Morgunblaðið - 06.10.2004, Qupperneq 17
OSRAM flúrperur á
alla vinnustaði
Jóhann Ólafsson & Co Sundaborg, Johan Rönning Sundaborg/Akureyri,
Rekstrarvörur, Osram Perubúðir: Árvirkinn Selfossi, Faxi Vestmannaeyjum,
R.Ó. Rafbúð Reykjanesbæ, Glitnir Borgarnesi, Rafbúðin Hafnarfirði,
G.H. Ljós Garðabæ, Þristur Ísafirði, Ljósgjafinn Akureyri, S.G. Egilsstöðum,
Lónið Höfn, Straumur Ísafirði, Víkurraf Húsavík, Vírnet Borgarnesi.
Rafverkstæði Árna Elíssonar Reyðarfirði.
Höfuðborgin | Akureyri | Landið | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Stofna Textílssetur | Unnið er að stofn-
un Textílsseturs Íslands á Blönduósi. Kem-
ur það fram í erindi sem Páll Pétursson,
fyrrverandi alþingismaður og ráðherra frá
Höllustöðum, sendir bæjarráði Blönduós-
bæjar fyrir hönd undirbúningshóps um
stofnun setursins. Óskað er eftir því að bæj-
arfélagið gerist aðili að sjálfseignarstofnun
með einnar milljónar kr. fjárframlagi. Bæj-
arráð Blönduósbæjar samþykkti erindið.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Varðveita veðurstöð | Áhugi er á því á
Blönduósi að varðveita á staðnum tækja-
búnað veðurskeytastöðvarinnar sem þar
var rekin um árabil en var lokað á síðasta
ári. Bæjarstjóri hefur kannað málið hjá
Veðurstofunni og var falið af bæjarráði að
senda stofnuninni formlegt erindi.
Herjólfur í áætlun | M/s Herjólfur er
kominn aftur til Vestmannaeyja eftir
tveggja vikna ferð til Danmerkur þar sem
viðgerðir fóru fram á skipinu sem og al-
mennt viðhald. Smátafir urðu vegna véla-
viðgerða og seinkaði það heimkomu um
einn dag. Heimsiglingin gekk vel og mun
skipið hefja aftur áætlunarsiglingar í dag.
Skipið St. Ola sem leyst hefur Herjólf af
á meðan heldur aftur til Eistlands en Eyja-
menn hafa almennt verið mjög ánægðir
með skipið, að því er fram kemur í frétt á
vef Frétta, www.eyjafrettir.is.
FélagsskapurinnHúsfreyjurnarhefur veg og
vanda af samkomu nokk-
urri er nefnist Sviðamessa
og haldin verður í Ham-
arsbúð á Vatnsnesi föstu-
dagskvöldið 15. og laug-
ardagskvöldið 16. október
næstkomandi. Þetta er
mikil matarhátíð, að því er
fram kemur í tilkynningu
félagsins sem birt er á vef
Forsvars á Hvammstanga,
og dregur hún nafn sitt af
gamalli hefð þar sem ein-
göngu svið og meðlæti eru
á borðum. En svið eru ekki
bara ný svið því þarna
bjóðast þau einnig reykt
og söltuð að ógleymdum
sviðalöppum og reyktum
kviðsviðum. Eins og á öðr-
um góðum mannamótum
verður veislustjóri sem fer
með grín og gamanmál og
gestir taka vel undir í
fjöldasöng.
Sviðamessa
Sérkennileg birta varí höfuðborginniþegar rokið var
sem mest síðdegis í fyrra-
dag. Voldug ský fuku eft-
ir himninum og sólin lýsti
þau skemmtilega upp.
Urðu skýin og bjarminn
mörgum myndasmiðnum
að yrkisefni.
Ljósmynd/Jóhann G. Kristinsson
Gullin stormský
Friðrik Steingríms-son hjó eftir þvíþegar ástarviku
lauk í Bolungarvík og
skriða lokaði Óshlíðarvegi:
Nú er vika ástar öll
einhver verður feginn,
því landið skalf svo skriðuföll
skullu yfir veginn.
Séra Hjálmar Jónsson
bætti við:
Ástin hún blómstrar í Bolungar-
víkinni,
bægja þau frá sér uppdráttar-
sýkinni.
Byrjaði vikan á sífelldum
samförum
er síðan urðu að náttúru-
hamförum.
Þá Kristján Eiríksson:
Ég skil að vestra vaxi ár og lækir
og verði skriðuföllin þegar kveldar.
En sú spurning á minn huga sækir
hví urðu forðum þessir Mývatns-
eldar?
