Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1996, Síða 50

Ægir - 01.12.1996, Síða 50
Mynd: Snorri Snorrason Sunnudaginn 17. nóvember sl. kom Súilan EA 300 (1060) til heimahaffíar á Akureyri eftir lengingu og aðrar breytingar í Pól- landi. Breytingarnar voru gerðar í skipa- smíðastöðinni Nauta í Gdynia. Hönnun breytinga og eftirlit sá Teiknistofa Karls G. Þórleifssonar á Akureyri um. Eigandi skipsins er Súlan e.h.f. en framkvœmda- stjóri fyrirtœkisins er Sverrir Leósson. Skipstjóri á Súlunni er Bjarni Bjarnason og yfirvélstjóri er Dagnýr Marinósson. FERILL SKIPS Skipið er smíðað hjá Ankerlökken Verft Glomn Fredrikstad í Noregi og hefur smíðanúmer 167 hjá stöðinni. Skipið var afhent í desember árið 1967 og er syst- urskip Súlunnar Hilmir SU 100 (10591, sem síðar varð Hákon ÞH 250. Það skip var smíðað hjá Ankerlökken Verft Florö. Hákon ÞH var seldur úr landi í nóvember árið 1987. Skipið hefur borið sama nafn frá upphafi, Súlan EA 300, og var fyrst í eigu Leós Sigurðssonar en síðan eignaðist fyrirtækið Súlur h.f. skipið. í dag er Súlan e.h.f. eigandi að skipinu en eigendur þess félags eru Sverrir Leósson og Bjarni Bjarnason. Breytingar hafa áður verið gerðar á skipinu. Fyrst ber að nefna lengingu um 5 metra í júní 1974, byggt var yfir þilfar skipsins í janúar 1975 og í byrjun árs 1978 var skipt um aðalvél. Þá var sett ný Wichmann 1324/1800 KW/hö og fór Lister Blackstone 736/1000 KW/hö úr skipinu. Þá voru settar hliðarskrúfur í skipið. Árið 1984 var útbúin skutrenna og komið fyrir grandaravindum og öðrum búnaði fyrir skuttogveiðar. Skipið fór fyrst á hefðbundnar togveiðar með fiskitroll en síðan hefur það stundað veiðar á síld og loðnu í hringnót. Einnig hefur skipið stundað rækjuveiðar í rækjutroll og aflinn verið ísaður um borð. Tæknideild Fiskifélags íslands HELSTU BREYTINGAR Súlan var lengd um 6 metra, 12 bandabil, 500 mm hvert, og smíðaðir geymar fyrir brennsluolíu í botni lengda hlutans. Smíðuö voru langskipsþil (loðnuþil) í undirlest í samræmi við þau sem fyrir eru og á milliþilfari voru smíðuð ný langskipsþil. Útsíður lesta og lestarloft eru einangraðar og klæddar. Smíðaður var nýr hvalbakur úr áli, með legufæra- og landfestibúnaði ásamt nýju frammastri (ljósamastri). Nýtt þil- farshús með íbúðum og stýrishús úr áli og nýtt ratsjár- og ljósamastur ofan á nýju stýrishúsi. Á milli stýrishúss og íbúðahæðar er millihæð, lofthæð lm. 50 ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.