Morgunblaðið - 06.10.2004, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eitthvað óvænt og ánægjulegt gæti
komið í þinn hlut á leiðinni í vinnuna í
dag. Ný kynni gætu einnig verið á næsta
leiti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ný ást gæti blómstrað í dag og það úr
óvæntri átt. Bakgrunnur viðkomandi
manneskju er allt annar en þinn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Innibyrgð spenna í fjölskyldunni gæti
fengið útrás í dag. Hvað sem gerist er
um eitthvað að ræða, sem hefur verið að
gerjast lengi og nú er allt opið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þín daglega hringrás verður trufluð í
dag. Þú getur búist við að hlutirnir taki
óvænta stefnu, t.d. með nýjum áætl-
unum, nýju fólki eða óvæntum fréttum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Í dag er mikil freisting að bregðast við
mótlæti með því að fara í búðir, en rétt
er að gæta þess að eyða ekki um efni
fram.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nýtt samband gæti hafist í dag eða að
setja þurfi spilin á borðið í sambandi,
sem staðið hefur í nokkurn tíma.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Eirðarleysi og óþolinmæði hrjá þig í
dag. Þú leitar spennu og hefur fengið
nóg af því að geta séð allt fyrir sem ger-
ist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vinur gæti fært þér óvæntar fréttir eða
þú gætir hitt kostulega manneskju, sem
mun ekki láta þér leiðast. Vertu vakandi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Farðu varlega í námunda við foreldra
þína, kennara og yfirmenn, sem gætu
sprungið af bræði af minnsta tilefni.
Gamlar syndir eru ekki gleymdar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú vilt gera allt, sem er öðruvísi og erf-
itt, í dag og leitar uppi skemmtun og æv-
intýri. Möguleiki til að ferðast gæti opn-
ast.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir átt óvæntan glaðning í vænd-
um, hvort sem það verður slegið á skuld-
irnar, maki þinn fær launauppbót eða þú
færð gjöf, sem fær þig til að brosa
breitt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver gæti komið þannig fram við þig
eða maka þinn, jafnvel með daðri, að það
komi þér úr jafnvægi.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vog
Afmælisbörn dagsins:
Þú vilt ævintýri og trúir því að allt sem
gerist verði á endanum til betri vegar.
Þetta stappar í þig stálinu. Ef þú leggur
hart að þér í vinnu munt þú uppskera á
næsta ári.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 fátæka, 8 við
góða heilsu, 9 depill, 10
spil, 11 fiskur, 13 híma, 15
dramb,18 ógild, 21 hár, 22
þrautin, 23 verur, 24 far-
angur.
Lóðrétt | 2 halda, 3 sjá eft-
ir, 4 báran, 5 hnugginn, 6
óns, 7 lesta, 12 álít, 14
slöngu, 15 mann, 16 skel-
dýr, 17 ámu, 18 viljugt, 19
fóðrunar, 20 grugg.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 þröng, 4 skref, 7 torfa, 8 ermar, 9 sár, 11 röng, 13
snúa, 14 efast, 15 last, 17 ólán, 20 aða, 22 göfug, 23 fátíð, 24
sorta, 25 rorra.
Lóðrétt | 1 þotur, 2 ögrun, 3 glas, 4 sver, 5 ræman, 6 fórna,
10 ásauð, 12 get, 13 stó, 15 leggs, 16 sófar, 18 lætur, 19
naðra, 20 agga, 21 afar.
Bækur
Þjóðarbókhlaðan | Kl. 16, fyrirlestrar um
barnabókmenntir.
Fyrirlestrar
Gerðuberg | Zen-meistarinn Jakusho
Kwong Roshi heldur fyrirlestur kl. 20. Að-
gangseyrir krónur 700. www.zen.is.
Listaháskóli Íslands | Þorlákur Einarsson
sagnfræðingur og Ólöf Erla Bjarnadóttir
leirlistamaður á opnum fyrirlestri.
Námskeið
ITC Fífa | Kynningarfundurinn kl. 20.15 í
Safnaðarheimili Hjallakirkju, Álfaheiði 17,
Kópavogi. Uppl. www.simnet.is/itc itcfifa-
@isl.is og síma 698 0144.
