Morgunblaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Anna GuðrúnAntonsdóttir fæddist á Siglufirði 17. júlí 1935. Hún lést af slysförum 19. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Ok- tovía Sæmunds- dóttir f. 7. október 1900, d. 5. febrúar 1982 og Björn Ant- on Kjartansson, f. 8. september 1904, d. 30. ágúst 1935. Syst- ir Önnu er Gunn- laug Sæunn, f, 18. janúar 1932. Anna giftist Ásgrími H. Aðal- steinssyni, þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Guðrún Bjarnheið- ur, f. 10. 10. 1956, maki Guðjón Gunnar Þórðarson, þau eiga tvær dætur og eitt barnabarn. 2) Að- alsteinn Sigurður, f. 20.11. 1959, maki Herborg Berndsen, þau eiga tvær dætur og tvo syni. Barnabörn þeirra eru 5. 3) Óm- ar Anton, f. 30.4. 1962, maki Valborg Erna Ingólfsdóttir, þau eiga tvo syni, fyrir á Ómar tvær dætur. Þau eiga tvö barnabörn. Anna bjó síðar í nokkur ár með Árna Bjarnasyni, fyrrum sjómanni, d. 2005. Anna fluttist til Reykjavíkur fljótlega eftir andlát föður hennar ásamt móður sinni og systur,og bjó þar nær alla tíð, að undanskildu u.þ.b. einu ári, en þá bjó hún í Hveragerði, og síð- ustu æviár bjó hún í Hafnarfirði. Útför Önnu verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Í Spámanninum segir: „Og hvað er það að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns?“ Elsku, elsku mamma mín. Nú hafa öldur lífs þíns lægt og þú komin þangað sem þú varst svo viss um að biði þín svo miklu, miklu betra. Ég vil þakka þér fyrir allt, sem þú gafst og kenndir mér. Hvað væri ég án þíns veganestis? Kærleikur þinn og hlýja munu allt mitt líf búa innra með mér. Góður Guð geymi þig og blessi. Þín dóttir, Guðrún. Elsku amma. Loksins fékkstu æðstu ósk þína uppfyllta, að yfirgefa þennan heim. Þú trúðir því að þá færum við á betri stað þar sem sálin héldi áfram að ,,lifa.“ Stað þar sem þér líður mun betur á en þér hefur liðið síðustu ár- in. Einkennilegt hvernig lífið getur farið með suma eins og það fór með þig, bæði á líkama og sál. Ævi þín var ekki auðveld. Kannski var það ekkert skrítið að þú varst reið og bitur út í lífið. Ég hef alltaf sagt að maður skapi sína eigin hamingju sjálfur, ekki það að ég fari alltaf eftir því, en stundum þarf maður aðstoð við að skapa hamingjuna. Ég vildi óska að ég hefði getað fært þér meiri gleði og hamingju, ég var sjálfsagt ekki nógu dugleg við að reyna það. Ég var farin að minnka heimsóknir mínar til þín einfaldlega vegna þess að mér fannst oft og tíð- um erfitt að vera í kringum þig. Mér fannst þú svo breytt og minning mín um þig var þessi yndislega amma sem ég hélt mikið upp á og sóttist eftir að vera með, breyttist allt í einu í leiða, bitra, ,,gamla“ konu. Ég saknaði þín eins og þú varst og átti erfitt með að sætta mig við hvernig þú varst orðin. En það er engin af- sökun fyrir því að sinna ekki ástvini sínum. Ég vildi óska að ég hefði sýnt líðan þinni betri skilning í stað þess að vera svekkt yfir því að þú varst ekki lengur sama amma. Það er sárt að vera vitur eftir á. Í minningunni var ég mikið hjá þér og minnist ég þess að við spjöll- uðum mikið saman. Ég man eftir okkur í Írabakkanum, sérstaklega eftir slánni í hurðaropinu þar sem hægt var að hífa sig