Morgunblaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 21
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 21                             ! "  # $        $ %  %   & "        '     (       "    !  )     *   '  !      "    '   +    ") '   '  )       "  )       ## '   " *              '  , -   '    ./0123.4526 789 :;<<       8= >40.? @<@9                                            !  "     #   $ #        @@                                - kemur þér við Sérblað um bíla fylgir blaðinu í dag Seldu Urriðafoss fyrir 40 milljónir króna Þingvallavatn verður að grænmetissúpu Unga fólkið vill flytja til útlanda Í 30 stiga gaddi á Snæfellsjökli Dönsurum Eurobands- ins skipt út fyrir bakraddasöngvara Hvað ætlar þú að lesa í dag? og ráðherrana og teppa heimreiðar þeirra einn morguninn og tefja för þeirra til vinnu, til að sýna fulla alvöru í mál- inu. Koma upp svona smá „frönsku ástandi“. Skuldlaus ríkissjóður getur vel létt af álögum á eldsneytið, sem gerir ekkert annað en að hækka í verði. Ríkissjóður gæti einnig lækkað álögur á matvæli en er þá komið að öðru sem brennur heitt á Víkverja þessa dagana. Mótmæli ættu sömuleiðis að beinast að annarri stétt þjóðfélagsins, þ.e. matvörukaupmönnum, en sumir þeirra hafa ítrekað komist upp með að tala hreinlega upp matarverðið eins og ekkert væri eðlilegra. Koma fram í fjölmiðlum og segja að svo og svo mikil þörf sé á að hækka mat- arverð. Það er auðvitað glórulaust ef menn ætla að fara að hækka verðið um 25-30%. Viðbrögð utanríkis- ráðherra við þessu um helgina voru hárrétt, það á ekki að láta kaup- mennina komast upp með þetta. Þeir verða að sýna samfélagslega ábyrgð í verki. Vissulega hefur hráefnisverð hækkað, laun hækkað lítillega og gengið verið óhagstætt, en það rétt- lætir samt ekki svo gífurlegar hækk- anir. Víkverji hvetur neytendur til þess að vera á varðbergi, og mótmæla hækkunum með því einfaldlega að versla ekki við þá kaupmenn sem munu reyna að misnota sér núver- andi aðstæður í þjóðfélaginu. Flutn- ingabílstjórar eru orðnir sjóaðir í mótmælum og gætu t.d. neitað að flytja varning til slíkra verslana. Það væri viðbragð í lagi! Víkverji styðurheilshugar að- gerðir flutningabíl- stjóra síðustu daga, þar sem bensínhækk- unum hefur verið mót- mælt og aðgerðaleysi stjórnvalda í því að koma til móts við hækkandi eldsneyt- iskostnað. Auðvitað á að gæta fyllsta öryggis í slíkum mótmælum, þannig að þær hindri ekki för neyðarbíla í útkalli, en það er engu að síður kominn tími til að á bílstjórana verði hlustað. Í raun ættu allir bílstjórar þessa lands að mót- mæla með einhverjum hætti, þó ekki væri nema að fjölmenna á Aust- urvöll og þeyta flautur. Einnig væri hugmynd að leita uppi þingmennina      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Ítímaleysi nútímamannsins vilja langar góðar stund-ir til kynlífsiðkana stundum verða útundan, sér-staklega hjá þeim sem hafa verið lengi saman oghvað þá ef hversdagsstreðið rænir fólk bæði tíma og orku. Slíkt vandamál er ekki nýtt af nálinni, til dæmis söng Spilverk þjóðanna á áttunda áratugnum um fólk sem er „of þreytt til að sofa hjá“ vegna húsbygginga. „Kynlíf fyrir önnum kafið fólk“ er einmitt undirtitill bókarinnar Sjortarar sem nýlega kom út hjá JPV- útgáfunni, en hún virðist vera hugsuð sem hjálpartæki fyrir pör í tímahraki sem vilja bæta svolítilli spennu í kyn- lífið og kynna sér leiðir, hugmyndir og „reglur“ um sjort- ara. Um