Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Síða 26

Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Síða 26
96 HELGAFELL ustu nýtingu auðlegða heimsins í þágu alls mannkynsins. Heimsstyrjöldin fyrri kollvarpaði ekki trú manna á Vesturlöndum á þessa stefnu, enda var í lok styrjaldarinnar hafizt handa um að endurreisa alþjóðasamskipti á þessum grundvelli. Fjöldi þjóða, sem áður höfðu lot- ið yfirráðum annarra, fengu nú sjálfstæði, og komið var á fót Þjóðabandalagi, er tryggja skyldi, að ákvarðanir í alþjóðamálum byggð- ust á rétti, en ekki á valdi. I efnahagsmálum var horfið aftur til gullgengis og frjálsra við- skipta. Svo fór þó, að áður en fimmtán ár voru liðin frá endalokum heimsstyrjaldarinnar hafði þessi viðleitni beðið skipbrot, bæði stjórnmálalega og efnahagslega. í heims- kreppunni miklu 1929—1933 hrundi hið frjálsa peningakerfi gullfótarins, og fjöldi þjóða greip til hafta í margvíslegri mynd. Jafnframt hófust til valda í nokkrum Iielztu ríkjum Evrópu einræðisöfl, er hvergi skeyttu um alþjóðalög og samninga, heldur gerðu mátt sinn og megin sér að átrúnaðargoði, enda leið ekki á löngu, áður en veröldinni var steypt út í nýtt ófriðarbál. Reynsla áranna 1929—1939 hafði djúp áhrif á hugsunarhátt manna og opnaði augu þeirra fyrir margvíslegum veikleikum þeirrar skipunar, sem komið hafði verið á laggirnar eftir 1918. Var því aftur hafizt handa að finna nýja lausn þessara vandamála. Menn voru enn sammála, að minnsta kosti á Vestur- löndum, að þau tvö grundvallaratriði, sem byggja bæri á, væru sjálfsákvörðunarréttur hverrar einstakrar þjóðar og frelsi í alþjóða- viðskiptum. Jafnframt gerðu þeir sér ljóst að koma þyrfti á ákveðnari reglum og sterkara aðhaldi en áður til þess að tryggja, að frels- inu fylgdi hvorki gerræði né stjórnleysi. I þessu skyni var komið á fót nokkrum alþjóðastofn- unum. Mikilvægust þeirra eru Sameinuðu þjóðirnar, en þeim var ætlað að gæta laga og réttar í heiminum og jafna alþjóðadeilur og var gefið til þess allmiklu víðtækara vald en Þjóðabandalaginu hafði verið fengið í hendur. í efnahagsmálum voru settar á fót hliðstæðar stofnanir. Eru þeirra merkastar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabank- inn, sem ætlað var að tryggja alþjóðlegt sam- starf í peninga- og gjaldeyrismálum, einkum með það fyrir augum að koma í veg fyrir alvarlegar viðskiptasveiflur. Hin nýju alþjóðasamtök hafa óneitanlega komið ýmsu góðu til leiðar og oft reynzt þarfur vettvangur fyrir umræður og samn- ingaumleitanir. Engu að síður fer því fjarri, að þau hafi reynzt það afl til bættrar sam- búðar milli þjóða, sem ætlað hafði verið. Hefur hér valdið mestu um, að þjóðir heims hafa klofnað í tvær andstæðar meginfylking- ar, sem hvorug hefur verið reiðubúin til að beygja sig fyrir atkvæðamun á alþjóðaþing- um. Jafnframt eru mörg þau vandamál, sem leysa þarf, t. d. í efnahagsmálum, svo flókin og erfið viðureignar, að úr þeim verður vart greitt af alþjóðastofnunum, þar sem sam- ræma verður sjónarmið margra tuga ólíkra þjóða. Engu að síður hefur mikið áunnizt á und- anförnum árum til aukins samstarfs og bættr- ar sambúðar þjóða á meðal, en það hefur ekki nema að litlu leyti verið hinum almennu alþjóðasamtökum að þakka, heldur nýrri teg- und ríkjasamtaka, sem hefur rutt sér til rúms og hér verða kölluð svæðabandalög. Með því er átt við bandalög ríkja í ákveðnum hluta heims, stofnuð í því skyni að vinna að sér- stökum verkefnum. En reynslan hefur leitt í ljós, að mörg vandamál, sem eru óleysan- leg á alþjóðavettvangi, eru vel viðráðanleg innan samtaka nokkurra þjóða, sem eru vanar samskiptum og skyldar að menningu og stjórnarháttum. Svæðabandalögum þessum má skipta í tvo meginflokka: annars vegar stjórnmála- og varnarbandalög, en liins veg- ar efnahagssamtök. Skal hér aðeins rætt um hin síðari. III. Hin efnahagslegu svæðabandalög hafa átt drjúgan þátt í því, að endurreisn efnahags- kerfis heimsins á grundvelli frjálsari viðskipta og vaxandi framleiðslu hefur tekizt eins vel

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.