Morgunblaðið - 21.01.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐURB/C
16. tbl. 82. árg.
FOSTUDAGUR 21. JANUAR1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkin
93 látnir
af völdum
kuldanna
AÐ MINNSTA kosti 93 hafa lát-
ist af völdum fimbulkulda í
Bandaríkjunum undanfarna
daga og neyðarástandi var lýst
yfir í New Jersey, Pennsylvaníu
og höfuðborginni, Washington,
í gær.
Um tíma var lokað fyrir rafmagn
og gas hjá hundruðum þúsunda
manna í Pennsylvaníu, Maryland
og New Jersey þar sem orkunotk-
unin varð of mikil vegna kuldanna.
í Washington voru skrifstofur hins
opinbera lokaðar og 360.000 ríkis-
starfsmenn mættu ekki til vinnu
að beiðni yfirvalda til að spara raf-
magnið.
Hörður Þórðarson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Islands, sagði
stöðu veðurkerfa yfir Norður-
Ameríku .valda kuldunum miklu.
„Mikil hæð hefur haldið sig yfir
vestanverðu Kanada og teygst suð-
ur á vestanverð Bandaríkin. Síðan
hafa lægðir við austurströnd
Bandaríkjanna færst í norðaustur
í átt að Grænlandi. í sameiningu
hafa þessi tvö kerfi og þó aðallega
þessi stóra hæð valdið því að loft
hefur streymt i marga daga frá
Norðurpólnum og jafnvel alla leið
frá Síberíu inn yfir austurhluta
Bandaríkjanna," sagði Hörður.
„Þessi staða getur alltaf komið
upp en það hefur verið óvenjulega
Reuter
Ferðamenn bjóða kuldanum birginn
LOKA varð opinberum skrifstofum í Washington í gær til að spara
rafmagn vegna mikillar orkunotkunar í fimbulkuldanum þar undan-
farna daga. Á myndinni eru ferðamenn sem létu ekki veðrið letja
sig frá því að fara í skoðunarferð um bandarísku höfuðborgina.
kalt núna og mér skilst að kulda-
met hafi verið slegin. Það er útlit
fyrir að breytingar verði um helg-
ina því þessi mikla hæð er komin
á hreyfmgu og um leið og hún
kemst austur fyrir Bandaríkin
verður loft miklu hlýrra þar sem
fímbulkuldar hafa herjað síðustu
daga,“ sagði Hörður Þórðarson.
Sjá „Mestu frosthörkur í rúm-
lega öld ...“ á bls. 18.
Evrópuþingið ályktar um Bosníu
Vill að Owen
lávarður víki
Strassborg, París. Reuter.
EVRÓPUÞINGIÐ hvatti Evrópu-
bandalagið (EB) í gær til að skipa
nýjan samningamann í Bosníu-
deilunni í stað Davids Owens lá-
varðar og að reyna nýjar leiðir
til að koma á friði í landinu.
Ályktun þessa efnis var sam-
þykkt eftir að enn einni lotunni í
friðarviðræðunum í Genf lauk án
árangurs. I ályktuninni segir að
tímabært sé að „skipa nýjan samn-
ingamann með nægilegt umboð og
svigrúm til að fylgja því eftir“.
Þingið krefst þess að hersveitum á
vegum Sameinuðu þjóðanna í Bosn-
íu verði falið að koma á friði, í stað
þess að annast aðeins „friðargæslu“
eins og nú er.
Fulltrúar evrópskra íhaldsflokka
beittu sér einkum fyrir ályktuninni
en sósíalistar greiddu atkvæði gegn
henni. Margir þingmenn vörðu
Owen lávarð og Derek Prag, full-
trúi breskra íhaldsmanna, sagði að
honum hefði „næstum tekist það
ómögulega". Ályktanir þingsins eru
ekki bindandi fyrir EB.
Alain Juppe, utanríkisráðherra
Frakklands, hvatti stjórnvöld í EB-
ríkjunum, Bandaríkjunum og Rúss-
landi til að hefja sem allra fyrst
viðræður um hvað gera beri í
• /
Bosníumálinu. Hann gaf ekki til
kynna að Frakkar myndu leggja
fram tillögu um aðgerðir, en sagði
síðar að til greina kæmi að kalla
alla friðargæsluliðana í Bosníu
heim.
Ahrif miðjumanna aukast verulega í nýrri ríkisstjórn Rússlands
Fjodorov segir af sér
sem fjármálaráðherra
Moskvu. Reuter.
BORÍS Fjodorov fjármálaráðherra, helsti róttæki markaðs-
hyggjumaðurinn í stjórn Rússlands, sagðist í gær ætla að
segja af sér og kvað breytta og mildari efnahagsstefnu leiða
til óðaverðbólgu í landinu.
ir æ líklegri til að verða forseta-
efni miðjumanna í forsetakosning-
unum sem verða ekki síðar en árið
1996.
Danska stjórrim
Ný stefna
í þróun-
araðstoð
Bombay. Reutor.
MIMI Jakobsen, aðstoðarforsæt-
isráðherra Danmerkur, sagði í
gær, að danska stjórnin hygðist
breyta verulega framkvæmd
þróunaraðstoðarinnar við Ind-
land. Hingað til hefur hún farið
til svokallaðra þróunarverkefna
en hér eftir verður hún að mestu
leyti í formi hagstæðra lána til
einkafyrirtækja í landinu.