upp. Ég fékk að standa á stól til þess að prófa og fannst það æðislegt. Flestar minn- ingar mínar tengjast Öldugötunni. Þangað kom ég oft, enda mjög hrifin af þessu gamla húsi með sögu fjöl- skyldunnar, sem var svo seinna tek- ið frá þér. Hjá ömmu var alltaf til ís og hægt að fara upp á loft til Palla í prins og kók. Það brást varla að þú sast við borðstofuborðið með gömlu, lúnu spilin þín að leggja kapal. Þegar ég varð unglingur krafðist ég þess oft að fá að koma með þér í vinnuna og hjálpa þér að skúra, þú varst svo glöð að fá aðstoð. Einnig minnist ég ferða okkar á Hressó þar sem við fengum okkur köku og drykk, þér fannst svo gaman að fara á kaffihús. Við deildum áhuga okkar á andleg- um málefnum og gátum við setið tímunum saman að spjalla um það og oft fékk ég þig til að spá fyrir mér í bolla, langur maður, lukkustóð og barn. Ég gleymi seint jólunum 2005 þegar ég og Lísa systir gáfum þér Trítil. Gleðin sem skein í augum þín- um var óborganleg, hann veitti þér svo mikla hamingju.Upp á síðkastið varstu búin að vera mun glaðari en oft áður og voru síðustu jól frábær. Mér þótti svo vænt um það þegar mamma sagði mér að þú hefðir verið að tala um hvað Brynja Vigdís 4 mánaða dóttir mín væri falleg. Þú ætlaðir að eyða páskunum með okk- ur uppi í bústað en það varð ekkert úr því frekar en hádegismatnum okkar, sviðunum. Elsku amma mín, vonandi líður þér vel nú og finnur gleðina í hjarta þínu, við hittumst síðar. Ég elska þig. Þitt barnabarn, Karen Björk Guðjónsdóttir. Elsku amma mín. Í dag kveð ég þig og það er svo margt sem berst í huga mér. Mér finnst svo skrýtið að hugsa til þess að þú sért farin. Það eru ótal minn- ingar sem ég á um þig sem ég mun alltaf varðveita. Þegar ég hugsa til baka þá man ég hvað mér þótti alltaf svo gaman að koma til þín. Alltaf knúsaðiru og kysstirðu mann í bak og fyrir og spurðir hvað væri að frétta. Þér fannst svo spennandi að vita hvað væri að gerast hjá manni og hafðir brennandi áhuga á því sem fólkið þitt tók sér fyrir hendur. Við sátum oft og spjölluðum lengi vel um allt milli himins og jarðar, því þannig varstu, elsku amma mín, það var hægt að spjalla um allt við þig. Og ekki má gleyma að þú passaðir vel upp á að enginn færi með tóman maga úr þínum húsum, og er mér það minnistætt þegar ég stundaði nám við Iðnskólann að í hádegis- hléum var best að koma til þín og fá gott að borða. Það er svo stutt síðan ég hitti þig síðast og ég man að ég sagði þér að í páskafríinu lofaði ég að koma að heimsækja þig, ég man að þú varst svo glöð og sagðir mér að þú hlakk- aðir til að fá mig í kaffi og spjall. Því miður komst ég ekki til þín, amma mín, en ég veit það í hjarta mér að þú ert hjá mér og munt alltaf vera hjá mér. Þú verður einn af falleg- ustu englunum á himnum sem munt vaka yfir okkur og fylgja okkur út í lífið. