24 stundir - 26.08.2008, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 24stundir
Það er ekki hægt að segja annað en það sé sterkur svipur með söngv-
urunum Geiri Ólafssyni og Eyþóri Inga Gunnlaugssyni, sem bar sigur
úr býtum í sjónvarpsþættinum Bandið hans Bubba. Báðir skarta fal-
lega ljósum makka og hafa einstakan hæfileika til að bræða hjörtu yng-
ismeyja úr kílómeters fjarlægð. Ekki skemmir það svo að báðir geta
sungið eins og englar þó svo þeir félagarnir feti ólíkar brautir í tónlist-
arbransanum.
Tvífararnir í tónlistarbransanum
með enskumælandi leikurum.
Í myndinni leikur Didda ljóð-
skáldið Önnu er hefur unnið fyrir
sér með því að selja marijuana til
sívaxandi kúnnahóps. Þegar hún
svo ákveður að hætta í bransanum
og selja kúnnalista sinn hæstbjóð-
anda fer allt í bál og brand. Ef til
vill hefur viðfangsefnið stuðað við-
kvæma íslenska gagnrýnendur. „Ég
held að það hafi eitthvað með það
að gera. Kannski finna þeir það
ekki í sér að vera að hrósa ein-
hverju í hástert sem er nánast ólög-
legt umfangsefni. Kannski út af því
að það er ekki verið að rakka reyk-
ingar niður heldur er nálgunin í
myndinni að þetta sé eðlilegur
hluti af lífinu. Margir virðast vera á
móti þeirri nálgun,“ segir Hlín.
Velgengni nýjustu kvikmyndar
Sólveigar Anspach erlendis er þvert
á móttökur íslenskra gagnrýnenda
er gáfu fæstir myndinni yfir þrjár
stjörnur. Þrátt fyrir að vera rétt
komin af klippiborðinu hefur
myndin þegar unnið til verðlauna
á einni kvikmyndahátíð og sópar
nú að sér góðum dómum í erlend-
um miðlum. Nú síðast bættist í
hópinn tímaritið Variety er segir
myndin smávaxna gleði, skreytta
með töfrandi augnablikum.
„Ég fór fyrst út til Frakklands til
að sjá grófa klippingu af myndinni
fyrir nokkrum mánuðum og þá
strax var stórt dreififyrirtæki í
Frakklandi komið með áhuga. Það
gaf góðan tón og tilefni til bjartsýni
fyrir okkur,“ segir Hlín Jóhann-
esdóttir meðframleiðandi hjá Zik-
Zak, er viðurkennir að hafa orðið
hissa á viðbrögðum íslenskra gagn-
rýnenda yfir myndinni.
„Ég veit ekki hvað skal segja um
það. Ætli þetta sé ekki bara gamla
klisjan með spámanninn í eigin
föðurlandi? Hún Sólveig hefur bú-
ið lengi í Frakklandi og skilur
kannski hvað þeim líkar þar. Það
hafa margir haft gaman af þessari
mynd hérna heima en dómarnir
voru ekki í samræmi við væntingar
okkar og það sem síðar hefur kom-
ið í ljós erlendis.“
Kvikmyndavefurinn Screen-
daily.com fjallaði um myndina á
vef sínum í síðustu viku og spáir
myndinni mikilli velgengni og seg-
ir hana vel fallna til endurgerðar
Viðbrögð erlendra gagnrýnenda við Skrapp út eru þvert á dóma íslenskra blaða
Skrapp út Þrátt fyrir slaka dóma í íslenskum miðlum hefur ekki dregið úr aðsókn á
myndina. Framleiðendur vonast til að vaxandi áhugi á myndinni haldi henni lengi í bíó.
