24 stundir - 26.08.2008, Síða 28
Eftir Auði A. Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
Stærðfræðivefurinn rasmus.is hef-
ur á tíu árum vaxið svo ört að hann
heimsækja um 250 þúsund manns
á ári og um 1.300 skólar eru áskrif-
endur að honum.
Hugo Rasmus stofnaði vefinn
ásamt bróður sínum Tomasi Ras-
mus en þeir hafa báðir kennt
stærðfræði árum saman.
Foreldrar rifja upp
Hugo segir vefinn hugsaðan sem
viðbót við kennskubækur og
byggjast á námskrá grunn- og
framhaldsskóla. Hann er byggður
upp eftir efnisatriðum, frá því létt-
asta upp í það erfiðasta.
„Tíu ára krakki getur prófað sig
áfram í þessu því vefurinn saman-
stendur af kynningum og prófum.
Eftir hvern kafla geta krakkarnir
tekið próf og séð hvar þeir standa,“
segir Hugo og bætir við að töluverð
áhersla sé lögð á að hafa kynning-
arnar aðgengilegar og myndrænar.
„Þegar komið er í eldri bekki
grunnskóla er námsefnið farið að
þyngjast en slakur nemandi getur
alltaf bakkað og rifjað upp náms-
efni fyrri ára,“ segir hann og bætir
við að vefurinn henti ekki bara
slökum nemendum: „Hann er líka
mjög handhægur fyrir duglega
nemendur sem eru stoppaðir af,
þarna geta þeir haldið áfram.“
Þá segir hann foreldra hafa tekið
vefnum fagnandi og nota hann til
að rifja upp eigin stærðfræðiþekk-
ingu.
Nýtist bæði erlendis og hér
Hugo segir efni rasmus.is hafa
verið þýtt á önnur tungumál frá
upphafi en það hefur skilað sér í
miklum fjölda áskrifta erlendra
skóla. Fjöldi tungumála kemur þó
líka að góðum notum hérlendis.
„Nemandi sem flytur til dæmis
hingað til lands frá Svíþjóð og kann
stærðfræði þó að hann kunni hana
ekki á íslensku getur notað vefinn
við nám og til að læra íslenskuna,“
segir Hugo og bætir við að þeir for-
eldrar sem ekki eru aldir upp hér-
lendis geti aðstoðað börnin sín sem
eru í íslenskum skólum án þess að
vera útlærðir í tungumálinu. Allt
efni á vefnum hefur áður verið
reynt við kennslu.
Foreldrar taka stærðfræðivefnum fagnandi
Stærðfræðikennsla
á öllum skólastigum
Tveir stærðfræðikennarar
tóku sig til fyrir 10 árum
og bjuggu til stærð-
fræðivef. Nú er hann sótt-
ur af nemendum 1.300
skóla víðsvegar í heim-
inum og við hann vinna
fjórir starfsmenn.
➤ Á vefnum er efni frá grunn-skóla upp í háskóla.
➤ Efni á vefnum er höfund-arréttarvarið en áskrift fylgir
aðgangur fyrir nemendur og
aðstandendur þeirra.
➤ Boðið er upp á stærðfræði-kennslu á átta tungumálum á
vefnum.
RASMUS.IS
Í kennslustund Vefurinn er jafnt
notaður við sjálfsnám og í kennslu.
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 24stundir
Í allmörg ár hefur grunnskóla-
nemendum verið boðið upp á að
taka áfanga í framhaldsskólum í 10.
bekk.
Karl Kristjánsson, deildarstjóri í
skóladeild menntamálaráðuneytis-
ins, segir misjafnt hvernig þessu
námi er háttað. „Oft er um sam-
starfsverkefni milli grunn- og
framhaldsskóla á ákveðnu svæði að
ræða,“ segir hann og bætir við að
náminu sé háttað á ýmsa vegu.
