Skinfaxi - 01.11.1941, Page 32
80
SKINFAXI
fótleggurinn eins langt fram í kaststefnuna og þú getur. —
Líttu á kunningja þinn.
Vinstri fóturinn togar þá eða kippir með þessari sveiflu í
líkamann, —■ sem er dáiítið boginn aftur og fram yfir iiægri
fót, — inn í hringinn. Þetta gerist með lágu snöggu hoppi
á hægri fæti. Þegar hægri fóturinn nemur við jörðu, eru
engir vöðvar spenntir, og bognar þá hægri fóturinn og bol-
urinn í öllum liðamótum, eins og samanþrýstur gormur.
Augnabliki eftir að hægri fótur þinn liefir snert jörðina,
kemur vinstri fóturinn niður fram við hringrönd. I n n r i
rönd iljarinnar, frá hæl að tábergi, snertir jafnt, svo að
viðspyrnan verði sem ákveðnust.
Nú byrjar þú fyrst kastið, og þú verður, áður en lengra
er farið, að hafa skilið tilgang hverrar hreyfingar og að
það, sem nú kemur, byggist á tveimur meginreglum:
1. Að þú varpar kúlunni frá þér með ])ví að þrýsta eða ýta
á eftir henni.
2. Að hraðinn í öllum hreyfingum verður að fara sivaxandi
allt frá fæti og fram i fingur.
Hugsaðu þér til dæmis, að þú ætlaðir að veita einhverj-
um vænan snoppung. Þú byrjaðir með snöggri handsveiflu,
en sídrægir úr hraðanum, frá neðstu stöðu handarinnar að
vanga náungans. Sá hinn sami myndi þakka klappið, frekar
en endurgjalda vænan snoppung.
Mundu, að hér má ekkert hik verða á. Hér máttu heldur
ekki gera neina bolvindu aftur. Nei, aðeins beygju niður yfir
hægri fótinn, sem er eins og samanþrýstur gorinur, eins og
áður segir, tilbúinn að varpa af sér farginu.
Við það, að vinstri fóturinn snart jörðina, verkar hann
eins og hindrun á hreyfinguna, — mótstaða, — og beinir
aflinu upp á við.
Minnztu þess, að þú hefir setið í bíl eða á hesti, sem hefir
stanzað snögglega. Þú hentist áfram. — Vinstri fótúrinn hefir
stöðvazt snögglega og við það „hendist" likamsþunginn af
hægri fæti yfir á þann vinstri og nú þarf að fylgja á eftir.
Líkamsréttan (rétting hnés og mjaðmar), bolsnúningurinn
fram, líkamsteygjan og framskol kastaxlarinnar, sem hefur
Icgið djúpt niðri, (minnztu þess, að ef þú villl greiða hiigg
með hendi, þá seilist þú langt til), snögg handleggsréttan
og enn sneggri fingraspyrnan gerast nú i einni eldsnöggri lotu.
Líkami þinn hefir, við þessa spyrnu fram, togazt úr jafn-
vægi og vill falla áfram, en hægri fóturinn er rifinn með
í hreyfingunni og hindrar líkamann í að detta fram yfir