Morgunblaðið - 06.10.2004, Qupperneq 20
Fylgihlutir verða æ mik-ilvægari þegar kemurað heildarútliti frá
tískuhúsunum. Í New York
Times er tekið svo djúpt í ár-
inni að hönnuðir þurfi varla
að hanna föt lengur. Nýir
skór og ný taska við hverja
nýja fatasamsetningu er
skylda. Frá Prada-
tískuhúsinu streyma nú
hippaleg belti og skór með
lágum hælum í skærum
litum. Ártalið 1970 kem-
ur upp í hugann. Og
skilaboðin eru skýr frá
Dolce & Gabbana:
Fylgihlutir úr
slönguskinni í öllum
myndum.
TÍSKA | Tískuhönnuðir leggja áherslu á fylgihluti fyrir næsta vor og sumar
Fylgihlutir:
Gai Mattiolo
kynnti hönnun
sína á tískusýn-
ingunni í Mílanó.
Eins og sést eru
það ýmsir auka-
hlutir sem fylgja
fatnaðinum.
Blóm: Hattur frá Prada sem sýnd-
ur var á tískusýningu í Madrid ný-
lega og vakti athygli gesta.
Reuters
Skært: Taskan
er áberandi
fylgihlutur
kápunnar sem
Trussardi átti
á tískusýning-
unni í Mílanó
um síðustu
helgi.
Hattar og hippaleg belti
Litskrúðugt:
Hatturinn var áberandi
hjá Prada í Mílanó.
20 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Helgi, sem segist orðinn þreyttur á viðtölum við
fjölmiðla sem hafa fylgt honum frá 30. september.
Reglur leiksins eru þær að þátttakendur mega
ekki hafa neitt með sér inn á býlið nema fötin sem
þeir standa í, og þeir fengu auk þess 15 kg af
haframjöli til að lifa af. Í fjallgöngu eftir þrjár vik-
ur hitti Helgi mann sem gaf honum sígarettu og
þá varð fjandinn laus því tóbakslöngunin varð
enn meiri. Í einni af fáum búðarferðum hópsins
freistaðist hann til að kaupa tóbak og sápu handa
stelpunum fyrir peninga sem hópnum höfðu
áskotnast sameiginlega. Upp komst um kaupin
og rifrildið byrjaði með áðurnefndum afleið-
ingum. Helgi segist ekki hafa getað annað en
hætt vegna hegðunar sinnar. Helga hefur alltaf
langað að verða leikari og segir að ef honum bjóð-
ist hlutverk í kvikmynd muni hann taka því. Hann
Sýningar á raunveruleikaþáttunum Farmenstanda nú yfir í norska sjónvarpinu en þeirvoru teknir upp í sumar..
Íslendingurinn Helgi Ágústsson var einn af
þeim sem tók þátt. Býlið gengur út á að hópur
fólks á að bjarga sér á afskekktu eyðibýli og
keppa sín á milli um verðlaun og að fá að vera
lengur þar til einn stendur upp sem sigurvegari.
Í síðustu viku var sýndur þáttur þar sem hinn
48 ára Helgi missti stjórn á skapi sínu, sló til konu
sem er einnig þátttakandi í þættinum og kallaði
hana hóru. Í kjölfarið ákvað Helgi að hætta í
þættinum og fór. Helgi útskýrir í samtali við
Morgunblaðið að hann hafi strax séð eftir þessu
og því viljað fara. „Ég var orðinn of villtur og mig
langaði heim. Fyrstu þrjár vikurnar gengu vel en
svo var orðið of erfitt að vera án tóbaks,“ segir
hefur þegar fengið tilboð um hlutverk í norskri
sápuóperu, Hotel Cæsar, en er ekki búinn að
ákveða sig.
Spurður um ástæðu þess að hann sótti um að
komast að sem þátttakandi í Farmen segir Helgi
að hann hafi viljað gera eitthvað í staðinn fyrir að
sitja fyrir framan sjónvarpið með fjarstýringuna í
hönd. „Mig langaði í ævintýri og að prófa þennan
íslenska líkama sem er bara 162 sentimetrar, seg-
ir Helgi sem er gamall Íslandsmeistari í fim-
leikum. Líkaminn reyndist ágætlega og Íslend-
ingurinn vakti mikla athygli, bæði jákvæða og
neikvæða.
Helgi hefur búið í Noregi í fimmtán ár og starf-
ar sem prentari, síðustu sjö árin hjá Dagbladet. Á
föstudaginn var hann einmitt forsíðuefni þess
blaðs og á fimmtudaginn bað hann sambýliskonu
sinnar, Inger Lisa Gjerdingen, í beinni útsend-
ingu á TV2, og hún játaði. Að sögn Helga mun
tímaritið Se og hør í Noregi borga brúðkaupið
gegn því að birta umfjöllun og myndir frá því.
SJÓNVARP | Helgi Ágústsson, prentari hjá Dagbladet í Noregi, lék í norska raunveruleikaþættinum Farmen
Hætti eftir þrjár vikur á býlinu
Helgi Ágústsson: Var kominn með
heimþrá og orðinn þreyttur eftir þriggja
vikna dvöl á bóndabænum.
Íslendingurinn Helgi Ágústsson hefur verið í sviðsljósinu í Nor-
egi síðustu daga vegna þátttöku sinnar í raunveruleikaþættinum
Farmen eða Býlið á norsku sjónvarpsstöðinni TV2.
steingerdur@mbl.is
Henson peysur í úrvali
Garðatorgi 3 210 Garðabæ s: 565-6550
Hafnarstræti 106 Akureyri s: 462-5000
Vöruhúsið ehf
heildverslun
Ný sending af fallegum
silkiblómum.
Pantanir í síma 565 1504
voruhusid@internet.is