Fréttablaðið - 28.02.2012, Síða 18
væru 76 prósentum ólíklegri til að
þjást af elliglöpum en þeir sem
ekki dönsuðu. Athygli vakti að golf,
tennis, sund og hjólreiðar virtust
engin áhrif hafa á þróun elliglapa.
Seinni tíma rannsóknir styrkja enn
þessar niðurstöður; ekkert jafnast
á við dansinn þegar kemur að því
að hægja á elliglöpum. „Það er
samt ekki eini plúsinn við dansinn,“
segir Lizy. „Hann hjálpar fólki með
jafnvægið og ég vil meina að fólk
sem dansar reglulega sé til dæmis
mun betur sett í hálku eins og
búin er að vera í vetur, heldur en
hinir. Auk þess er svo mikil gleði í
dansinum, músíkin, hreyfingin og
félagsskapurinn haldast í hendur
við að létta fólki lundina.“
Lizy kennir tveimur hópum eldri
borgara í Garðabæ línudans auk
þess að kenna tveimur hópum línu-
dans og einum hóp sam kvæmis-
dans hjá félaginu í Reykjavík. Hún
segir námskeiðin njóta mikilla vin-
sælda. „Þeir sem byrja að mæta
halda því áfram ár eftir ár,“ segir
hún. „Það dettur út einn og einn
vegna þess að heilsan bilar, en
annars hættir fólk yfirleitt ekki
þegar það er komið á bragðið.“
Í fyrrnefndri könnun kom í
ljós að það sem hjálpaði mest í
baráttunni við elliglöpin, fyrir
utan dansinn, voru lestur og að
leysa krossgátur en áhrif þeirrar
iðju komust þó ekki í námunda við
jákvæð áhrif þess að dansa.
fridrikab@frettabladid.is
Lizy Steinsdóttir danskennari segist ekki í vafa um að dansinn hjálpi fólki að viðhalda
minninu, auk þess sem hann hafi ýmsa aðra kosti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Framhald af forsíðu
Flestar þjóðir hafa áhyggjur
af D-vítamínskorti sem hefur
aukist mikið á undanfarið.
Ný alþjóðleg rannsókn sem birt var
í American Journal of Epidemiology
sýnir samhengi á milli D-vítamíns-
skorts og offitu. Áður hafði þessari
staðhæfingu verið varpað fram án
rannsókna. Þessi nýja rannsókn
staðfestir að þarna er samhengi á
milli. Þeir sem auka inntöku á D-
vítamíni gætu í leiðinni fækkað
aukakílóum. Rannsóknin sýndi auk
þess að ungt fólk sem skortir D-
vítamín getur átt á hættu að verða
of feitt síðar á ævinni. Allir ættu
því að vera meðvitaðir um eðli legan
dagskammt D-vítamíns.
Umræðan um D-vítamínskort
hefur verið töluverð hér á landi und-
anfarið. Það er ekki að ástæðulausu
því margt bendir til þess að Íslend-
inga skorti þetta vítamín í ríkum
mæli. Umræðan er þó ekki bundin
við Ísland því hún hefur verið
hávær um allan heim. D-vítamín-
skortur hefur aukist til muna með
almennri notkun á sólvarnarkrem-
um, jafnvel í sólríkum löndum.
Nú er talað um D-vítamíntöflur
sem sólskin í boxi og kannski er
það réttmætt. Í skammdeginu hér á
landi er meiri þörf fyrir vítamín en
á suðlægari slóðum. Sagt er að fólk
sem skortir D-vítamín fái oftar kvef
en þeir sem taka það daglega. Þeir
hafi einnig lélegra ónæmiskerfi.
Feitur fiskur er ríkur af
D-vítamíni. Íslendingar voru mun
duglegri að borða fisk og taka inn
lýsi á árum áður. Fiskur ætti að
vera á borðum að minnsta kosti
tvisvar í viku.
Offita og D-vítamín
Áhyggjuefni er hversu margir þjást af
D-vítamínsskorti.
Á föstudag voru afhent verðlaun til vinnustaða og grunnskóla
sem sigruðu í sínum flokkum í vinnustaða- og grunnskólakeppni
Lífshlaupsins sem stóð yfir frá 1. til 21. febrúar. Einstaklingskeppni
Lífshlaupsins er í fullum gangi. Skráning á www.lifshlaupid.is.
Hægt er að
útbúa margs
konar drykki
sér til heilsu-
bótar. Hér er
hollur og góður
drykkur sem
hentar vel með
mat eða sem
svala drykkur
á milli mála.
Börn kunna
líka vel að
meta þennan drykk. Hann passar
auk þess vel með sterkum mat.
2 þroskaðir mangó-ávextir
2 dl hreinn appelsínusafi
2 dl hrein jógúrt
4 tsk. sykur (má sleppa)
Skrælið mangóið og skerið það í
bita. Setjið í skál eða góða könnu
og bætið öðrum hráefnum saman
við. Mixið með töfrasprota eða
setjið allt í blandara. Hellið í glas
með ísmolum. Þessi uppskrift
passar í fjögur glös.
Hollur mangó-drykkur
Verslunin flytur
40% afsláttur
af nýjum vörum.
Rým ingar sala
í Smáralind 1. mars
Létt Bylgjunnar
Alla daga kl. 19.00 og 01.00
CNN er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR
PIERS
MORGAN
tonight
Viltu breyta mataræðinu
til batnaðar á einfaldan og öfgalausan hátt?
INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T. kennir ykkur
hve einfalt það getur verið að bæta mataræðið og hvaða ráð hún hefur til þess.
ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ! Inga er búin að halda yfir
40 fyrirlestra um efnið enda nálgunin einföld, skýr og
hentar öllum sem áhuga hafa á breyttum lífsháttum.
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.18:30 - 21:00
Innifalið er mappa með
uppskriftum og fróðleik.
Verð: 4.900 kr. Nánari
upplýsingar og skráning í síma
8995020 eða á inga@inga.is
www.heilsuhusid.is
FARIÐ VERÐUR MEÐ EINFÖLDUM HÆTTI YFIR:
Hverju er hægt að skipta út og hvað kemur þá í staðinn
Hvernig hægt er að þekkja muninn á hollri og skaðlegri fitu
Hvernig þú getur haldið fullri orku allan daginn og losnað
við sykurþörf og þreytuköst
Þriðjudaginn 6. mars
kl.18:30 - 21:00 í Heilsuhúsinu
Kennslu-
gögn og
uppskrifta-
mappa!
Aðeins þessa vikuna
Allar buxur á
50% afslætti Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00