvöld hafa aukið
viðbúnaðinn vegna yfirvofandi eld-
goss í St. Helens og bannað alla
flugumferð í grennd við fjallið. Þá
hefur þjóðgarði við St. Helens verið
lokað og fólki bannað að fara inn
fyrir átta km radíus umhverfis fjall-
ið.
Þúsundir lítilla jarðskjálfta hafa
orðið í St. Helens frá 23. september.
Er þetta mesta skjálftavirkni í fjall-
inu frá sprengigosinu árið 1980 þeg-
ar 57 manns létu lífið.
Jarðvísindamenn sögðu að þótt
búist væri við eldgosi væru litlar
líkur á að það yrði jafnkröftugt og
sprengigosið árið 1980.
Stutt gufu-
og öskugos
í St. Helens
St. Helens. AFP, AP.
! "#$%& &
?
%2
%
%:%$&%2
,
%%&
!
% %2%
2
%2
1
%2%2;*
%%
%$
%
D% %&
!
%!
*
+%2
%
% 7
%!
% %&%
6%:%&
%&%!
%$
%
%(%2N(%=
4% %%
2%$;
7
%&%%2%4%:
9
$
%,
%
2%2 ,
2% 6%
%
*
: %:62
%! %
27*
%:%&
%2%6 %:
:%*
%2
6
%&% %%*
7
%(%
2%$;
%:
$$
2%'*
:
! !! #!
!/0#!!/10%
234+2256! ,#!27
!8
!! *
!!8 ! #!
9!
! !
! * !*
!/10%#!8
:
!;*! !&%%!
!!
!8
! ! $#1"%!
=
*
% 7
%&
%
$#""%!
:,
$#$%%!
<%*
@%2%! B
:62
8
! !
' " I " O + - L
% P!
&5
:
P"1)L=0 ,#!27 !<!7=65
8
! !!'!
;
! !!)
!!8>!/10%