„Enginn er spámaður í eigin landi“
24stundir/Árni Sæberg
Samkvæmt breska dagblaðinu
The Daily Telegraph er leikstjórinn
Chris Nolan farinn að huga að því
að velja leikkonu til að leika katt-
arkonuna fyrir þriðju Batman-
myndina. Sú leikkona sem hann
vill einna helst að taki hlutverkið
að sér er engin önnur en hin 62 ára
gamla söngkona Cher.
„Cher er fyrsti valkostur Nolans
til að leika kattarkonuna. Hann vill
að hún leiki hana eins og dað-
urdrós á efri árum ævi sinnar,“
sagði háttsettur starfsmaður War-
ner Bros.-kvikmyndaversins við
Telegraph og bætti því við að sú
persóna sem myndi sjást í þriðju
Batman-mynd Nolans yrði frá-
brugðin öllum fyrri birting-
armyndum.
„Hin nýja kattarkona mun verða
algjör andstæða við þær persónur
sem Michelle Pfeiffer og Halle
Berry hafa skapað.“
Nú þegar hefur mikið verið rætt
um hvaða persónur og leikarar
muni koma fram í næstu mynd
Nolans um hina svartklæddu hetju
Gotham-borgar. Mikið hefur verið
rætt um að Johnny Depp taki að
sér hlutverk The Riddler, sem Jim
Carrey lék á sínum tíma, en það
hefur ekki verið staðfest. vij
Nýja kattarkonan er … Cher?
Splunkunýtt myndband Sigur
Rósar við lagið Inni í mér syngur
vitleysingur er komið á netið. Því
var fyrst sleppt út á myspacetv
fyrir helgi en það fer í spilun á
MTV-sjónvarpsstöðinni innan
skamms.
Myndbandið var tekið upp á
Náttúrutónleikunum í Laugardal
en hljóðrásin undir er þó af plöt-
unni sjálfri. Lagið er án efa með
því vinsældavænna er sveitin hef-
ur gefið út til þessa. Sveitin er
þekkt fyrir góð myndbönd en
MTV í Bretlandi valdi Svefn-G-
Engla í hóp bestu myndbanda
allra tíma.
Nýtt myndband frá Sigur Rós Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
ÉG ÆTLA AÐ LENDA NÚNA KALLI ,
ÉG KANNAST EITTHVAÐ VIÐ
GAURINN SEM ER AÐ FARA ÚT MEÐ
RUSL IÐ HEIMA HJÁ MÉR
STÆRSTA HLUTVERK HENNAR Í LÍFINU
VAR AÐ VERA MÓÐIR ÞRIGGJA BARNA.
HLUTVERK HENNAR SEM RÍKUR
HVÍTFLIBBI VAR Í ÖÐRU SÆTI
Bizzaró
Góðar og slæmar
fréttir. Steini stökk út
um skrifstofugluggann
hjá sér og lést sam-
stundis. ... Já, ótrúlegt ...
... en hann lenti á
forstjóranum ... Þakka
þér fyrir það!!
MYNDASÖGUR
FÓLK
24@24stundir.is a
Kannski finna þeir það ekki í sér að
vera að hrósa einhverju í hástert sem
er nánast ólöglegt umfangsefni.
fréttir
Grennandi
meðferð
Rétt verð 55.700 kr.
hringið núna í síma 577 7007
CELLÓNUDD: Kemur
blóðrásinni af stað, hjálpar til
við frekara niðurbrot og losar
líkamann við eiturefni.
HÚÐBURSTUN: Opnar
húðina og gerir leirnum kleift
að fara vel inn í hana.
HLJÓÐBYLGJUR: Brjóta
niður fitu.
VAFNINGAR: Leir er
borinn á húðina sem gerir
hana stinna, silkimjúka og
er jafnframt mjög vatns-
losandi. Síðan er notaður
Universal líkamsvafningur
en með honum missir þú
að minnsta kosti 16 cm í
hvert skipti.
FLABÉLOS: Að lokum
er gott að fara í nokkrar
mínútur í Flabélos tækið.
Sumartilboð
29.200 kr.
TVÍFARARNIR