Sveitarstjórnarmál - 01.04.1949, Síða 25
SVEITARST J ÓRNARMÁL
21
FRÁ ALÞINGI.
Alþingi íslendinga var kvatt saman til
fundar hinn n. okt. s.l.
Nokkur þýðingarmikil frv. hafa verið bor-
in fram og flest þeina flutt að tilhlutan rikis-
stjómarinnar.
Stærsta frv., að undanskildum fjárlögun-
um, er bálkur um meðferð opinbena mála.
En lagaákvæði núgildandi þar um em orðin
gömul og úrelt og var því þörf á að færa
þau til betri vegar.
Fundum Alþingis var frestað um sinn frá
20. des. 1948 til 21. jan. 1949.
Áður en frestun hófst höfðu verið afgreidd
frá þinginu 19 lög, flest varðandi fjármál,
um hækkun tolla og skatta, lán og dýrtíðar-
ráðstafanir.
Þessi lög er rétt að nafngreina:
Lög um aðstoð til útvegsmanna, er síld-
veiðar stunduðu sumarið 1948 (nr. 85 frá
1948).
Lög um viðauka við lög, nr. 50 7. maí
1946, um almannatryggingar (nr. 92 frá
r948).
Lög um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnu-
veganna (nr. 100 frá 1948).
Frumvörp, sem fram hafa verið borin og
einkum snerta sveitarstjómarmál, eru þessi:
1. Frv. um útsvör. Því var vísað til fjhn.
Ed. 18. okt. og er þar.
2. Frv. um manntal. Því var útbýtt 18. des.
3. Frv. um skipulag kaupstaða og kaup-
túna. Því var útbýtt til þingmanna 18.
okt. og var vísað til félmn. Nd., þann
9. nóv., og dvelur þar.
4. Frv. um ræktunarlönd og byggingar-
lóðir. Því var útbýtt 18. des., en er ekki
komið til nefndar.
5. Frv. urn meðferð ölvaðra manna og
drykkjusjúkra.
Rétt þykir að víkja lítillega að hverju
þessu máli.
ÚTSVÖR.
Frv. um útsvör ásamt greinargerð hefur
verið birt í „Sveitarstjórnarmálum", enda
mun það hafa verið sent sveitarstjómum til
umsagnar. En frv. þetta var borið fram á
síðasta Alþingi, en dagaði þá uppi.
Umsagnir, sem borizt hafa, gefa til kynna,
að skiptar sér skoðanir um, hvort það feli
í sér breytingar til bóta frá lögum þeim,
sem nú gilda um þessi efni.
MANNTAL.
Frv. um manntal barst þinginu fáum dög-
um fyrir þingfrestun og gafst því ekki tóm
til að vísa því til nefndar.
Miklu máli skiptir, að manntöl séu í lagi,
svo að ekki leiki vafi á um heimilisfang
manna varðandi framfærslurétt, útsvarsálagn-
ingu o. s. frv.
í frv. þessu er ráð fyrir því gert, að hrepps-
nefndir í hverjum hreppi og bæjarstjómir í
hverjum kaupstað taki manntal á tímabilinu
frá 20 .til 30. okt. ár hvert, í fyrsta skipti
1949. En almennt manntal skuli tekið um
land allt á einum og sama degi hinn 1. nóv.
þau ár, sem ártalið endar á o.
Frv. þessu fylgir svohljóðandi greinargerð:
„í öndverðum októbermánuði s. 1. fól fé-
lagsmálaráðherra þeim Jónasi Guðmunds-
syni, skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneyt-