Fréttablaðið - 28.02.2012, Síða 25
KYNNING − AUGLÝSING Hjólkoppar & felgur28. FEBRÚAR 2012 ÞRIÐJUDAGUR 3
„Við bjóðum felgur og dekk í miklu
úrvali frá leiðandi framleiðendum
á heimsvísu og fyrir allar gerðir
bifreiða,“ segir Arnar og nefnir
helstu vörumerkin til sögunnar.
„Mest erum við að selja á til-
boðsverði vandaðar og fal legar
felgur frá LF Work fyrir f lestar
gerðir japanskra og kóreskra bif-
reiða,“ upplýsir hann. „Svo erum
við með fjögur merki frá All Car í
Þýskalandi; hágæða AEZ Exclusive
felgur fyrir fólksbíla og jeppa; Jafn
flottar en ódýrari Dezent felgur
fyrir fólksbíla og jepplinga; lífs-
stílsmerkið Dotz sem hentar fólks-
og sportbílum, óbreyttum jeppum
– þessar felgur eru stílaðar inn á
ungt fólk; að ógleymdum ódýrum
felgum fyrir fólksbíla frá Enzo sem
eru kjörnar fyrir þá sem kjósa ein-
faldleikann.“
Þá segir Arnar N1 selja felgur frá
Rimstock í Bretlandi, jeppafelgur
frá Ultra og jeppaálfelgur frá Al-
light Wheels. Hann minnir á að
handhafar N1 kortsins njóti sér-
stakra kjara og fái afslátt af öllum
felgum. „Nema LF Work sem
eru á sérstöku tilboði um þessar
mundir.“
Ellefu verkstæði eru rekin
á vegum N1 víðs vegar
um landið og þar af
átta hjólbarðaverk-
stæði; sex á höfuð-
borgarsvæðinu,
eitt í Reykjanesbæ
og annað á Akra-
nesi sem öll hafa
hlotið hina eftirsóttu
Michelin-gæðavottun fyrir að
fylgja vinnureglum og fyrir góða
umgengni og þjónustu. Á þeim
starfa reyndir menn sem leggja sig
fram við að veita faglega þjónustu
með fullkomnum tækja búnaði,
að sögn Arnars. „Allir staðirnir
bjóða umfelgun og flestir eru
með sérstakar vélar fyrir ál felgur
og fínni felgur,“ bendir hann á og
bætir við að á mörgum þeirra bjóð-
ist hjólbarða- og smurþjónusta og
almenn viðgerðaþjónusta.
Hægt er að kynna sér betur
vörur og þjónustu N1 á heima-
síðunni n1.is og dekkin og tengdar
vörur á N1 vefsíðunni dekk.is. sem
Arnar segir í stöðugri þróun og
vexti. „Þar má til dæmis fletta
upp dekkjamynstri ásamt
myndum og upplýsingum um
verð og sölustaði með því að
skrá í dekkjastærð. Ef stærðin
er ekki á hreinu má sækja
hana á vef Bifreiðaskrár með
því að leita eftir bílnúmerinu.“
Gæði og gott úrval
N1 er landsins umsvifamesti innflutnings- og söluaðili á felgum og býður vandaða
umfelgunarþjónustu. Arnar Tryggvason, sölustjóri N1 Fellsmúla 24, veit allt um málið.
Arnar minnir á að handhafar viðskiptakorta frá N1 njóti sérstakra kjara og fái meðal
annars afslátt af felgum. MYND/GVA
„Við seljum álfelg ur frá 26
aðilum í Þýskalandi og á Ítalíu,
með öllum þeim stimplum og
vottunum sem krafist er í vest-
rænum þjóðfélög um,“ upp-
lýsir Tinna María Magnúsdóttir
verslunar stjóri Felgur.is.
Hún segir viðskiptavini fá góðan
aðgang að myndum verslunarinnar
og að á heima síðunni geti þeir
prófað að setja mismunandi ál-
felgur undir bílinn sinn í þar til
gerðum „mátunarklefa“.
