Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
131. tbl. 79. árg.
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Yfirlýsing fastanefndar Spánveija hjá Evrópubandalaginu:
Krafan um veiðiheimild-
ir í N-Atlantshafí ítrekuð
Hafna fyrirvara íslendinga vegna fjárfestinga útlendinga í íslenskum sjávarútvegi
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SPÁNVERJAR geta ekki fallið frá kröfunni um veiðiheimildir í
Norður-Atlantshafi og geta ekki heldur fallist á þann langtíma fyrir-
vara sem íslensk stjórnvöld hafa sett fram í viðræðunum um Evr-
ópska efnahagssvæðið vegna fjárfestinga útlendinga í íslenskum
fiskiiðnaði og útgerð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fasta-
nefnd Spánveija hjá Evrópubandalaginu, sem send hefur verið blaða-
mönnum í Brussel.
í fréttatilkynningunni, sem dag-
sett er 7. júní, árétta Spánverjar
helstu hagsmunamál sín í samning-
um EB og Fríverslunarbandalags
Evrópu (EFTA) um Evrópska efna-
hagssvæðið (EES). Fram kemur að
tilefni hennar er sameiginlegur ráð-
herrafundur EFTA og EB í Lúxern-
borg á þriðjudag í næstu viku.
í yfirlýsingunni segir að samn-
ingur, sem ekki taki tillit til mis-
jafnra lífsgæða og ójafnrar sam-
keppnisstöðu ríkja innan EB í sam-
anburði við aðildarríki EFTA, verði
óviðunandi. Spánveijar leggi
áherslu á að EFTA-ríkin leggi eitt-
hvað af mörkum í sjávarútvegi og
landbúnaði auk þess sem þeim beri
að stofna sérstakan sjóð er hafi það
hlutverk að jafna lífskjör bæði efna-
hagsleg sem og á vettvangi félags-
mála.
í þeim kafla tilkynningarinnar
er fjallar um sjávarafurðir er lögð
áhersla á erfiða stöðu spænsks sjáv-
arútvegs og þá staðreynd að Spán-
veijum hafi verið haldið utan við
gjöful fiskimið í Norður-Atlantshafi
þrátt fyrir veiðar annarra EB-ríkja
á þeim slóðum. „í ljósi þess hve
staða þessa atvinnuvegar er erfið á
Spáni er nauðsynlegt að fá fiski-
veiðiréttindi flota okkar til handa á
hinum gjöfulu miðum Norður-Atl-
antshafsins þar sem fiskiskip tiltek-
inna bandalagsríkja, en Spánveijar
ekki, hafa löngum stundað veiðar.“
Borís Jeltsín tekur við blómum frá stuðningsmönnum er hann kom á kjörstað í Moskvu í gær.
Það þjóni augljóslega sameiginleg-
um hagsmunum EFTA og EB að
ná samningum um sjávarafurðir og
ekkert sé því til fyrirstöðu svo fram-
arlega sem viðunandi veiðiheimildir
fáist fyrir tollaívilnanir. Með slíkum
samningum aukist verðmæti þeirra
sjávarafurða frá EFTA-löndunum
sem seldar eru á EB-mörkuðum.
í tilkynningunni segir ennfremur
að Spánveijar geti ekki fallist á þær
kröfur einstakra aðildarríkja EFTA
í samningunum að tekið verði til
frambúðar fyrir fjárfestingar út-
lendinga í sjávarútvegi. Með þessu
sé verið að koma í veg fyrir óbeinan
aðgang að auðlindum og krafan
bijóti í bága við þær frelsishug-
myndir er samningurinn um EES
sé grundvallaður á. „Þar sem eftir-
spurn eftir fiski er hvergi meiri inn-
an bandalagsins geta Spánveijar
tæplega fallist á að bandalagið taki
upp nýja viðskiptahætti hvað varðar
sjávarafurðir frá aðildarríkjum
EFTA án þess að þau tryggi fisk-
veiðiflota okkar ásættanlegan að_-
gang að auðlindum sínum. ... Á
sama hátt er ekki unnt að fallast
á viðvarandi fyrirvara varðandi er-
lendar ijárfestingar í þessari at-
vinnugrein,“ segir í fréttatilkynn-
ingunni.
Hugmyndir EFTA-ríkjanna á
sviði landbúnaðar gangi enn sem
komið er of skammt en greiðari
aðgangur fyrir landbúnaðarafurðir
inn á EFTA-markaði sé ein af meg-
inforsendum þess að samningurinn
verði aðgengilegur fyrir Spánveija.
Þá leggja Spánveijar áherslu á
að þróunarsjóður EFTA verði hlið-
stæður þróunar- og uppbyggingar-
sjóðum EB að vöxtum sem þýddi
að sameiginleg framlög aðildarríkja
EFTA yrðu um 800 milljónir ECU
(um 57 milljarðar ÍSK).
