Morgunblaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 30
30 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ MYNDIR EKKI SLÁ FLUGU MEÐ
LINSUR, ER ÞAÐ NOKKUÐ?
EKKI
HREYFA ÞIG!
HVERT ERT ÞÚ
EIGINLEGA AÐ
FARA?
ÉG ÆTLA
AÐ TALA VIÐ
ÁHÖFNINA MÍNA
ÞÚ ÆTTIR ÞÁ KANNSKI AÐ SKILJA
NAMMIÐ ÞITT EFTIR HEIMAÉG VIL EKKI HAFA NEINAR
KISULÓRUR Í ÁHÖFNINNI
MINNI! ÞEIR ÞURFA ALLIR
AÐ VERA
JAFN
HARÐIR
OG ÉG!
SKÆRI, AF HVERJU
ER ÞÉR SVONA
ILLA VIÐ BLAÐIÐ?
ÉG ER SVO
HRÆDDUR VIÐ
AÐ SKERA
MIG Á ÞVÍ
HANN
ER BARA
HRÆDDUR VIÐ
AÐ VERA EKKI
SÁ BEITTASTI
Í SKÚFFUNNI
TAKK FYRIR AÐ LEYFA MÉR AÐ
KOMA MEÐ ÞÉR Á ÚTSÖLURNAR.
VONANDI VAR ÉG EKKI FYRIR
NEI, ALLS
EKKI
ÉG HAFÐI ÁHYGGJUR Í FYRSTU
EN ÞAÐ HUGREKKI OG ÚTHALD
SEM ÞÚ SÝNDIR Í ÞESSUM
VERSLUNARLEIÐANGRI
FYLLTI MIG STOLTI
Æ, MAMMA...
ÉG FÆ TÁR
Í AUGUN
DRÍFUM OKKUR
HEIM ÁÐUR EN
ÞAÐ LÍÐUR
YFIR MIG AF
ÞREYTU
MMMM
MMMHH...
EKKI REYNA
AÐ TALA,
JAMESON
VIÐ BUNDUM
ÞIG VIÐ
KLUKKUNA...
SEM Á BRÁÐUM EFTIR
AÐ FALLA BEINT OFAN Á
HÖFUÐIÐ Á MARÍU LOPEZ
EKKI STUNDINNI
LENGUR
ÉG SAGÐIST ÆTLA AÐ BÍÐA
HÉR TIL KLUKKAN EITT...
ÉG GET EKKI
BORÐAÐ FLEIRI
SNJÓKORN. ÉG
ER SÖDD
HVAÐ ERTU
EIGINLEGA AÐ GERA?
ÉG ÆTLA AÐ TAKA
AFGANGINN HEIM
HANDA HUNDINUM
Áhrif heitra potta
á líkamann
Heitt og kalt vatn
hefur verið notað um
allan heim til að
bæta heilsu og vellíð-
an fólks frá örófi
alda. En hvernig lýs-
ir þetta sér varðandi
heitu pottana okkar?
Ef við skoðum ein-
frumunginn amöbu
sem lifir í vatns-
umhverfi og tekur til
sín næringu úr vatn-
inu og skilar úr-
gangsefnum frá
brennslu þeirra út í
gegnum fína húðina, er það mjög
keimlíkt og okkar mörgu frumur
gera. Amöburnar dafna og skipta
sér meðan jafnvægi er og úr-
gangsefnin safnast ekki fyrir.
Okkar frumur eiga erfiðara og
erfiðara með að losa sig við oft
eitruð úrgangsefni eftir því sem
við eldumst og getur það valdið
sjúkdómum og jafnvel dauða
frumna að lokum þótt ekki sé tal-
að um öldrunaráhrifin.
Það voru rannsóknarmenn
British Royal Infirmary sem fyr-
ir um 25 árum könnuðu þetta
með heita vatnið sem lítið hafði
verið skoðað þá og fengu eft-
irfarandi niðurstöður. Enginn
munur reyndist á notkun stein-
efnaríks vatns frá Bath í Eng-
landi og venjulegu vatni. Það var
því bara vatnshitinn sem hafði
áhrif. Hópar heilbrigðra karla og
kvenna voru látnir vera tvær
klukkustundir í 35°C heitu vatni
hverju sinni. Þvag-
myndun fólksins
varð meiri og tvöfalt
meira Na (natríum)
skildist út auk mark-
tækrar aukningar á
magni K (kalíum).