„Þar sem úrvalið er mjög ríku-
legt og margar felgur koma til
greina á sama bíl er nauðsyn-
legt að geta leiðbeint viðskipta-
vinum svo þeir fái réttar felgur á
bíla sína,“ útskýrir Tinna María.
Felgur.is rekur einnig verk-
stæði með besta fáanlega vél-
búnaði til að gera við gamlar
felgur, hvort sem þær eru brotnar,
beyglaðar, kantaðar eða jafnvel
miðjuskakkar.
„Þá tökum við að okkur að
pólý-húða felgur og gera eins
og nýjar á ný, og höfum áratuga
reynslu í breikkun felga. Við
sinnum einnig læsingum eins og
Maglock, Bedlock og MT-Lock,“
segir Tinna María.
Nýjasta varan í verslun Felgur.
is er bílljós af öllum gerðum.
„Við erum með framljós, aft-
urljós, vinnuljós og nánast öll
ljós á bílinn; LED og Xenon,
sem eru einnig með E-merktum
stimplum fyrir Evrópu. Hægt er
að skoða þetta allt á www. felgur.
is og fá leiðbeiningar um val á ál-
felgum og öðrum vörum. Þá er
ekki úr vegi að taka spreybrúsa
af afar góðum og umhverfis-
vænum felguhreinsi til að stjana
við felgurnar, en leigubílstjórar
sækja meðal annars mikið í þessa
vöru hjá okkur,“ segir Tinna.
Tekið er vel á móti viðskipta-
vinum í höfuðstöðvum Felgur.is á
Axarhöfða 16, 110 Reykjavík. GPS-
hnit: 64° 7,492‘N, 21° 49,077‘W
(IS0N93: 362.769, 405.498). Sími
er 567 3322.
Stjanað við felgurnar
Felgur.is hefur selt landsmönnum traustar og flottar álfelgur undanfarin tólf ár. Úrvalið
er ríkulegt og hægt er að máta felgur á netinu en líka að fá gamlar felgur eins og nýjar.
Hér má sjá Tinnu Maríu Magnúsdóttur, verslunarstjóra Felgur.is, með glæsilega álfelgu
í fanginu, en sjón er sannarlega sögu ríkari þegar kemur að ótrúlegu úrvali álfelga í
versluninni. MYND/GVA
HUGMYNDABÍLAR
VÖKTU HRIFNINGU
Mikið var um dýrðir á hinni
árlegu bílasýningu í Chicago
sem fór fram fyrir skemmstu.
Venju samkvæmt vöktu mesta
athygli hugmyndabílar og ný
módel sem voru frumsýnd við
það tækifæri.
Bílasýningin í Chicago er sú
stærsta sinnar tegundar í
Norður-Ameríku og hefur verið
haldin við góðan orðstír í meira
en öld. Sýningin lagðist af á
árunum 1943 til 1950 þegar
aukin framleiðsla á skriðdrekum
og herbílum í seinni heims-
styrjöldinni varð til þess að
áhugi á bílum dvínaði. Eftir að
sýningin var endurvakin með
krafti hefur hún átt vinsældum
að fagna allar götur síðan.
Lexus sýnir hugmyndabílinn LF-LC á blaðamannafundi á bílasýningunni í Chicago
fyrr í mánuðinum. NORDICPHOTOS/AFP
Upprunalegur Chevrolet Corvette frá
1953 ásamt nýju 60 ára afmælisút-
gáfunni, Corvette 427 blæjubíl.
NORDICPHOTOS/AFP
Meira í leiðinniN1 BÍLAÞJÓNUSTA | WWW.N1.IS
ENTOURAGE
16“ 16.500 kr.
BLAZE
17“ 20.500 kr.
MIRAGE
16“ 16.500 kr.
17“ 17.900 kr.
til 18.900 kr.
SATURN
14“ 13.500 kr.
15“ 14.900 kr.
16“ 17.500 kr.
18“ 22.900 kr.
MIKIÐ ÚRVAL AF
GÆÐA ÁLFELGUM
Á FLESTAR GERÐIR
BIFREIÐA