Íslenskir radíóamatörar | Námskeið á veg-
um íslenskra radíóamatöra byrjar í kvöld kl.
19 í VR 2. Skráningargjald kr. 7000 greiðist
við innritun. Innifalin eru öll námsgögn.
Uppl. í síma 867 8520 og www.ira.is.
Reykjavíkurdeild RKÍ | Námskeið í skyndi-
hjálp verður 8., 9. og 10. okt., Laugav. 120,
fyrir 15 ára og eldri. Skrán. í s. 5450400.
Málstofur
Háskóli Íslands | Kl. 12.15 flytur Ársæll Val-
fells, Viðskiptafræðistofnun, erindi um fjár-
festingar í UT í Odda, stofu 101.
Hótel Loftleiðir | Landvernd og Umhverf-
isst. HÍ boða til opinnar málstofu um lofts-
lagsmál fös. 8. okt.kl. 13.
Háskólinn í Reykjavík | Málþing kl. 12 í
þingsal 101. Efni þingsins verður DC++
Mannfagnaður
Kvenfélagið Hrönn | Skemmtifundur fimm-
tud. 7. okt. kl. 20, Borgartúni 22, 3. hæð.
Konur taki með sér gesti.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Verslunarferð í Hagkaup
Skeifunni, farið frá Aflagranda kl. 10, postu-
línsmálning kl. 9 og 13, leshringur kl. 13.30.
Árskógar 4, | Bað kl. 8–14, handavinna kl.
9–16.30, heilsugæsla kl. 10.30–11.30, smíði
og útskurður kl. 13–16.30, spil og keila kl.
13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 böðun, kl. 9–16 vinnustofan op-
in og glerlist, kl. 13–16.30 bridge og vist.
Félag eldri borgara í Hafnarfirði | Opnað
kl. 9 blöðin, rabb, kaffi á könnuni, sam-
verustund og myndmennt kl. 10–16, pílu-
kast kl. 13.30, pútt á Ásvöllum kl. 15–16, æf-
ing hjá Gaflarakórnum kl. 16.
Félag eldri borgara Reykjavík | Sam-
félagið í nærmynd kl. 11, þáttur um málefni
eldri borgara á RUV. Síðdegisdans kl. 14–
16, húsið opnað kl. 13.30, hljómborðsleik-
arinn Guðmundur Haukur leikur fyrir dansi,
kaffi og kökur, söngfélag FEB, kóræfing kl.
17, línudanskennsla kl. 19.15.
Félagsstarf aldraðra Garðabæ | Kvenna-
leikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11, bridge og
handavinnuhorn kl. 13 í Garðabergi, gler-
skurður kl. 13 og postulínsmálun kl. 16, opið
hús í Holtsbúð kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar frá kl. 9–16.30, kl.10.30 gamlir leikir
og dansar, frá hádegi spilasalur opinn, kl.
14.30 kóræfing.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dag-
blöðin, almenn handavinna, bútasaumur,
útskurður, hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl.
11, banki, kl. 12 hádegismatur, kl. 13, bridge,
kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58, | Opin vinnustofa kl.
9–15, samverustund kl. 10.30, bingó kl. 14
spilaðar verða 6 umferðir, kaffi og meðlæti,
námskeið í myndlist kl. 15–18, fótaaðgerðir.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, fimmtu-
dag, pútt Korpúlfsstöðum kl. 10.
Norðurbrún 1. | Vinnustofa opin kl. 9, kl. 9
smíði, kl.13.30 bankinn, kl. 14 félagsvist, op-
in fótaaðgerðastofa.
Rauði kross Íslands | Félagsstarf kvenna-
deildarinar hefst með haustfundi 7. októ-
ber kl. 19 í Akóges, Sóltúni 3.
Sjálfsbjörg | Félagsvist í kvöld kl. 19.30 í fé-
lagsheimilinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 10–
12 sund (Hrafnistulaug), kl. 10.15–11.45
spænska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl.
