Breiðfirðingur - 01.04.1977, Page 120
118
BREIÐFIRÐINGUR
Hallgríms, sérstaklega dugmikill sjósóknari. Hann var for-
maður á eigin báti og var ávallt heppinn og góður aflamað-
ur. Þá var síður að drýgja tekjur sínar einnig með búskap
og það gerði hann af framsýni. Guðrún kona hans var
manni sínum samhent í því, að barnahópinn skorti ekkert.
Hallgrímur heitinn ólst upp í heimahúsum við algeng störf
eins og títt var um unglinga á þeim dögum. Árið 1929 varð
hann fyrir því óhappi að veikjast það illa í fæti að hann
var fluttur á spítala suður til Reykjavíkur. í þessum veik-
indum átti hann lengi og segja má að hann hafi aldrei náð
sér til fulls eftir þetta.
1938 fluttist hann til Reykjavíkur og byrjaði nám í Versl-
unarskólanum. Sennilega hefur fjárhagurinn ekki leyft á-
framhaldandi nám við Verslunarskólann, því 1939 fór
hann í iðnnám hjá Friðjóni Sigurðssyni skósmíðameistara.
Hallgrímur lauk námi þar og starfaði hjá Friðjóni um 14
ára skeið, en síðar rak hann sitt eigið skósmíðaverkstæði.
Á námsárum sínum hjá Friðjóni kynntist hann eftirlifandi
konu sinni Kristínu Aðalsteinsdóttur. Það var hans mikla
gæfa í lífinu enda dáði og virti Hallgrímur konu sína
mjög.
Þau Kristín og Hallgrímur eignuðust fjögur börn. Þau
eru Aðalstein vélstjóri giftur Sigurbjörgu Ragnarsdóttur,
Friðjón verslunarmaður giftur Ólöfu Einarsdóttur, Pétur
vélstjóri, búsettur í Kanada, giftur sænskri konu Lenu And-
ersen, Helga ógift í foreldrahúsum. 011 eru þau vel gerð
og mikið dugnaðarfólk eins og þau eiga ætt til. Ég sem
skrifa þessar línur átti því láni að fagna að eiga Hallgrím
að vini allt frá unga aldri.
Við störfuðum saman að félagsmálum í Ungmennafé-