Fréttablaðið - 28.02.2012, Síða 6
28. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR6
Framhald
30 kennslustd. námskeið. Hentar þeim sem lokið hafa
grunnnámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu.
Hefst 7. mars og lýkur 28. mars. - Kennt mánu- og miðvikudaga
Verð kr. 29.900.- (Kennslubók á íslensku innifalin).
GEYMIÐ
AUGLÝS-
INGUNA
Grunnnámskeið
30 kennslustd. tölvunámskeið fyrir algjöra byrjendur 60+.
Hæg yfirferð með reglulegum endurtekningum í umsjá
þolinmóðra kennara. Ritvinnsla, internetið og tölvupóstur.
Hefst 8. mars. og lýkur 28. mars. - Kennt þriðju- og fimmtudaga
Verð kr. 29.000.- (Kennslubók á íslensku innifalin).
Stafrænar myndavélar 60+
Fyrir þá sem hafa lokið framhaldsnám-
skeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu.
Þátttakendur nota eigin myndavél og læra notkun og stillingu
hennar ásamt meðferð stafrænna ljósmynda í tölvu. M.a. færa
myndir úr myndavél í tölvu, flokkun, einfaldar lagfæringar,
prentun og sendingar mynda í tölvupósti.
Hefst 5. mars. og lýkur 14. mars. - Lengd námskeiðs 18 std.
Verð kr. 19.900,- (Kennslubók á íslensku innifalin).
Tölvunámskeið
fyrir heldri borgara
60+
SVEITARSTJÓRNIR Bæjaryfirvöld í Kópavogi ætla ekki
að beita mannvirkjalögum til að annað tveggja
láta rífa Norðurturninn við Smáralind eða ljúka við
bygginguna.
Fram hefur komið í Fréttablaðinu að Eignar-
haldsfélagið Smáralind ehf. telur það valda því fjár-
hagstjóni að Norður turninn sé ókláraður utan í
verslunar miðstöðinni. Eigandi Norðurturnsins er
gjaldþrota. Í umsögn skrifstofustjóra umhverfis-
sviðs Kópavogs til bæjarráðs er vitnað til þess að
Helgi Birgison skiptastjóri segi viðræður í gangi um
framtíð byggingarinnar.
„Full ástæða er til þess að taka mið af þeim
óvenjulegu efnahagsaðstæðum sem ríkja um þessar
mundir og gefa aðilum nokkuð svigrúm til þess að
leita leiða til að klára bygginguna,“ segir skrifstofu-
stjórinn sem kveður umfang verkefnisins slíkt að
tæplega komi til álita að bærinn beiti mannvirkja-
lögum og láti klára verkið eða rífa bygginguna. Eina
úr ræðið sé beiting dagsekta sem séu með lögveði í
byggingunni. Umdeilanlegt sé hvort árangursríkt sé
að beita þrotabú dagsektum.
Bæjarráð ákvað að ef viðræður um framtíð
Norður turnsins skila árangri verði kallað eftir
framkvæmdaáætlun frá nýjum eigendum. Verði hins
vegar enginn framgangur á næstu þremur mánuðum
verði kannað hvort skilyrði séu fyrir dagsektum. - gar
Niðurrif eða framkvæmdir við Norðurturn á vegum Kópavogsbæjar ekki kostur:
Dagsektir vegna ókláraðs turns
NORÐURTURNINN Bæjarráð hefur samþykkt að gera þriggja
mánaða frest til að gera áætlun um framhald framkvæmda við
húsið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Aðstoðarlögreglu-
stjóri vill ekki staðfesta að for-
svarsmenn Símans fari rétt með
efni fundar síns með honum í
fyrri viku þar sem rætt var um
mál manns sem varð uppvís að því
að skoða símtalaskrá fyrrverandi
eiginkonu sinnar.
Póst- og fjarskiptastofnun gagn-
rýndi Símann harkalega vegna
málsins í ákvörðun sem Frétta-
blaðið greindi frá í gær og boðaði
að málinu yrði vísað til lögreglu.
Síminn sendi frá sér yfir lýsingu
í gær þar sem áréttuð voru sömu
sjónarmið og for stjórinn Sævar
Freyr Þráinsson lýsti í Frétta-
blaðinu. Afsökunarbeiðni til
konunnar sem kvartaði, vegna
þess að bréf hennar týndist í heilt
ár, var ítrekuð.
Þá var í yfirlýsingunni fullyrt
að á fundi með lögreglu í síðustu
viku hafi lögregla látið í ljós sömu
sjónarmið og Síminn hafði haft í
frammi í deilum sínum við Póst-
og fjarskiptastofnun; það er að
málið hafi alla tíð átt heima á
borði lögreglu en ekki Póst- og
fjarskiptastofnunar og Símanum
hafi enn fremur verið óheimilt að
afhenda öðrum en lögreglu eða
ákæruvaldi slíkar upplýsingar.