að gera að sprella svolítið Það er óneitanlega örvandi að kanna nýjar leiðir í kyn- lífi, rétt eins og með mat og aðrar nautnir, og sjortarar eru tilvalin leið til hverslags uppátækja og um að gera að taka djarft frumkvæði. Það eflir kynhvötina að leita óvæntra staða til slíkra athafna og það skapar æsandi spennu ef viss hætta er á að vera staðin að verki. Full ástæða er til að hvetja fólk til fíflagangs, kynlíf er jú miklu skemmti- legra ef það er ekki háalvarlegt eða hátíðlegt. Vert er að taka fram að tæplega stendur ending sambands og fellur með kynlífsleikjum, einfaldlega vegna þess að þó svo að kynlíf spili stórt hlutverk í sambandi fólks, þá er ansi margt annað sem vegur þungt og skiptir máli fyrir „límið“ sem heldur fólki saman. Sjortarar duga skammt til að laga alvarlegan vanda í samlífi para. Stolnar stundir æsandi Aftur á móti er nokkuð ljóst að það skaðar tæplega nokkurt samband að nota hádegið eða annan tíma áður en fólk er orðið úrvinda eftir langan dag til að leika sér óvænt. Stolnar stundir í eldhúsinu, kannski rétt áður en gestir koma í mat, geta verið mjög skemmtilegar og að rífa sig úr fínu fötunum örskömmu áður en haldið er út í boð hjá öðrum, getur líka alveg bjargað kvöldinu. Og ekki má gleyma að vinnustaðurinn býður upp á ýmsa mögu- leika. Að fá sér nettan sjortara á óvæntum stöðum er hressandi tilbreyting frá gamla vananum heima í rúmi. Og möguleikarnir eru nánast ótæmandi, þetta snýst jú um hugmyndaflug og vilja. Þeir sem búa í sveitinni ættu ófeimnir að fá sér einn stuttan í fjósinu, hlöðunni eða úti á túni þegar sólin skín hvað skærast. Og það tekur enga stund að sópa mesta heyinu úr garðanum í fjárhúsinu yfir veturinn og skella sér á fjalirnar. Svo eru það hinir ýmsu opinberu staðir sem margir horfa löngunaraugum til þeg- ar kemur að sjorturum, eins og kvikmyndahús, leikhús og jafnvel kirkjugarðar. Gerði Þórbergur það ekki undir leiði hér forðum? Flugvélar hafa einnig örvað marga til dáða á þessu sviði. Langflug getur jú verið leiðigjarnt og um að gera að brjóta upp stemninguna með því að dúlla sér undir teppinu eða bregða sér saman á klósettið. Aðeins fyrir fagra og flotta? Hafa má nokkra skemmtun af bókinni Sjortarar en þótt myndirnar séu vissulega litríkar og settar fram á skemmtilegan hátt má velta fyrir sér hvort nauðsynlegt hafi verið að hafa fólkið sem þar situr fyrir einvörðungu ungt, „fallegt“ og með „fullkominn líkama“. Einhver gæti lesið þau skilaboð út úr því að skemmtilegt kynlíf sé aðeins fyrir fagra og flotta. Ef einhverjar myndanna hefðu verið af „venjulegu fólki“ og á misjöfnum aldri hefðu fleiri getað samsamað sig þeim. Og hvað með samkynhneigða? Í þess- ari bók eru engar myndir eða hugmyndir fyrir slíkt fólk. Getur verið að í öllu hispursleysinu sem sagt er einkenna bókina sé samt sem áður ekki pláss fyrir samkynhneigða? Utandyra Fjölmargir möguleikar eru í sveitinni til að bregða á leik og finna nýjar leiðir í samlífinu. Hal í hádeginu getur bjargað deginum Skemmtilegir sjortarar geta verið krydd í tilveruna, sérstaklega þegar neistinn er farinn að dofna hjá þeim sem hafa verið lengi saman. Kristín Heiða Kristinsdóttir spáði í fyrirbærið og gluggaði í bók sem gefur ýmsar hugmyndir að hrað- soðnum ánægjustundum. Eldhúsið Við undirbúning matarboðs getur verið gam- an að fá sér einn stuttan rétt áður en gestirnir mæta. khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.