24 stundir - 26.08.2008, Síða 3
– bankinn þinn
... saman!
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 3
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
„Við erum búin að tilkynna þetta
til skattstjóra því samkvæmt okkar
heimildum eru starfsstúlkur veit-
ingahússins ekki með skattkort og
þar af leiðandi um svarta vinnu að
ræða,“ segir Sverrir Albertsson,
framkvæmdastjóri AFLs á Austur-
landi, um þýskar stúlkur sem vinna
á veitingahúsi á Breiðdalsvík.
„Veitingahúsin í kring eru að
keppa við ósanngjarna sam-
keppni,“ segir Sverrir og bætir við
að yfirvöld á svæðinu hafi ekkert
gert í málinu þrátt fyrir ítrekaðar
ábendingar félagsins.
„Við teljum ástandið alvarlegt,
starfsstúlkurnar greiða ekki skatt
og njóta því ekki þeirrar trygginga-
verndar sem atvinnurekendum ber
lögboðin skylda til að veita starfs-
fólki sínu,“ segir Sverrir.
Vinna alla daga vikunnar
AFLi starfsgreinafélagi barst
ábending um að veitingastaðurinn
væri rekinn með vinnuafli fimm
þýskra stúlkna er vinna fullan
vinnudag alla daga vikunnar og
þiggja 80.000 kr. mánaðarlaun auk
fæðis og húsnæðis.
„Stúlkurnar greiða sjálfar fyrir
farmiða sína til landsins og frá en
virðast vera skráðar inn til landsins
sem ferðamenn,“ segir Sverrir.
„Eigendurnir ráða krakkana,
auglýsa stöðurnar sem skemmtileg
sumarstörf,“ segir hann en bætir
við að hugmyndafræðinni svipi til
léttra sumarstarfa í framandi landi
fyrir ungt fólk. „En sú er ekki raun-
in í þessu tilfelli, það sama er að
gerast á sveitabæjum, krakkarnir
enda sem kauplitlir verkamenn,“
segir hann og tekur fram að félagið
hafi oft þurft að sækja unga fólkið
og flytja það aftur heim.
Ekki náðist í skattstjórann í
Austurlandsumdæmi vegna sum-
arfría.
Þýskar stúlkur greiða ekki skatt og eru ekki tryggðar samkvæmt upplýsingum starfsgreinafélagsins AFLs
Skekkir samkeppnisstöðuna
Veitingahúsið Sam-
kvæmt heimildum 24
stunda er þetta stað-
urinn sem um ræðir.
➤ Félaginu hafa borist upplýs-ingar um að starfsfólkið sé
skráð sem ferðamenn og
greiði því ekki skatta.
➤ Félagið hafði fyrst afskipti afveitingahúsinu þegar viku-
kaup stúlknanna var 5.000
krónur og þeim gert að vera á
staðnum allan sólarhringinn.
AFL STARFSGREINAFÉLAG
Aðalmeðferð verður í skaða-
bótamáli rannsóknaþjónustunnar
Sýnis ehf. á hendur íslenska ríkinu
á fimmtudag.
Forsaga málsins er sú að Sýni
sendi Samkeppniseftirlitinu at-
hugasemd þar sem bent var á að
rannsóknarstofnanir á vegum rík-
issins brytu gegn samkeppnislög-
um. Voru tilteknar stofnanir eins
og Rannsóknarstofnun fiskiðnað-
arins og Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins sem væru í beinni sam-
keppni við Sýni án þess að
rannsóknarstarfsemi þeirra og
þjónusta væru fjárhagslega aðskil-
in. Áfrýjunarnefnd samkeppnis-
mála úrskurðaði að hluti þessara
ríkisstofnanna hefði ekki orðið við
skilyrðum samkeppnisyfirvalda og
er bótakrafan byggð á fjárhagslegu
tjóni sem Sýni telur sig hafa orðið
fyrir á árunum 1998 til 2004. Er ís-
lenska ríkið krafið um 41 milljón
króna í bætur vegna þessa. fr
Ríkisstofnanir taldar brjóta samkeppnislög
Ríkið krafið um 41
milljón í skaðabætur „Paul [Ramses] lendir á milli eittog tvö í nótt (aðfaranótt þriðju-
dags) og hann hefur ennþá fullan
áhuga á því að setjast hér að ásamt
konu sinni og barni,“ sagði Katrín
Theodórsdóttir héraðsdómslög-
maður sem unnið hefur að máli
Pauls Ramses fyrir hann.
Paul hefur að undanförnu dvalið
í Mílanó á Ítalíu. Í byrjun júlí neit-
aði Útlendingastofnun að taka við
beiðni hans um hælisvist og vísaði
honum til Ítalíu, þaðan sem hann
kom. Dómsmálaráðuneytið sneri
við úrskurði stofnunarinnar síðast-
liðinn föstudag. Ósk Pauls um hæli
verður því tekin til efnislegrar
meðferðar hjá Útlendingastofnun
eins og hann hafði óskað eftir. Eig-
inkona Pauls hefur dvalið hér á
landi ásamt ungum syni þeirra.
Paul, sem er frá Kenía, vill að lit-
ið verði til erfiðrar stöðu hans í
Kenía, þar sem hann segist vera í
hættu ef hann snýr til baka, þegar
mál hans verður tekið upp að nýju.
Óljóst er hvenær mál hans verður
til lykta leitt.
magnush@24stundir.is
Paul Ramses hefur enn fullan hug á því að setjast að hér á landi
Dvelur hjá konu og barni
Paul Ramses
Lenti í nótt.