Morgunblaðið - 06.10.2004, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Embætti
héraðsdómara
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, samkvæmt
tillögu dómstólaráðs, auglýsir laust til setning-
ar embætti héraðsdómara við Héraðsdóm
Reykjavíkur, meðan á leyfi skipaðs dómara
stendur, sbr. 2. mgr. 20. gr. laga um dómstóla,
nr. 15/1998.
Dómsmálaráðherra setur í embættið frá og
með 1. nóvember 2004 til og með 31. október
2005, að fenginni ábendingu dómstólaráðs
um umsækjanda til starfans.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, Skuggasundi, eigi síðar en 22. október
2004.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
4. október 2004.
Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa
skal í heiðri jafnrétti kynjanna við stöðuveitingar.
í Laugarás og
Selás.
Verður að vera
18 ára
Upplýsingar
í síma 569 1376
Aðalbókari
Snæfellsbær óskar eftir að ráða aðalbókara
í 100% starf á skrifstofur bæjarins.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. nóvember.
Við leitum að einstaklingi sem hefur góða bók-
halds- og tölvuþekkingu.
Æskilegt er að umsækjandi hafi viðskipta- eða
rekstrarfræðimenntun, það er þó ekki skilyrði
en gerð er krafa um stúdentspróf.
Nánari upplýsingar gefur bæjarritari í síma
436 6900/895 6714, netfang lilja@snb.is .
Skriflegum umsóknum skal skilað á bæjarskrif-
stofu Snæfellsbæjar fyrir 21. október nk.
Umsækjendur athugið að Bæjarskrifstofur Snæfellsbæjar eru reyk-
laus vinnustaður.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Lagerhúsnæði óskast
Erum að leita eftir ódýru ca 400 fm lager-
húsnæði á Reykjavíkursvæðinu.
Þarf að vera laust strax. Skammtímaleiga.
Upplýsingar í síma 824 6611.
Í kvöld kl. 20.00
Hjálparflokkur í Garðastræti 38.
Allar konur velkomnar.
Njörður 6004100619 I Fjhst.
HELGAFELL 6004100619 VI
I.O.O.F. 9 18510068½ Rk
I.O.O.F. 7 18510067½ O.
I.O.O.F. 18 1851068 Kk.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
ÁLFTAGERÐISBRÆÐUR sungu fyrir þátttakendur í
árlegu hlaupi til styrktar brjóstakrabbameinsrann-
sóknum í Winnipeg í vikubyrjun og var Skagfirðing-
unum vel fagnað, en um 6.500 manns tóku þátt í hlaup-
inu.
Hlaupið fór fram í 13. sinn og hófst við íshokkíhöllina í
Winnipeg.
Frekar kalt var í borginni í gær og hvasst en Álfta-
gerðisbræður létu það ekki á sig fá og viðstaddir klöpp-
uðu þeim lof í lófa.
Íslandsdagar standa nú yfir í Manitoba á vegum kynn-
ingarátaksins Iceland Naturally og aðalræðismanns-
skrifstofu Íslands í Winnipeg.
Þetta er í fyrsta sinn sem kynning af þessu tagi fer
fram í Winnipeg og nágrenni. Ísland er kynnt sem ferða-
mannaland, Hilmar B. Jónsson kynnir íslenskan mat á
völdum veitingastöðum og íslensk tónlist fær að njóta
sín. Dagskráin hófst með tónleikum í Listasafni Winni-
peg. Rachelle Gislason frá Bresku Kólumbíu söng og lék
frumsamin verk á píanó, djasstríóið Cold Front (Björn
Thoroddsen, Richard Gillis og Steve Kirby) sýndi enn
einu sinni í Vesturheimi hvers það er megnugt og Álfta-
gerðisbræður fengu troðfullan salinn, um 300 manns, til
að syngja með eftir að hafa sungið mörg lög af sinni al-
kunnu snilld. Viðstaddir þökkuðu þeim frammistöðuna
með því að rísa úr sætum og lófaklappinu ætlaði aldrei að
linna.
Fyrir tónleikana sungu Álftagerðisbræður fyrir íbúa á
Betilstöðum, sem eru þjónustuíbúðir fyrir aldraða af ís-
lenskum ættum, og á föstudag sungu þeir í þinghúsinu í
Winnipeg. Þeir verða einnig með tónleika í Riverton, í
Gimli og í Lundar.