Stundum sækja nemendurnir tíma
í nærliggjandi framhaldsskólum en
oft stundi þeir fjarnám frá þeim og
njóta þá stuðnings frá grunnskól-
anum.
Hann segir þetta auka mjög
samfelluna milli skólastiga en mikil
áhersla hefur verið lögð á hana
undanfarið.
Hann segir algengast að nem-
endur taki áfanga í kjarnagreinun-
um, stærðfræði og tungumálum.
Þá segir hann færast mjög í vöxt að
grunnskólanemendur sæki
menntaskólaáfanga enda gott að
geta flýtt fyrir sér í menntaskóla-
námi.
fifa@24stundir.is
Flýta fyrir sér í menntaskóla
Stúdínur Fleiri
grunnskólanem-
endur taka nú
áfanga á fram-
haldsskólastigi.
Nemendur Grunnskólanemendur geta
tekið framhaldsskólaáfanga.
Jarðhitaskóli Háskóla Samein-
uðu þjóðanna fagnar 30 ára afmæli
sínu um þessar mundir og heldur í
tilefni af því ráðstefnu um jarðhita
og þróunaraðstoð sem hefst í dag.
Markmið Jarðhitaskólans er að
aðstoða þróunarlönd, þar sem nýt-
anlegur jarðhiti finnst, við að
byggja upp og efla hóp sérfræðinga
í jarðhitafræðum, sem geta unnið á
hinum ýmsu sérsviðum í rann-
sóknum á jarðhita og nýtingu
hans.
Við lok þessa skólaárs munu 400
nemendur frá 43 löndum hafa út-
skrifast eftir sex mánaða sérhæft
nám við Jarðhitaskólann og 15 lok-
ið MSc-námi við Háskóla Íslands í
samvinnu við Jarðhitaskólann. aak
Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna þrítugur
Hefur útskrifað 400 nema
Konur sem gengið hafa í kynja-
skipta skóla hafa umtalsvert hærri
laun en kynsystur þeirra í blönd-
uðum skólum. Enginn munur var
á starfsvali kvennanna en líklegt
talið að þær sem komu úr kyn-
skiptum skólum væru sjálfsörugg-
ari en hinar þegar kom að því að
semja um kaup og kjör.
Þetta er meðal þess sem lesa má
úr breskri þjóðarrannsókn á
þroska barna sem nær til allra
þeirra sem fæddir eru í tiltekinni
viku árið 1958 í Englandi, Skot-
landi og Wales sem hefur verið
fylgst reglulega með síðan.
Niðurstöðurnar sýna að lítill
munur var á þeim sem gengu í
kynskipta skóla og blandaða, með
nokkrum undantekningum þó.
Þannig voru stúlkur úr kyn-
skiptum skólum líklegri til að velja
stærðfræði og raungreinar á
menntaskólaaldri og drengir úr
kynskiptum skólum líklegri til að
velja tungumál og bókmenntir.
Þessi munur hélst fram á háskóla-
árin hjá stúlkunum þar sem þær
voru líklegri til að velja náms-
greinar þar sem karlar voru í
meirihluta.
Bresk rannsókn á þroska barna
Fá hærri laun án stráka
Hinn 31. ágúst verður ný náms-
leið á meistarastigi við Háskólaset-
ur Vestfjarða formlega sett af Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra.
Um er að ræða meistaranám í
haf- og strandsvæðastjórnun.
Með tilkomu námsleiðarinnar
verður í fyrsta sinn boðið upp á
staðbundið háskólanám sem alfar-
ið er kennt á Vestfjörðum.
Haf- og strandstjórnun
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Tíu ára krakki getur prófað sig áfram í
þessu því vefurinn samanstendur af
kynningum og prófum.
menntun
F&F kort ehf. • Suðurlandsbraut 10, Rvk. 2. hæð • S. 568-3920 • ff@simnet.is
Nýjar vörur
frá Pause Café
Galakjólar
frá France Mode
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.