Breiðfirðingur - 01.04.1977, Page 115
BREIÐFIRÐINGUR
113
Sunnudagsmorgun var farið út í Klofning en skyggni
var því miður mjög lítið, til baka var farin svo kölluð efri
byggð, farið fram hjá Stóru-Tungu og yfir hjá Túngarði og
niður hjá Hellu að Staðarfelli. Snæddur hádegisverður,
síðan var farið að taka saman dót sitt og ganga frá á gisti-
stað. Um tvö leytið var lagt af stað heim á leið með viðkomu
í Búðardal, síðan haldið í Haukadalinn að innsta bæ, Gilja-
landi, lítilsháttar ra'bbað við bóndann, þaðan haldið suður
í Miðdal að Nesodda, þar drukkið kaffi. Þaðan lá leið okk-
ar í Hörðudalinn, farið var framhjá Tungu og Seljalandi,
síðan haldið út Hörðudal og Skógarströnd, suður Heydal
eða öðru nafni Rauðanesheiði. Komið var til Reykjavíkur
um miðnætti.
í hópnum voru 63 talsins, frá 3 ára til 85 ára. Aldurs-
forsetinn var Óskar Bjartmarz. í þessari ferð var ein mann-
eskja úr hverjum hreppi fengin til að lýsa staðháttum á
sínu umhverfi. Fararstjóri var Sigurjón Sveinsson og hafi
hann þökk allra fyrir góða stjórn og fyrirhöfn. Bifreiða-
stjóra þökkum við alla lipurð og leiðbeiningar í þessari
ferð sem þeim fyrri.
Allir voru að heyra ánægðir með ferðina, mikið sungið.
Harmonika var með í ferðinni og þakkir á skilið sá sem
hana meðhöndlaði, brandarar látnir fjúka. Anægjulegast af
öllu í ferðum félagsins er að Bakkus er skilinn eftir heima.
Sérstakar þakkir vil ég fyrir hönd félagsins færa séra Are-
líusi fyrir störf hans í þágu félagsins og tímaritið Breið-
firðing. — Þakka ánægjulegar samverustundir og samstarf.
Þorsteinn Jóhannsson