24 stundir - 26.08.2008, Side 35
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 35
Orðrómurinn um yfirvofandi
skilnað poppdrottningarinnar
Madonnu og eiginmanns hennar
Guy Ritchie virðist ekki hafa ver-
ið á rökum reistur því hjóna-
kornin endurnýjuðu hjúskap-
arheit sín á dögunum. Athöfnin
fór fram í Kabbalah-miðstöð í
London og voru afar fáir gestir
við athöfnina. Heimildarmaður
Daily mail segir að hjónin hafi
ljómað af hamingju. vij
Enginn skiln-
aður á næstunni
Leikstjórinn Kevin Smith segist
vera búinn að sjá nýja Star Trek-
mynd leikstjórans J.J. Abrams og
hann heldur vart vatni yfir því
hve góð hún er og hversu vel leik-
ararnir standa sig. Smith sá, að
eigin sögn, hálfkláraða útgáfu af
myndinni en myndin verður
frumsýnd í kvikmyndahúsum í
maí á næsta ári. „Allir þeir sem
höfðu einhverjar áhyggjur þurfa
þess alls ekki,“ sagði Smith. vij
Kevin Smith
elskar Star Trek
Bandaríski tískuhönnuðurinn
Marc Jacobs hefur valið rúss-
neska stelpnadúettinn t.A.T.u
sem andlit nýjustu haust- og vetr-
artísku sinnar. Rússnesku snót-
irnar vöktu heimsathygli með
lögum á borð við All the things
she said en hegðun stúlknanna,
sem döðruðu skemmtilega við
samkynhneigð, vakti þó yfirleitt
mun meiri athygli. vij
Nýjar talskonur
Marcs Jacobs
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
The Rocker á jafnmikið skylt við
rokktónlist og Kiss eða Coldplay.
Annars vegar er verið að fjalla um
glysrokk og hins vegar angurvært
raunarpopp, en þessar tvær tónlist-
arstefnur eiga lítið sameiginlegt
annað en það, að vera kennt við
rokktónlist í þessarri annars ágætu
grínmynd.
Myndin gæti allt eins verið ævi-
saga Pete Best, fyrrum trymbils Bítl-
anna, sem Brian Epstein rak árið
1962, með samþykki hinna þre-
menninganna, John, Paul og
George. Angist Best hlýtur að hafa
verið mikil, því varla hefur vel-
gengni Bítlanna farið hljóðlega
fram hjá honum.
Þegar Fish er svikinn af félögum
sínum og rekinn sem trommari úr
glysrokkhljómsveitinni Vesúvíus ár-
ið 1986, tekur andleysi og meðal-
mennska daglegs lífs við af villtum
og skemmtilegum rokklífsstíl ní-
unda áratugsins, meðan fyrrum fé-
lagar hans upplifa drauminn og slá í
gegn. Þegar Fish býðst að tromma á
skólaballi í hljómsveit frænda síns
20 árum síðar verður barnaleg
hegðun hans (og ágætur trommu-
leikur) til þess að koma sveitinni á
kortið, í gegnum youtube að sjálf-
sögðu. En þegar hljómsveitinni
býðst að hita upp fyrir hina heims-
frægu Vesúvíus, eru góð ráð dýr.
The Rocker sækir í minni margra
annarra mynda. Þar bera hæst
Rockstar, School of Rock, Almost
Famous og dálítið af Waynes World.
Ekki endilega slæm blanda, en
handritið er svolítið þvælt og laust
við frumleika. Aðalleikarinn Rainn
Wilson stendur sig með prýði, en
hann er þekktastur fyrir leik sinn
sem Dwayne í amerísku útgáfu af
The Office. Skemmtileg mynd, en
alls engin snilld.
Annað færi á heimsfrægð
Leikstjóri: Peter Cattaneo
Aðalhlutverk: Rainn Wilson, Christina
Applegate, Josh Gad
The Rocker