Breiðfirðingur - 01.04.1977, Qupperneq 113
BREIÐFIRÐINGUR
111
þessu sinni 22. febr. 1976, og fóru þar fram venjuleg aðal-
fundarstörf og stjórnarkjör. Sjórnin er skipuð eftirtöldum:
Kristinn Sigurjónsson, formaður, Gyða Þorsteinsdóttir,
varaform., Brandís Steingrímsdóttir, ritari, Þorsteinn Jó-
hannsson, gjaldkeri. Meðstjórnendur, Hallgrímur Oddsson,
Sigurjón Sveinsson, Halldór Kristinsson. Endurkoðendur,
aðalmenn: Ástvaldur Magnússon og Halldór Guðjónsson,
varamaður Jóhannes Ólafsson.
20. marz 1976 var ársfagnaður félagsins í samkomuhús
inu á Seltjarnarnesi. Sóttu hana 230 manns. Hátíðin byrj-
aði með horðhaldi og ræðu formanns. Margar ræður flutt-
ar, lesið bréf frá Steinólfi Lárussyni Ytri-Fagradal, sungn-
ar gamanvísur eftir Benedikt Björnsson, fjöldasöngur,
dansað til klukkan tvö.
Vil ég fyrir hönd félagsins þakka öllum þeim sem þar
komu fram, fyrir góða skemmtun. Sérstaklega vil ég þakka
Árna Björnssyni fyrir góða veizlustjórn. Allir fóru hressir
og ánægðir heim, þökkum við fyrir komuna og vonum að
fá að sjá hópinn á næsta ársfagnaði. Spilakvöld voru haldin
öðru hvoru eins og áður er frá sagt. Sumarfagnaður var
haldinn í Lindarbæ á vegum Kvennadeildarinnar og var
vel sótt, og allir skemmtu sér vel.
Dagur aldraða var í félagsheimili Langholtssóknar á
uppstigningardag og hófst með stuttri messu, þá var sýnd
kvikmynd, almennur söngur, sameiginleg kaffidrykkja,
fjölsótt. Séra Árelíus Níelsson stjórnaði söng, undirspil ann-
aðist frú Ingibjörg Þórðardóttir, kona hans. Þökkum við
fyrir góða hjálp og aðstoð þeira. Kvenfélagskonur sjá yfir-
leitt um þann dag. Þakkir eru þeim færðar.
Dagana 1.—4. júlí 1976 fór félagið í sumarferðalag