Morgunblaðið - 06.10.2004, Page 32
Orð dagsins: Í kærleika sínum ákvað hann fyrirfram að veita oss son-
arrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og náð, sem hann lét oss í té í sín-
um elskaða syni. (Ef. 1, 5.-7.)
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Beini
© LE LOMBARD
OG ÞETTA KALLAST AÐ
ELTAST VIÐ MÝS...
ÉG SÁ AÐ
ÞÚ NÁÐIR
HENNI EKKI
ÉG ER
MEÐ
TILLÖGU
UM
RÆÐU
BYRJAÐU Á TILVITNUN
ÚR 8. KAFLA Í FYRSTU
SAMÚELSBÓK...
TRÚARLEG TILVITNUN
KEMUR ÞÉR LANGT
GLEYMDU
ÞVÍ!!
EINA SEM ÞEIR
TRÚA Á ÞARNA Í
HUNDABÝLINU ER
MATARDISKURINN!
VIÐ SKULUM SJÁ HVAÐ
SKÓLASTJÓRINN HEFUR AÐ
SEGJA UM SKORT Á ATHYGLI
VIÐ
HÖFUM NÁÐ
STÖKKBREYTTA
GEIMFARANUM
GEIMVERURNAR VILJA
VAFALAUST FORMÚLUNA
FYRIR KJARNAKNÚNA
OSTASKERANN
ÁÐUR EN FARIÐ
VAR AÐ PYNTA
HANN ÞÁ
EYDDI HANN
FORMÚLUNNI
AF HVERJU ER
HANN AÐ BORÐA
MJÓLKURMIÐANA
ÉG HEF EKKERT VERIÐ AÐ TALA UM ÞETTA
ÞVÍ ÞAÐ MUNDI ENGINN TRÚA MÉR
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 6. október, 280. dagur ársins 2004
Vinnufélagi Víkverjasegir sínar farir
ekki sléttar í sam-
skiptum við starfs-
fólkið hjá Símanum.
Í lok júlí fór hann
með dóttur sinni að
kaupa fyrir hana
Frelsi í útlöndum þar
sem fjölskyldan var á
leiðinni til Spánar í frí.
Þegar vinnufélaginn
gerði samninginn við
Símann vildi hann
kaupa þak á notk-
unina sem átti að vera
5.000 krónur. Þá var
honum tjáð að það
væri ekki hægt og þyrfti ekki þar
sem SMS yrði sent í hans síma og
dótturinnar eftir hverjar 1.000 krón-
ur. Það bárust engin SMS um notk-
unina fyrstu 12 dagana og vinnu-
félagi Víkverja var orðinn nokkuð
viss um að notkunin væri a.m.k.
komin í 1.000 krónur. Á tólfta degi
dvalarinnar á Spáni kom síðan
fyrsta SMS skeytið um notkunina
sem var komin í rúmar 16.000 krón-
ur. Þá var tekið fyrir notkun á sím-
anum þangað til komið var heim.
Engu að síður bárust nokkur skeyti
uns upphæðin var komin í 26.000
krónur.
Þegar heim var komið var strax
haft samband við þjón-
ustuver Símans og lát-
ið skoða málið. Eftir
að hafa hringt í það 4
sinnum á 3 dögum og
alltaf beðið eftir að
hringt væri til baka
var haldið í verslun
Símans í Smáralind og
reynt að hafa uppi á
manneskjunni sem
samningurinn var í
upphafi gerður við.
Þar var ný manneskja
sett í málið sem ætlaði
að hringja samdæg-
urs. Eftir að hafa ekk-
ert heyrt var farið
daginn eftir og starfsmaðurinn sagð-
ist ætla að ýta við málinu. Ekkert
heyrðist síðan. Þessi saga endurtók
sig aftur og aftur frá miðjum ágúst
og fram til loka september. Þann 30.
september hafði vinnufélaginn sam-
band við innheimtuna og 1. október
kom sú niðurstaða að greiddar yrðu
5.000 krónur til baka. Við leiðrétt-
inguna tókst ekki betur til en svo að
vinnufélagi Víkverja situr nú uppi
með kvittun þar sem hann er sagður
skulda Símanum 10.000 krónur því
leiðréttingin var gerð öfugt, 5.000
króna afslátturinn varð að skuld.
Hann er þegar búinn að færa öll
viðskipti sín á annan stað.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Þjóðarbókhlaðan | Þessa dagana stendur yfir sýning á bandarískum og
þýskum barnabókum í Þjóðarbókhlöðunni. Sendiherra Bandaríkjanna,
James I. Gadsden, var meðal þeirra sem fluttu upphafserindi, en bandaríska
sendiráðið keypti og gaf Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni hundr-
að nýjar bandarískar barna- og unglingabækur með yfirskriftinni „Images of
children in contemporary U.S. Children’s literature“. Þá er einnig að finna á
sýningunni farandsýningu á þýskum barna- og unglingabókum sem Goethe
Zentrum hefur fengið að láni frá Internationales Jugendbibliothek.
Sýningarnar verða opnar í Þjóðarbókhlöðu til fimmtánda október en þá
fara þær út á land. Það skal tekið fram að börnum er ekki leyfður aðgangur
að Þjóðarbókhlöðunni nema í fylgd með fullorðnum.
Morgunblaðið/Þorkell
Barnabókmenntum fagnað
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.