Jón H.B. Snorrason, aðstoðar-
lögreglustjóri, staðfestir í samtali
við Fréttablaðið að hafa fundað
um
m á l ið me ð
Símamönnum í fyrri viku
en vill hvorki játa því né neita að
sá skilningur sem birtist í yfir-
lýsingu Símans eigi við rök að
styðjast. Hann segir þó ótvírætt
að hann telji að mál sem þessi eigi
að koma til kasta lögreglu. - sh
FORSETAKJÖR Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, segist þurfa
tíma til að gera upp við sig hvort
hann eigi að verða við áskorunum
um að hann gefi kost á sér í for-
setakjöri í sumar. Hann hyggst til-
kynna þjóðinni um ákvörðun sína
síðar í þessari viku eða í þeirri
næstu.
Ólafur veitti í gær viðtöku rúm-
lega 30 þúsund undirskriftum þar
sem hann er hvattur til þess að
bjóða sig fram enn á ný í sumar.
Undirskriftunum var safnað á
vefsíðunni Áskorun til forseta en
að baki söfnuninni stóðu meðal
annarra ráð herrarnir fyrr verandi
Guðni Ágústsson og Ragnar
Arnalds auk Baldurs Óskars sonar,
fyrrum framhaldsskóla kennara.
Af því tilefni boðaði forseta-
embættið til blaðamannafundar
þar sem fjölmiðlamönnum gafst
færi á að ræða við forseta um
fyrir ætlanir hans.
Á fundinum sagði Ólafur að
hann hefði í nýársávarpi sínu
talað skýrt og í einlægni um þá
ákvörðun sína að láta af embætti í
sumar. Í kjölfarið hefðu fjölmiðlar
hins vegar farið að lesa ýmislegt í
orð sín sem ekki hefði verið þar að
finna. Tók Ólafur svo til orða að
svo virtist sem menn hefðu verið
svo uppteknir við að lesa á milli
línanna að gleymst hefði að lesa
línurnar sjálfar.
„Við erum nú í þeim sporum
og það er minn vandi […] að fjöl-
margir eru ekki reiðubúnir að fall-
ast á þá niðurstöðu sem ég lýsti í
nýársávarpinu,“ sagði Ólafur
Ragnar og hélt áfram: „Þess
vegna tel ég það bæði lýðræðis-
lega skyldu mína og reyndar líka
siðferðilega að horfast í augu við
þessar óskir sem bæði hafa komið
fram í könnunum og í þessum
undirskriftum. Ég mun því taka
til skoðunar á nýjan leik þá nið-
urstöðu sem ég tilkynnti og rök-
studdi að mínum dómi allrækilega
í nýársávarpinu.“
Loks sagði Ólafur að allar vanga-
veltur um að nýársávarp sitt hafi
verið skrifað með það fyrir augum
að skapa óvissu um fyrirætlanir
sínar vera út í hött. Hann benti á
að ef hann léti af embætti í sumar
yrðu eftirlaun hans álíka há og
þau laun sem hann hlyti í embætti.
Hann hefði því ekki fjárhagslegan
ávinning af því að halda áfram. Þá
hefði hann meira frelsi með því að
hætta í sumar. „ Þannig að það er
alveg sama hvernig málið er skoð-
að. Það liggur allt þannig að það
það var mín einlæga ósk og allra í
fjölskyldunni að þjóðin myndi finna
sér aðra vegferð á þessum tíma-
mótum en að ég yrði áfram í þessu
embætti,“ sagði Ólafur Ragnar að
lokum. magnusl@frettabladid.is
Ólafur Ragnar tekur
viku til umhugsunar
Ólafur Ragnar Grímsson hyggst tilkynna hvort hann gefi áfram kost á sér sem
forseti í þessari viku eða næstu. Hann segist hafa talað skýrt um að láta af emb-
ætti í nýársávarpi sínu en verði að taka áskoranir um að halda áfram alvarlega.
BESSASTÖÐUM Í GÆR Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra, tók til máls fyrir hönd
áskorenda á Bessastöðum í gær. Guðni sagði undirskriftasöfnunina snúast um
traust, reynslu og forystuhæfni Ólafs og vísaði í kjölfarið til ákvarðana Ólafs í Icesave-
málinu og málflutnings hans fyrir Íslands hönd á erlendum vettvangi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SÆVAR FREYR
ÞRÁINSSON
JÓN H. B.
SNORRASON
Forsvarsmenn Símans árétta að lögreglan styðji málstað þeirra í deilunni við Póst- og fjarskiptastofnun:
Lögregla vill ekki staðfesta skilning Símans
Bindur þú vonir við hugsanlega
vinnslu olíu á Drekasvæðinu?
Já 76,9%
Nei 23,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú raunhæft að afnema
verðtryggingu án annarra
kerfisbreytinga á hagkerfinu?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN
31.773
kjósendur skrifuðu undir
áskorun til Ólafs Ragnars um
að gefa kost á sér á ný til
embættis forseta Íslands.