Breiðfirðingur - 01.04.1977, Side 21
BREIÐFIRÐINGUR
19
Hellissandi. Þau eignuðust 8 börn. Danelíus andaðist 28.
október 1961.
Arla morguns þann 9. febrúar 1909 voru formenn í
Keflavík búnir að kalla menn sína til róðurs. Þetta var í
byrjun vertíðar. Magnús Ólafsson var ráðinn á bát hjá Lofti
Loftssyni formanni. Þeir voru um það bil að ýta frá þegar
Loftur segir við Magnús: „Far þú yfir til Olgeirs á Risa-
björgum, hann vantar mann. Ég ætla að lofa Guðmundi á
Hellu að vera með í dag. Ég sé að hann er að koma.“ Magn-
ús gerði það, og þetta varð honum til lífs. Þegar Loftur
kom úr róðrinum síðar um daginn, hlekktist þeim á í
lendingunni, og fórust allir, sem í bátnum voru.
Hjörtur Cýrusson átti þá heima í Keflavík og var hann
annar tveggja manna, sem sendir voru eftir slysið inn í
Ólafsvík eftir héraðslækninum. Hann var líka einn þeirra
sem vöktu í fjörunni nóttina eftir slysið og leituðu að lík-
um hinna drukknuðu. Sjö bátar voru á sjó frá Keflavík
þennan dag og voru fjórir þeirra lentir þegar slysið var.
Tveir voru því ekki enn komnir að, faðir minn og Olgeir
á Risabjörgum. Nokkru eftir slysið sést hvar faðir minn
kemur siglandi. Hann fellir seglin fram undan ,,kórnum“,
og lætur menn sína taka róðurinn að lendingunni í Kefla-
vík, honum fannst ekki vera það slæmur sjór að ekki væri
hægt að lenda þar. En honum er vísað frá lendingu, með
merkjum, og fannst honum það kynlegt. Hann vissi ekki
að báturinn sem fórst var þversum í lendingunni. Hann
sneri frá og lenti úti á Sandi. Þegar Olgeir, sem var skammt
á eftir, sá það, gerði hann slíkt hið sama. Þar biðu þeirra
fréttirnar af þessum sorglega atburði.
„Skip fórst frá Hellissandi kringum 1874. Það hét