Fréttablaðið - 28.02.2012, Qupperneq 12
12 28. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
H
elgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar,
lýsti því yfir í Fréttablaðinu í gær að óhjákvæmilegt væri
að ráðast í almenna niðurfellingu á húsnæðisskuldum.
Þær aðgerðir eru þó ekki almennari en svo að þær eiga
að takmarkast við að lækka skuldir afmarkaðs hóps sem
tók verðtryggð lán á árunum 2004 til 2008 um 50 milljarða króna.
Helgi fylgir ekki nýmóðins tískustraumum og sleppir því að tala um
peningaprentun sem raunhæfa leið í þessum efnum. Hann lýðskrumar
heldur ekki um að erlendu kröfuhafarnir sem töpuðu á áttunda þúsund
milljörðum króna á bankahruninu eigi að borga niður skuldir annarra.
Helgi gerir sér grein fyrir því að sá kostnaður lendir alltaf á herðum
almennings. Hann segir orðrétt að „stór kúfur í skuldum heimilanna
er náttúrulega hjá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. Lækkun á
þeim skuldum mun enginn borga nema við sjálf“. Til að fjármagna
þessa einskiptisaðgerð vill Helgi því innleysa framtíðarskatttekjur
á frjálsan viðbótarlífeyrissparnað
og knýja lífeyrissjóði til að lækka
ávöxtun eignarsafns síns um eitt
prósent í eitt ár.
Helgi rökstyður skoðun sína
með því að nýfallinn dómur
Hæsta réttar í gengislánamálum
hafi sett hóp í samfélaginu í betri
stöðu en aðra hópa og „því sé rétt
að endurdreifa byrðunum“. Þar með er áhrifamaður innan stjórnar-
flokkanna búinn að stökkva á skuldaafskriftavagninn með fulltrúum
annarra stjórnmálaafla. Helgi hefur slegist í för með þingmönnum
Hreyfingarinnar, Framsóknarflokks og meira segja Sjálfstæðis-
flokks, sem eiga í orði að vera mestu varðhundar eignarréttarins á
Íslandi, í þeirri vegferð. Þá samþykkti flokksráðsfundur VG ályktun
á föstudag um að flokkurinn eigi að hafa „frumkvæði að því að móta
leiðir til að draga úr skuldavanda heimila og fyrirtækja. Brýnt er
að afnema verð tryggingu og leiðrétta þá okurvaxtabyrði og auknu
skuldabyrði sem hún hefur valdið“. Þverpólitísk samstaða virðist því
vera að myndast um sértæka eignatilfærslu þar sem eignir allra verða
teknar og afhentar sumum.
Á árunum 2004 til 2008 var blásin upp stærsta fasteignabóla
Íslandssögunnar. Sumir högnuðust á henni. Aðrir töpuðu. Flestir komu
ekki nálægt henni. Engin krafa er uppi um að gera þann hagnað sem
myndaðist í bólunni upptækan. Krafan einskorðast við að þjóðnýta tap
þeirra sem keyptu sér húsnæði sem tímabundið hefur tapað verðgildi.
Það svigrúm sem aðgerðin býr til nýtir sá hópur annaðhvort í neyslu,
sem skapar verðbólgu, eða í fjárfestingar. Þar mun hópurinn berjast
við aðra fjármagnseigendur sem eru fastir inni í gjaldeyrishöftum um
arðvænlegar fjárfestingar á borð við fasteignir eða verðbréf. Virði
þeirra eigna mun síðan aukast mjög hratt vegna mikillar eftirspurnar
umfram framboð. Á einhverjum tímapunkti mun bólan springa, líkt
og eðli bólna er, og virði eignanna falla á ný. Það er því ekki verið að
endurdreifa byrðunum. Það er verið að fóðra vítisvél.
Nýlegur afskriftaþorsti stjórnmálamanna er ekki til kominn vegna
skyndilegrar réttlætiskenndar. Hann er til kominn vegna þess að rúmt
ár er til kosninga og jaðarframboð sem leggja ofuráherslu á skulda-
niðurfellingar mælast með tuga prósenta fylgi í skoðanakönnunum.
Það er að renna upp fyrir stjórnarflokkunum að krafa um eignatil-
færslur muni verða risavaxið kosningamál og því sé þeim nauðsynlegt
að vera annaðhvort með slíka niðurfellingu á ferilskránni, eða með
loforð um að beita henni tilbúið þegar þjóðin gengur til kosninga.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
HALLDÓR
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
SKOÐUN
Kosningabaráttan er hafin:
Vítisvélin fóðruð
Rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson (GAT) ritar pistil sinn
hér í blaðið í gær. Þar sér hann sér-
staka ástæðu til að sneiða að minni aumu
persónu. Hann gerir það að vísu án þess
að nefna nafnið sem ég fékk frá ömmu
minni. Hann telur mig þess ekki verð-
an. Hann vísar til mín sem „sérlegs lög-
manns Alþýðubandalagsins“.