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér, elsku amma mín. Hvíl í friði. Þín Svanhildur. Ég man eftir því hvað mér fannst alltaf gott að kúra í hálsakotinu hjá ömmu þegar ég var lítil og vorum við frændsystkinin dugleg að heim- sækja hana á Öldugötuna og fá að gista hjá henni. Það er eitt skipti sem er mér ofarlega í minni. Það var 16. júní og ég hef verið svona 8 ára, ég og Aníta frænka fengum að gista hjá ömmu. Um kvöldið þegar við átt- um að fara að sofa gátum við ekki sofið fyrir hávaða og tónlist neðan úr bæ, endaði það með því að við feng- um að kúra uppi í hjá ömmu. Í seinni tíð var alltaf gaman að kíkja á ömmu í kaffi það var hægt að spjalla við hana um allt milli himins og jarðar. Því miður fékk ég ekki tækifæri til að kveðja ömmu þar sem hún kvaddi þennan heim með hraði. En ég veit að hún er komin á góðan stað og fullt af fólki sem tekur á móti henni þar. Elsku amma mín, takk fyrir allt sem þú kenndir mér þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Blessuð sé minning þín. Þú, Guð, sem stýrir stjarnaher og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. (Valdimar Briem.) Hvíldu í friði, elsku amma. Þín Elínborg Elísabet. Kæra Anna G. Antons. Við systurnar frá Siglufirði viljum þakka þér hjartanlega fyrir öll góð kynni sem við áttum við þig og börn- in þín frá þeim tíma þegar við bjugg- um hjá ykkur í Samtúni 4 í Reykja- vík. Það var á árunum 1965-1966 sem við bjuggum hjá ykkur og vorum að stíga fyrstu sporin til sjálfstæðis úr foreldrahúsum. Þá reyndist þú okk- ur ávallt vel og myndaðist vinátta sem haldist hefur til þessa dags. Oft var glatt á hjalla hjá okkur í Samtúninu og við eigum margar góðar minningar frá þessum tíma. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Börnum Önnu G. Antonsdóttur og fjölskyldum þeirra færum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Hanna Halldórsdóttir. Halldóra Halldórsdóttir. Anna Guðrún Antonsdóttir ✝ Þórður Þórð-arson fæddist á Akranesi 5. októ- ber 1933. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 19. mars síðastliðinn. For- eldrar hans voru Þórður Sigurðsson, skipstjóri á Akra- nesi, f. 30. janúar 1901, d. 30. apríl 1965, og Anna Ingvarsdóttir, f. 1. mars 1910, d. 28. des. 1971. Þórði Sigurðssyni og Önnu Ingv- arsdóttur fæddust eftirtalin börn: 1) Jónína, f. 4. október 1932, d. 11. janúar 1933, 2) Þórður, f. 5. október 1933, d. 19. mars 2008, 3) Jónína, f. 12. jan- úar 1935, d. 11, október 2006, 4) Rafn, f. 2. apríl 1936, d. 19. júní 1936, 5) Rafn, f. 3. ágúst 1938, d. 21. ágúst 2006, 6) Guðrún, f. 7. apríl 1943, d. 21. október 1977, og 7) Ingvar, f. 20. október 1946. Hinn 9. maí 1959 kvæntist Þórður Höllu Þorsteinsdóttur, f. 7. maí 1936. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson, f. 24. júní 1896, d. 13. apríl 1967, og Gíslný Jóhannsdóttir, f. 3. júlí 1911, d. 14. jan. 1993. Dætur Þórðar og Höllu eru: 1) Anna, viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi, f. 21. sept. 1960, gift Kristjáni Sveinssyni sagn- fræðingi, f. 21. apríl 1960. Börn þeirra eru María, háskólanemi, f. 22. febr. 1984, og Eyvindur, háskólanemi, f. 28. maí 1986. 2) Gíslný Bára þroskaþjálfi, f. 25. nóv. 1961, gift Halldóri Júl- íussyni trésmið, f. 9. febr. 1957. Sonur Gíslnýjar Báru og Einars Ólafssonar tölvunarfræðings, f. 23. nóv. 1960, er Bergur, jarð- eðlisfræðingur, f. 15. júní 1981, kvæntur Gyðu Þórhallsdóttur ferðamálafræðingi, f. 23. mars 1981. Börn Halldórs eru: Hauk- ur, f. 31. jan. 1985, Halldóra, f. 25. maí 1986, og Sigurbjörg Erna, menntaskólanemi, f. 10. okt. 1989. Hún ólst upp á heimili Halldórs og Gíslnýjar Báru frá unga aldri. 