Friðrik svaraði fyrir
Mývetninga:
Eldar kvikna í ástarinnar bríma
enn í dag á milli hals og svanna,
það var bara ekkert viagra á þeim
tíma
og vantaði ekki eins og dæmin
sanna.
Náttúran kallar
pebl@mbl.is
Laxamýri | Það er jafnan gleði-
efni þegar börn fæðast og fjölg-
un íbúa er eitt af þeim mark-
miðum sem mörg sveitarfélög
hafa.
Sum þeirra verðlauna fólk fyr-
ir barneignir. Nýlega fékk Hildi-
gunnur Jónsdóttir í Lyngbrekku
í Þingeyjarsveit, sem var að
eignast son, góða heimsókn.
Sveitarstjórinn, Jóhann Guðni
Reynisson, kom með fangið fullt
af bleiupökkum sem hér eru
komnir í fang Hildigunnar.
Þetta var gjöf frá sveitarfé-
laginu sem vill með þessu lýsa
ánægju sinni yfir fjölgun íbúanna
í sveitinni.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Vel gert við barnafólkið
Fólksfjölgun
Þórshöfn | Hafin er undirbúningsvinna við
hönnun og breytingu á kúfiskverksmiðju
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, tæknimál-
um og fleiru. Að sögn Magnúsar Helgason-
ar framkvæmdastjóra verður byrjað á
framkvæmdunum
um miðjan desem-
ber.
Fyrirhugað er
að umbylta verk-
smiðjunni en nýtt
niðurfallskerfi
verður þá sett,
nýtt gólfefni og öll aðstaða endurbætt. Nýr
sjóðari og tilheyrandi búnaður í verk-
smiðju mun þá auka afköstin um helming
en í framhaldi af því verður vinnuaðstöðu
breytt í líkingu við það sem tíðkast í rækju-
vinnslu, þ.e. að færibönd verða í einu rými
og pökkunaraðstaða í öðru svo aðstaða
starfsfólks breytist til hins betra.
Miklar vonir eru bundnar við kúfisk-
vinnslu á Þórshöfn og afurðir sem þar eru
unnar. Kúfisksúpan er hið mesta sælgæti
og á orðið fastan sess sem sérréttur á Þórs-
höfn en Veitingastaðurinn Eyrin hefur til
dæmis boðið upp á hana við ýmis tækifæri
við góðar undirtektir.
Kúfisk-
verksmiðju
umbylt
Húsavík | Nýja málverkið er heiti á mynd-
listarsýningu sem stendur yfir í Safnahús-
inu á Húsavík þessa dagana. Þar eru sýnd
verk eftir tíu myndlistarmenn sem komu
fram á sjónarsviðið fyrir um tuttugu og
fimm árum og hafa síðan margir verið
áberandi í íslenskri myndlist.
Listamennirnir eru Gunnar Örn Gunn-
arsson, Hulda Hákon, Jón Óskar, Daði
Guðbjörnsson, Helgi Þorgils Friðjónsson,
Valgarður Gunnarsson, Jón Axel Björns-
son, Vignir Jóhannesson, Jóhanna Kristín
Yngvadóttir og Tumi Magnússon.
Safnahúsið hefur á umliðnum árum stað-
ið fyrir komu sýninga frá Listasafni Ís-
lands og hafa þar einkum verið á ferðinni
sýningar á verkum gömlu meistaranna. Að
þessu sinni er boðið upp á verk listamanna
sem eins og áður segir hafa verið áberandi
frá því um 1980 og stendur sýningin til 10.
þessa mánaðar
Nýja mál-
verkið í
Safnahúsinu
♦♦♦
Kynna þjóðgarð | Nýskipaður umhverf-
isráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir,
mun ásamt samstarfsfólki sínu halda kynn-
ingar- og samráðsfundi í Sveitarfélaginu
Hornafirði um stækkun Þjóðgarðsins í
Skaftafelli. Kemur fram á Samfélagsvef
Hornafjarðar að fyrri fundurinn verður á
Hrollaugsstöðum á morgun, fimmtudag, kl.
20.30, og síðari fundurinn á Hótel Höfn í
Hornafirði föstudaginn 8. október kl. 12.
Rætt verður um reglugerð fyrir þjóð-
garðinn eftir stækkun og tillögur sem settar
hafa verið fram um Vatnajökulsþjóðgarð.
Stækkun Þjóðgarðsins var tilkynnt form-
lega og við hátíðlega athöfn í Skaftafelli 12.
september sl. Ráðherra efnir til kynning-
arfundanna til að fylgja málinu eftir.
Morgunblaðið/Þorgeir