Nú er það svo að það er ekkert nýtt eða
óvenjulegt fyrir mig að menn reyni að
halda því fram að það sé ekkert að marka
það sem mér finnst. Ég sé hvort sem
er bara Alþýðubandalags maður. Þetta
hafa eigendur Íslands sagt um mig alla
mína ævi. Þetta er ókei. Ég hef aldrei
skammast mín fyrir að vera Alþýðu-
bandalagsmaður. Það sem mér finnst
skrýtið er að GAT skuli taka undir þetta.
Ég átti ekki von á því úr þessari átt. Til-
efni sneiðarinnar er álit sem ég skrifaði
ásamt Ásbirni Björnssyni og varðar hæfi
Gunnars Andersen til að gegna starfi for-
stjóra FME. Þetta álit hefur GAT ber-
sýnilega ekki lesið en er þó sérfróður um
hæfi Gunnars.
Síðan álitið var skrifað hef ég mátt sitja
undir drullumokstri úr sorp miðlunum.
Það truflar mig ekki mjög mikið. Meira
að segja hafa lekið „upplýsingar“ sem
varða einkamálefni mín. Merkileg
tímasetning. Öllu verið snúið á haus og
logið upp á mig ávirðingum. Eins og það
þurfi nú. Undir þennan söng tekur GAT.
Honum sem er svo umhugað um endur-
reisn Íslands. Það er augljóst að á hans
endurreista Íslandi verða lögmennirnir
allir sjálfstæðismenn en ekki bara 95%
eins og núna.
Þegar ég var lítill drengur og átti
heima í Álftamýrinni voru þeir sem
höfðu mikið rúmmál en lítið innihald
kallaðir pappakassar. Okkur þótti ekki
mikið til slíkra manna koma. GAT hefur
tekið sér fyrir að kenna okkur minni
mönnum góða siði í rökræðunni. Hann
hefur sagt (af því að hann er svo góður í
fótbolta) að við eigum að taka boltann en
ekki manninn. Það var og. Það er stórt
orð Hákot. Mér finnst að Guðmundur
Andri eigi að biðjast afsökunar. Annars
er hann bara pappakassi.
Góðir félagar,
Alþýðubandalagsmenn!
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Atvinnuskapandi
Vigdís Hauksdóttir sinnir fyrir-
spyrjanda hlutverki þingmanna vel.
Eins og gengur og gerist er miserfitt
að svara spurningum. Nýverið setti
Vigdís fram fyrirspurn til allra ráðherra
ríkisstjórnarinnar um það hvaða
nefndir, verkefnisstjórnir og starfs-
hópar hefðu verið sett á stofn
frá alþingiskosningum 2009.
Heimildar maður Fréttablaðsins
innan Stjórnarráðsins upplýsti að
það tæki einn starfsmann meðal-
stórs ráðuneytis um það bil viku
að svara henni. Stjórnarráðsstarfs-
menn þurfa því ekki að
óttast verkleysi í bráð.
Forseti súrrealismans
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
sem forseti flogið hátt í faðmi
útrásarvíkinga, mært þá og lastað
nokkru síðar. Það var því hæfilega
súrrealískt að sjá afrakstur Ragnars
Arnalds og Guðna Ágústssonar í gær
og hlusta á þann síðarnefnda.
Íslensku þjóðinni er
víst stefnt í voða ef
á Bessastöðum
býr ekki mað-
urinn sem þeir
hafa úthúðað í
gegnum tíðina.
Kafkaískur skilningur
Ólafur Ragnar sagði í gær að hann
hefði í nýársávarpi sínu talað eins
skýrt og mögulegt væri um það hvort
hann hygði á endurkjör. Þjóðin sem
hann er í vinnu hjá skildi hins vegar
ekkert hvað hann átti við. Frétta-
menn reyndu að fá það á hreint en
Ólafur Ragnar virti þá hins vegar
ekki svars. Embættismennirnir í
Réttarhöldum Kafka töldu sig líka
tala skýrt, þó þeir væru óskiljan-
legir. Myndast hefur skilningsgjá
á milli forseta og þjóðar. Gjá sem
hann gerði ekki mikið í að
brúa í gær.
kolbeinn@frettabladid.is
Samfélags-
mál
Ástráður
Haraldsson
hæstaréttar-
lögmaður