„Í stað venjulegrar þróunarað-
stoðar viljum við styrkja einkageir-
ann, fyrirtækin," sagði Jakobsen á
fundi í Bombay á Indlandi með ind-
verskum og dönskum kaupsýslu-
mönnum. „Með því móti kemur
aðstoðin að mestu gagni.“
Jakobsen sagði, að aukin áhersla
á aðstoð við indversk einkafyrirtæki
væri til marks um þá trú Dana og
vissu, að Indveijum tækist að koma
í framkvæmd þeim róttæku umbót-
um í efnahagslífinu, sem byijað var
á fyrir tveimur árum. Hún lagði
hins vegar áherslu á, að Indveijar
þyrftu að lækka tolla á ýmsum svið-
um, einkanlega á matvælum. Þró-
unaraðstoð Dana við Indverja verð-
ur um tveir milljarðar ísl. kr. á
þessu ári.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
tilkynnti í gær myndun nýrrar rík-
isstjórnar eftir fjögurra daga
samningaviðræður við Viktor
Tsjernomyrdín forsætisráðherra,
sem telst til miðjumanna í rúss-
neskum stjórnmálum. Þeir sömdu
um að bjóða Fjodorov embætti
fjármálaráðherra en höfnuðu
kröfu hans um embætti aðstoðar-
forsætisráðherra. Hann hafði
einnig krafist þess að Viktor Ge-
rastsjenko seðlabankastjóri og
Alexander Zaveijúkha, sem fer
með landbúnaðarmál í stjórninni,
yrði vikið frá en þeir héldu báðir
embættum sínum.
„Hér er engin stjórnarkreppá,“
sagði Tsjernomyrdín forsætisráð-
herra og vísaði á bug fréttum um
að hann hefði átt í deilum við Jelt-
sín um myndun stjórnarinnar.
„Stjórnin hvikar hvergi af umbóta-
brautinni. Sú stefna sem stjórnin
markaði í fyrra verður óbreytt,“
sagði Tsjernomyrdín en bætti við,
að tímabili „markaðsrómantíkur“
væri nú Iokið.
Róttækir markaðshyggjumenn
hafa misst fjögur mikilvæg ráð-
herraembætti frá því Jegor Gajd-
ar, helsti höfundur efnahagsstefnu
stjómarinnar, sagði af sér sem
ráðherra efnahagsmála. Aðeins
einn róttækur umbótasinni er eftir
í stjórninni, Anatolíj Tsjúbajs, sem
fer með einkavæðingarmál. Alex-
ander Shokhín, sem hefur annast
samningaviðræður við erlenda lán-
ardrottna Rússa, missti embætti
aðstoðarforsætisráðherra en var
skipaður efnahagsmálaráðherra í
stað Gajdars.
Stjórnarmyndunin er talin sigur
fyrir Tjernomyrdín, sem treystir
sig í sessi sem annar valdamesti
stjórnmálamaður Rússlands. Áhrif
hans hafa stóraukist frá þingkosn-
ingunum í desember og hann þyk-
Bítlum boðnir 1,8 millj-
arðar fyrir hljómleika
Ncw York. Daily Tclcgrapli.
BITLUNUM þremur hafa verið boðnar 25 milljónir dollara, jafn-
virði 1,8 milljarða króna, fyrir að leika á minningartónleikum
um Woodstock-hátíðina, sem haldin var fyrir aldarfjórðungi.
Það er tónleikafrömuðurinn Sid hald til að minnast Woodstock-tón-
Bernstein í New York sem boðið
hefur Paul McCartney, George
Harrison og Ringo Starr þessa
fjárhæð fyrir að leika á tónleikum
sem hann hyggst halda í ágúst
næstkomandi skammt frá borginni
Woodstock.
Bernstein hyggst eiga fund með
þremenningunum í næstu viku þar
sem hann hyggst reyna að fá þá
til að taka boði sínu. Hann stóð
fyrir frægum tónleikum Bítlanna
á Shea-leikvanginum í New York
á framanverðum sjöunda áratugn-
um.
Deilur hafa risið um tónleika-
leikanna í ágúst 1969. Leysist þær
ekki stefnir í þrenna tónleika á
tveimur stöðum. Skipuleggjendur
tónleikanna árið 1969 undirbúa
af kappi tónleika á stað sern nefn-
ist Sauagerties og er 30 km norð-
ur af bænum Woodstock. Bern-
stein freistar þess að halda sína
tónleika á Max Yasgur-landar-
eigninni í Bethel þar sem tónleik-
arnir voru haldnir á sínum tíma.
Annar aðili keppir um afnot af
þessu akurlendi sem er 30 km
suður af Woodstock og verður rim-
man til lykta leidd á borgarafundi
í Bethel í næstu viku.
Heiðraður
PAUL McCartney var í fyrra-
kvöld tekinn inn í heiðurssamtök
rokktónlistarnianna við athöfn í
New York. Ekkja Bítilsins Johns
Lennons, Yoko Ono, afhenti
McCartney viðurkeniiiiiguna og
þakkaði hann fyrir sig með
kossi.