12.15–14 verslunarferð í Bónus Holtagörð-
um, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré-
skurður, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg | Smiðja kl. 8. 45, bókband og
hárgreiðsla kl. 9, morgunmessa, séra Sig-
urður Pálsson kl. 10, handmennt almenn kl.
10–16, fótsnyrting kl. 10, kóræfing kl. 13.
Þórðarsveigur 3 | Opið hús kl. 13.30–16.
Kirkjustarf
Aðventistar SD | Opinberar samkomur
næstu þrjú kvöld kl. 20 í Loftsalnum, Hóls-
hrauni 3, Hafnarfirði. Ræðumaður verður
Louis Torres sem áður gerði garðinn fræg-
an með Bill Hailey and the Comets.
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn, Krist-
björg á Punktinum kynnir starfsemi stað-
arins. Kirkjuprakkarar kl. 15.30–16.30 (1.–4.
bekkur). TTT–starf kl. 17–18 (5.–7. bekkur).
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund frá 12–12.30.
Tónlist, hugleiðing, fyrirbænir. Súpa og
brauð í safnaðarheimilinu á vægu verði.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tón-
list, hugleiðing, fyrirbænir. Léttur máls-
verður eftir stundina.
Bústaðakirkja | Samverur frá kl. 13. Við
spilum, föndrum og erum með handavinnu.
Kl. 15 er kaffi. Gestur með fróðleik eða
skemmtiefni. Stutt bænastund fyrir kaffi.
Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára kl.
17.15–18 á neðri hæð.
Garðasókn | Foreldramorgnar Vídal-
ínskirkju kl. 10 til 12. Heitt á könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið
upp á léttan hádegisverð á vægu verði.
Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, org-
elleikari Hörður Bragason. Æskulýðsfélag í
Engjaskóla kl. 20–21, fyrir 8. bekk.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8. For-
eldramorgnar kl. 10–12.
Háteigskirkja | ,,Vinafundir“ hefjast aftur
fimmtudaginn 7. okt. kl. 14 í safnaðarheim-
ili Háteigskirkju. Þar hjálpast fólk að við að
enduruppgötva minningarnar. Boðið er upp
á kaffi og meðlæti. Umsjón sr. Tómas
Sveinsson og Þórdís Ásgeirsdóttir. Upplýs-
ingar í síma 511 5405.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjölskyldu-
samveran hefst kl. 18 með léttri máltíð á
kostnaðarverði. Kl. 19 er Biblíulestur fyrir
alla fjölskylduna, Samúel Ingimarsson mun
tala til okkar. Barnastarfið skiptist niður í
aldurshópa: 1–2 ára, 3–4, 5–7 ára, 8–9 ára,
10–12 ára og 13–17 ára.
Kapella Fríkirkjunnar í Reykjavík | Kyrrð-
ar- og bænastundirnar eru byrjaðar aftur í
hádeginu á miðvikudögum kl. 12.15 í Kap-
ellu Safnaðarheimilisins, Laufásvegi 13.
Kaffi, te og létt meðlæti í lok samveru.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl. 20.
„Ákall um hjálp“ Sálmur 38, Ræðumaður
Ragnar Gunnarsson. Pétur Ragnarsson
segir frá ferð til Kína. Kaffiveitingar.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmumorgunn.
10.30 Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af
stað frá kirkjudyrum. Kl. 14.10–15.30
Kirkjuprakkarar. (Starf fyrir 1.–4. bekk) Kl.
16.15 T.T.T. (Starf fyrir 5.–7. bekk.) Kl. 19
Fermingar–Alfa. Kl. 20.30 Unglingakvöld.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10. Kaffi og
spjall. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr.
Örn Bárður Jónsson. Opið hús eldri borg-
ara. Nýja safnaðarheimilið skoðað. Einar
Benediktsson, fv. sendiherra, kynnir Barna-
hjálp SÞ. Kaffiveitingar. 7 ára starf kl.
14.30. Kór Neskirkju, æfing kl. 19.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Hecht Cup.
Norður
♠G9
♥K76
♦10752
♣ÁDG3
Vestur
♠876
♥1032
♦ÁKDG
♣962
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 1 grand Pass 2 spaðar
Pass Pass Pass
Ib Lundby, ritstjóri danska brids-
blaðsins (Dansk Bridge) hafði umsjón
með daglegu mótsblaði Hecht-
keppninnar. Félagi Ibs í fræðunum,
Peter Lund, var tíður gestur á kont-
órnum og lagði meðal annars fyrir
hann varnarþrautina að ofan.