Rússland:
Fyrstu tölur bentu til sigurs
Jeltsíns í forsetakosningunum
Moskvu. Reuter.
FYRSTU fréttir af úrslitum í einstökum kjördæmum í rússnesku
forsetakosningunum í gær bentu til þess að Borís Jeltsín, forseti
rússneska þingsins, færi með sigur af hólmi, eins og fyrirfram hafði
verið spáð. Kjörsókn var um 80% en ekki var búist við að bráða-
birgðatöiur um niðurstöður kosninganna liggi fyrir fyrr en í dag
og endanlegar tölur eru ekki væntanlegar fyrr en á mánudaginn.
Óháða fréttastofan Interfax
sagði að Jeltsín hefði sigraði í Síber-
íuhéraðinu Jakútsk og hlotið 56%
atkvæða en Níkolaj Ryzhkov, fyrr-
um forsætisráðherra 22%. Postfact-
um-fréttastofan sagði að Jeltsín
hefði haft afgerandi forystu í 13
kjördæmum á Blagovestsjensk-
svæðinu meðfram kínversku landa-
mærunum. Á 80 sovéskum skipum
sem eru á siglingu á Kyrrahafi í
Indlandshafi greiddu 81% skipveija
Jeltsín atkvæði en aðeins 6% Ryz-
hkov, að sögn TASS-fréttastofunn-
ar.
Nái enginn frambjóðenda hrein-
um meirihluta verður kosið aftur
milli tveggja efstu.
Boris Jeltsín var sigurviss er
hann mætti á kjörstað í Moskvu í
gær umkringdur stuðningsmönnum
sem hrópuðu nafn hans í sífellu.
Helsti andstæðingurinn, Nikolaj
Ryzhkov, fyrrum forsætisráðherra
er studdur af valdakjamanum í
Kommúnistaflokknum og hefur
gagmýnt mjög þá stefnu Jeltsíns
að færa efnahagslíf Rússlands í átt
að markaðskerfi í auknum mæli.
Aðrir frambjóðendur, fjórir talsins,
eru taldir eiga litla möguleika.
í höfuðborginni Moskvu var einn-
ig kosið um nýjan borgarstjóra.
Hingað til hefur borgum í Sovétríkj-
unum verið stjórnað af fjölmennum
borgarráðum en nú er ætlunin að
völdin færist í auknum mæli til
borgarstjóra líkt og á vesturlöndum.
Sigurstranglegastur var talinn Garí
Popov, forseti borgarráðsins. Hann
er róttækur hagfræðingur og nýtur
stuðnings helstu stjórnarandstöðu-
aflanna. Popov yfírgaf Kommúni-
staflokkinn ásamt Jeltsín í júlí sl.
Hann stefnir að því að leggja af
sovéska stjórnarhætti í borginni.
Edúard Shevardnadze
Sovéski kommún-
istaflokkurinn:
Shevard-
nadze sæti
rannsókn
Moskvu. Reuter.
YFIRSTJÓRN aganefndar
sovéska kommúnistaflokks-
ins hefur fyrirskipað rann-
sókn á meintu agabroti Edú-
ards Shevardnadze, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, vegna ummæla
hans um að stofna beri nýjan
flokk sovéskra lýðræðissinna
til að knýja fram umbætur.
Sovéska fréttastofan TASS
sagði að rannsóknin hefði verið
fyrirskipuð vegna „ummæla
Shevardnadze, félaga í mið-
stjóm flokksins, á opinberum
vettvangi þess efnis að þörf
væri á að stofna lýðræðisflokk
sem myndi starfa „samhliða
kommúnistaflokknum““. She-
vardnadze lét þessi orð falla í
Vín á mánudag og hvatti hann
þar alla sovéska lýðræðissinna
til að sameinast í einum fjölda-
flokki gegn kommúnistaflokkn-
um. „Ef unnt verður að stofna
slíkan flokk öðlast Sovétríkin
þing með nógu framsæknum
öflum til að geta stuðlað að
andlegri og efnahagslegri end-
urreisn landsins,“ sagði She-
vardnadze.
Sovéskir fréttaskýrendur
sögðu að ef tilraun yrði gerð
til að hegna Shevardnadze
vegna agabrota myndi hann
segja sig úr kommúnistaflokkn-
um og hugsanlega valda alvar-
legum klofningi innan hans.
Margir umbótasinnaðir komm-
únistar eru enn í flokknum og
vonast til að geta breytt honum
úr alræðisflokki í hreyfingu sem
yrði opin fyrir ýmsum hug-
myndum eins og sósíalista-
flokkar á Vesturlöndum.
Talið er öruggt að Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétforseti þurfi
að leggja blessun sína yfir rann-
sókn á Shevardnadze, sem hef-
ur lengi verið talinn einn nán-
asti ráðgjafi Sovétleiðtogans.
Shevardnadze sagði af sér sem
utanríkisráðherra í desember
og varaði þá við hættunni á því
að einræðisöfl kæmust til vaída
í landinu.