Álftagerðisbræðrum
vel fagnað í Winnipeg
Álftagerðisbræður hylltir, f.v. Stefán Gíslason undirleikari, Óskar, Pétur, Gísli og Sigfús Péturssynir.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn
Kvenréttindafélags Íslands.
„Enn einu sinni er óhjákvæmilegt
að mótmæla skipun dómara í
Hæstarétt Íslands þar sem við skip-
unina var ekki gætt lögbundinna
jafnréttissjónarmiða. Nú sitja að-
eins tvær konur í Hæstarétti af alls
níu dómurum og hefði ráðherra því
átt að skipa konu dómara að þessu
sinni, kysi hann að fara eftir
ákvæðum jafnréttislaga, enda var í
hópi umsækjanda kona sem var
a.m.k. jafn hæf og aðrir umsækj-
endur.
Í jafnréttisáætlun ríkisstjórn-
arinnar svo sem í lögum er skýrt
kveðið á um það að jafna skuli hlut-
föll kynjanna í störfum sem nánast
eingöngu eru skipuð einstaklingum
af öðru kyninu. Ekki síst er rík-
isvaldinu skylt að sýna gott for-
dæmi fyrir hinn almenna vinnu-
markað og er jafnréttisstefna
ríkisstjórnarinnar ekki trúverðug
ef ekki fara saman orð og efndir.
Stjórn Kvenréttindafélags Ís-
lands telur að ráðherra hafi brotið
ákvæði jafnréttislaga með skipun
hæstaréttardómara og mótmælir
henni því eindregið. Stjórn Kven-
réttindafélags Íslands skorar á rík-
isstjórnina að standa við eigin jafn-
réttisáætlun og gera eftirleiðis allt
sem í hennar valdi stendur til að
koma á jafnri skipan kvenna og
karla í æðstu embætti þjóðarinnar.
Það er löngu orðið tímabært að
menn í ríkisstjórn svo sem annars
staðar í þjóðlífinu geri sér grein
fyrir að jafnrétti verður ekki náð
nema með því að skipa konur í störf
sem losna á þeim stöðum sem karl-
ar eru í meirihluta. Öll jafnrétt-
isumræða, jafnréttisáætlanir og lög
eru orðin tóm ef ekki er fylgt þeirri
reglu.“
Mótmæla
skipun hæsta-
réttardómara
Í STUÐNINGSYFIRLÝSINGU læt-
ur Félag háskólakennara í ljós
undrun sína á þeirri sérkennilegu
stöðu sem grunnskólakennarar og
nemendur eru settir í vegna tog-
streitu ríkis og sveitarfélaga um
fjármagn og lýsir jafnframt yfir
eindregnum stuðningi við kjarabar-
áttu grunnskólakennara og sendir
þeim baráttukveðjur.
Háskólakennarar
styðja kennara
AÐALFUNDUR Frjálshyggju-
félagsins var haldinn fyrir skömmu,
og kaus hann nýja stjórn félagsins.
Nýkjörinn formaður er Gunnlaugur
Jónsson fjármálaráðgjafi. Sam-
þykkti aðalfundur lagabreytingu
þess efnis að stjórnarmönnum var
fjölgað úr ellefu í átján, að formanni
meðtöldum. Áhugi á starfi félagsins
hefur aukist ár frá ári, og taldi aðal-
fundur rétt að veita þeim, sem vildu,
tækifæri til að starfa í stjórn félags-
ins, segir í frétt frá félaginu.
Stjórn Frjálshyggjufélagsins
starfsárið 2004–2005 skipa: Gunn-
laugur Jónsson fjármálaráðgjafi,
formaður, Arnar Arinbjarnarson
bankamaður, Ásgeir Jóhannesson
nemi, Birgir Már Daníelsson við-
skiptafræðinemi, Bjarni Ólafsson
laganemi, Fannar Jónsson viðskipta-
fræðinemi, Friðbjörn Orri Ketilsson
hagfræðinemi, Guðmundur Arnar
Guðmundsson hagfræðingur, Gylfi
Ólafsson kennaranemi, Haukur Örn
Birgisson lögfræðingur, Hjalti Bald-
ursson framkvæmdastjóri, Hulda
Sigrún Haraldsdóttir lífefna-
fræðinemi, Ívar Páll Jónsson blaða-
maður, Kristín Ninja Guðmunds-
dóttir laganemi, Oddgeir Einarsson
lögfræðingur, Sævar Guðmundsson
nemi, dr. Valur Einarsson verkfræð-
ingur og Þór Harðarson þjón-
ustustjóri.
Ný stjórn Frjáls-
hyggjufélagsins