„Þú tekur fyrst tvo slagi á tígul og
makker sýnir þrílit. Hvað svo?“ spurði
Lund. Já, hverju myndi lesandinn spila
í þriðja slag?
Norður
♠G9
♥K76
♦10752
♣ÁDG3
Vestur Austur
♠876 ♠K105
♥1032 ♥ÁDG8
♦ÁKDG ♦863
♣962 ♣875
Suður
♠ÁD432
♥954
♦94
♣K104
Lund var í austur og félagi hans
Tomas Berg skipti yfir í hjarta – þrist-
inn, nánar tiltekið. Matthías Þorvalds-
son sat í sagnhafasætinu og hann lét
lítið úr borðinu. Matthías gat svo hald-
ið vestri út úr spilinu og hent einu laufi
niður í frílauf: Átta slagir og 16 stig yf-
ir miðlung í NS, en ef vestur hefði
fundið þá vörn að spila hjartatíunni
hefði spilið tapast og AV uppskorið 20
stig yfir miðlung.
Stór sveifla og Lund var ekki
ánægður.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hlutavelta | Þessar brosmildu stúlk-
ur héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri
til styrktar Rauða krossi Íslands og
söfnuðust 5.319 krónur. Þær heita
Rakel Ösp Sævarsdóttir og Heiða Hlín
Björnsdóttir.
95 ÁRA afmæli. Ámorgun, 7.
október, verður 95 ára
Friðgeir Grímsson,
f.v. öryggismálastjóri
ríkisins, nú til heimils
á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Í tilefni þess-
ara tímamóta tekur
Friðgeir á móti vinum og vandamönn-
um á afmælisdaginn milli kl. 17 og 19 í
Oddfellowhúsinu við Vonarstræti.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Í DAG kl. 12 stendur
Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar,
fyrir mánaðarlegum
hádegistónleikum,
en hefð hefur mynd-
ast fyrir slíkum tón-
leikum í Hafnarfirði.
Tónleikarnir standa
yfir í um hálfa
klukkustund og eru
hugsaðir sem tæki-
færi fyrir fólk sem starfar í miðbæ Hafn-
arfjarðar til að njóta tónlistar í hádegishléi.
Það er Antonía Hevesi, píanóleikari og org-
anisti við Hafnarfjarðarkirkju, sem er list-
rænn stjórnandi hádegistónleikaraðar
Hafnarborgar, og hefur hún valið þá lista-
menn sem fram hafa komið á tónleikunum.
Í dag mun Antónía
leika undir söng
Auðar Gunn-
arsdóttur sópran, en
Auður hefur komið
víða við í óperuheim-
inum á annars stutt-
um ferli, meðal ann-
ars með
Fílharmóníusveit-
unum í Stuttgart,
Reutlingen og Bad-
en-Baden og í óp-
eruhúsum víða í
Þýskalandi og á Ítalíu. Á efnisskrá hádeg-
istónleikanna verða meðal annars verk eft-
ir L.Bernstein, L. Webber og E. De Cilea, en
kaffistofa Hafnarborgar sér síðan um að
metta matarlyst gestanna með léttum
réttum í takt við tónlistina.
Ljúfir hádegistónar í Hafnarborg
Auður
Gunnarsdóttir
Antonía Hevesi
FYRIRSÖGN fréttar á forsíðu
Morgunblaðsins í gær gefur til
kynna að framleiðendur geimflaug-
arinnar SpaceShipOne hafi tryggt
sér 10 þúsund dollara verðlaun þeg-
ar flauginni var á mánudag flogið í
annað skipti á fimm dögum út fyrir
gufuhvolf jarðar. Þetta er rangt eins
og raunar kemur fram í fréttinni
sjálfri: verðlaunaféð var nefnilega
tíu milljónir dollara, eða rúmlega
700 milljónir íslenskra króna. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is