Þá minnkaði rúmmál
rauðu blóðkornanna
um 5% og seigja
blóðplasmans minnk-
aði lítillega. Hjart-
sláttur jókst um 50%
án þess þó að blóð-
þrýstingur hækkaði,
en viðnám í ytri
blóðæðum minnkaði
og gæti það skýrt
þetta með blóðþrýst-
inginn. Þá léttist fólkið um ná-
lægt hálfu kílógrammi. Bjúgur í
vöðvum minnkaði, líklega vegna
vökvataps, og var það álitið já-
kvætt.
Okkar heitu pottar eru yfirleitt
heitari en 35°C og fólk því stutt í
þeim. Mætti þó ætla að þeir hafi
svipuð áhrif. Allavega hef ég
reynt að þyngdartapið getur orð-
ið það sama og í nefndri rann-
sókn. Heitt vatnið opnar svita-
holur húðarinnar, leysir upp
úrgangsefni og mýkir vöðvana og
sé ekki verið of stutt losar lík-
aminn sig við úrgangsefni og eit-
urefni út um húðina með osmósu.
Þetta er því örugglega ein þægi-
legasta heilsuræktin.
Pálmi Stefánsson.
Ást er…
… að bíða eftir
sjóaranum sínum.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opið frá kl. 9, bingó
kl. 13.30. Skráning stendur yfir í
Jónsmessuferð 23. júní.
Árskógar 4 | Smíðastofa kl. 9-16.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dans í Ásgarði, Stangarhyl 4, sunnu-
dagskvöld kl. 20, Borgartríó leikur fyr-
ir dansi. Fundur með þátttakendum í
ferð um Sprengisand-Flateyjardal-
Fjörð á miðvikud. 23. júní kl. 13.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, ganga kl. 10, handa-
vinnustofan opin.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Opnar vinnustofur frá kl. 9.30, sein-
asta félagsvist FEBG á þessu vori kl.
13, vöfflukaffi.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar án leiðsagnar kl. 9-16.30,
prjónakaffi kl. 10, stafganga kl. 10.30.
Mánud. 21. júní er farin ferð í Dala-
sýslu m.a. komið að Eiríksstöðum í
Haukadal. Skráning á staðnum og í
síma 575-7720.
Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi kl.
11.30, brids kl. 12.30, orlofsferð 2010:
Austurland. Gist á Hótel Laka og
Norðfirði.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16.
Böðun fyrir hádegi, matur, bíó kl.
13.30, kaffisala í hléi.
Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl.
8.50, gönuhlaup kl. 9, listasmiðjan;
myndlist o.fl. kl. 9-16, gáfumannakaffi
kl. 15. Sími 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, vist/brids kl. 13,
kaffi, hárgreiðslustofa s. 552-2488,
fótaaðgerðastofa s. 552-7522.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/
kortagerð, glerbræðsla kl. 9, enska kl.
11.30, tölvukennsla kl. 13.30. Sungið
v/flygil kl. 14.30, kaffi, dansað í að-
alsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó kl.
13.30. Jónsmessuferð til Keflavíkur
23. júní kl. 14. Uppl. og skráning í
síma 411-9450.
Fátt er skemmtilegra en þegarPétur Stefánsson og Friðrik
Steingrímsson í Mývatnssveit kank-
ast á. Pétur fékk fregnir af dásam-
legu veðri í Skagafirði og orti:
Andi minn fer oft á sveim,
yfir gimstein jarðar.
Nú er gott að hugsa heim;
heim til Skagafjarðar.
Hann bætti við að gaman væri að
fá legupláss í skagfirskri mold eftir
að jarðvist lyki:
Mér eflaust liði eitthvað skár
eftir raunir harðar,
ef ég mætti una nár
í örmum Skagafjarðar.
Friðrik Steingrímsson svaraði að
bragði:
Að eiga himnasælu sveit
er sannanlega mikils virði,
og eiga merktan moldar reit,
meira segja í Skagafirði.
Þá Pétur:
Alfarið ég er á móti
að ég fái grafarreit
undir hrauni, urð og grjóti,
eins og norður í Mývatnssveit.
Friðrik svaraði fullum hálsi:
Lítil hætta á því er
að þú verðir grafinn hér,
enda leiðast mundi mér
mengunin sem kæmi af þér.
En Pétur var ósammála:
Hvar sem Pétri er potað niður,
– pöddur skríða um hold og bein,
þar mun dafna og vaxa viður
með vínberjum á hverri grein.
Og Friðrik sló botninn í þessa
skemmtilegu rimmu:
Þó efnafræðin ýmsa blekki
og eilífðin sé heljar gap,
þá rotnar Pétur eflaust ekki
eftir jarðlífs drykkju skap.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af leguplássi
og landshlutum