3) Þóra, stærðfræðikennari, f. 24. júlí 1964, gift Helga Helgasyni rafiðnfræðingi, f. 19. ágúst 1962. Börn þeirra: a) Áróra, há- skólanemi, f. 20. nóv. 1987, og Birkir, grunn- skólanemi, f. 8. júlí 1993. Sonur Þóru og Þrastar Reynissonar, matreiðslumanns, f. 6. okt. 1960, er Þórður, f. 4. maí 1981, mat- reiðslumaður. Sambýliskona Þórðar er Áróra Rós Ingadóttir framreiðslumaður, f. 27. maí 1982. Börn þeirra eru Tristan, f. 16. des. 2003, og Thelma Rós, f. 26. sept. 2006. 4) Rósa, snyrtifræðingur, f. 24. nóv. 1966, gift Sigurði Haukssyni, rafvirkja, f. 4. des. 1961. Börn þeirra: a) Rósa, snyrtifræðinemi, f. 11. apríl 1988, b) Hallur, grunnskóla- nemi, f. 14. nóv. 1993. Sonur Sigurðar er Haukur, f. 27. nóv. 1980, búsettur í Noregi. Þórður ólst upp í foreldra- húsum á Akranesi. Hann hóf ungur að stunda sjó og var tog- arasjómaður fram til ársins 1972. Eftir það vann hann um skeið ýmis verkamanna- og iðn- aðarstörf á Akranesi, þar á með- al í Sementsverksmiðjunni, Hvalstöðinni í Hvalfirði og Tré- smiðjunni Akri en lengstum sem netagerðarmaður í Nótastöðinni á Akranesi. Árið 1978 lét hann byggja sér smábát sem hann gerði síðan út í 17 ár og var þá smábátasjómennskan hans að- alstarf. Þórður verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þig lofar, faðir, líf og önd, þín líkn oss alla styður. Þú réttir þína helgu hönd af himni til vor niður. Og föðurelska, þóknan þín, Í þínum syni til vor skín, Þitt frelsi, náð og friður. (Sigurbjörn Einarsson.) Takk afi fyrir góðu stundirnar sem ég átti með þér á Akranesi. Í skúrnum að vinna saman, heim- sóknirnar niður á bryggju og í sumarbústaðnum í Skorradal. Ég var alltaf velkominn til þín og ömmu. Ég á margar góðar minn- ingar um það þegar við vorum saman. Ég á alltaf eftir að sakna þín. Hallur Sigurðarson. Þórður Þórðarson ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Ásabyggð 14, Akureyri, andaðist á dvalarheimilinu Hlíð 29. mars. Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Okkar innilegustu þakkir til starfsfólks Hlíðar og annarra sem auðsýndu henni hlýju og umönnun síðustu árin. Jónína Jónsdóttir, Marteinn Jónsson, Hólmfríður Hólmgeirsdóttir, Hermann Jónsson, Sveinfríður Jóhannsdóttir, Vigdís Jónsdóttir, Guðmundur Olsen, Þorsteinn Jónsson, Lydía Helgadóttir, Jóhann Jónsson, Heiðrún Árnadóttir, Friðrik Jónsson, Jófríður Jóhannesdóttir, Anna Jónsdóttir, Sigurbjörn Vilbergsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Okkar ástkæri, ALFREÐ HJALTALÍN, Skipasundi 5, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 19. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurður Hjaltalín, Þóroddur Hjaltalín, Rósa Antonsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, BIRGIR VILHJÁLMSSON, lést af slysförum laugardaginn 29. mars. Birna Sigbjörnsdóttir, Sesselía Birgisdóttir, Ragnar Fjalar Sævarsson, Jónatan Logi Birgisson, Valdís Valgeirsdóttir, Sigbjörn Þór Birgisson, Heiðrún Brynja Birgisdóttir, Örvar Ásmundsson, Oddrún Sigurðardóttir, Sakarías Nói Fjalar og Ragnheiður Birna Ragnarsbörn, bræður og aðrir vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.