Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 47
.MORGUNBLAÐIÐ FIM.MTUPAGUR 13. JÚNÍ 19)91 47 FERÐAMAL Blönduós býður upp á óteljandi möguleika STÓRHÁTÍÐ FRAMUNDAN Á TVEIMUR VINUM í kvöld: Laugardagskvöld: K.K. BAND LOÐIN ROTTA - segir Elíza Guðmundsdóttir, nýráðinn hótelstjóri NÝR hótelstjóri hefur ver- ið ráðinn að Hótel Blönduósi, Elíza Guðmunds- dóttir markaðsfræðingur. Hótelið hefur verið starfrækt frá árinu 1947 og er nýupp- gert. Þar eru 18 herbergi og tíu manna starfslið í sumar. Að sögn Elízu býður staður- inn upp á fjölmarga mögu- leika og hefur hún ýmsar hugmyndir um breytingar á rekstrinum til að auka fjöl- breytni í starfsemi hótelsins. Elíza Guðmundsdóttir tók við rekstri Hótels Blönduóss þann 1. júní sl. Hún tók stúd- entspróf frá Fjölbrautarskó- lanum við Ármúlá árið 1982 og fór síðan til Þýskalands og Austurríkis, þar sem hún stundaði nám við Webster University í Vínarborg. Það- an útskrifaðist hún sem markaðsfræðingur með ferð- amál sem sérsvið árið 1990. „Ég fór út strax eftir stúd- entsprófið, lærði þýsku og vann á ferðaskrifstofu auk Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Elíza Guðmundsdóttir, hótelstjóri Hótels Blöndu- óss þess sem ég var fararstjóri hjá Flugleiðum og Úrval í fjögur sumur í Biersdorf og Daun. Síðan ákvað ég að skella mér í markaðsfræði og taka ferðamálin sem sér- svið en inni í því voru nám- skeið í hótelstjórnun," sagði Elíza í samtali við Morgu- blaðið. Eftir að Elíza kom heim hefur hún starfað sem mark- aðsstjóri tímaritsins Farvís og sem móttökustjóri á Hótel Óðinsvé. Þann 1. júní sl. tók hún svo við sem hótelstjóri á Hótel Blönduós. „Mér líst afar vei á nýja starfið. Hótel- stjórnun úti á landi er mun Ijölbreyttari heldur en í Reykjavík. Á Hótel Óðinsvé sá ég um takmarkaða þætti, eins og bókanir. Hér tek ég þátt í öllu. Fyrstu nóttina var ég næturvörður, ég ber fram mat, þríf herbergin auk þess sem ég sé um bókanir og annað sem viðkemur rekstr- inum,“ sagði Elíza. „Blönduós er líka mjög góður staður sem býður upp á óteljandi möguleika og ég er með fullt af hugmyndum. Ég ætla að byrja á því að vinna' að því að fá fólk til að dvelja hér lengur en eina nótt á ferð sinni um landið, með því að benda á mögu- leika staðarins. Hér er m.a. hægt að fá ódýr veiðileyfi og góðar gönguleiðir eru fjöl- margar. Síðast en ekki síst er ekki nema þriggja tíma akstur hingað frá Reykjavík og malbikaður vegur nær alla leiðina," sagði Elíza. Hótelið er opið allan ársins hring og hyggst Elíza stuðla að aukinni nýtingu þess með ýmsum uppákomum Jregar líða tekur á haustið. „Eg hef hugsað mér að vera með heilsuviku í haust, hálfgert húsmæðraorlof fyrir bæði kynin þar sem fólk gæti komið til að slappa af, borða heilsusamlegan mat og njóta útiveru. Á Blönduósi er auk þess gott tónlistarfólk, sem ég hefði hug á að fá til að spila hér á Vínarkvöldum eða ítölskum kvöldum," sagði Elíza að lokum. Aldnar skíðakempur frá Siglufirði Jón Þorsteinsson, skíða- kappi frá Siglufirði, varð sjötugur á dögunum og í tilefni af því hélt El- len Sighvatsson hjá Skíð- afélagi Reykjavíkur hon- um og nokkrum öðrum siglfirskum kempum kaff- isamsæti. Þar voru sam- ankomnir, auk afmælis- barnsins, Ketill Ólafsson, Jónas Ásgeirsson og Einar Ólafsson — sem voru ásamt Jóni upp á sitt besta á árunum frá 1937, þegar fyrsta íslandsmótið var haldið, og fram yfir 1940, á tímum Thule-mótanna svokölluðu, þegar Siglfirð- ingar unnu nánast allt sem hægt var að vinna. Einnig Skarphéðinn Guð- mundsson, sem er nokkru yngri en fjórmenningarnir en gerði garðinn einnig frægan á skíðunum og lauk ferlinum á Ólympíu- leikunum í Bandaríkjun- um 1960. Þess má geta að bæði Jónas og Jón hafa verið sæmdir gullmerki ÍSÍ. Frá vinstri: Ketill Ólafsson, Jónas Ásgeirsson, Skarphéð- inn Guðmundsson, Jón Þorsteinsson og Einar Ólafsson. Föstudagskvöld: K.K. BAND Sunnudagskvöld: SNIGLABANDIÐ Mánudagskvöld: ARTCH OG EIRfKUR HAUKSSOR Um þessa helgi er liðið ár síðan Tveir vinir opnuðu stóra salinn og nú höldum við hátíð. Kántrý partý á Borgarvirkinu í kvöld. „Sveitin í Borginni" leikur öll helstu kántrýlögin. Kristján og Þorleifur breyta út af vananum og taka létta kántrýsveiflu kl.22 - 22.30, ásamt hinni ókrýndu drottningu kántrýsöngs á íslandi, Önnu Vilhjálms. Fleiri kántrý uppákomur. Allir kántrýunnendur, nú er tækifærið. Mætum öll. Opnum kl. 18.00. Partý hefst kl. 20.00. Aðgangseyrir aðeins 100 kr. iillllllli BOHOARVIRKIIÐ ÞINGHOLTSSTRÆTI 2, SÍMI: l 3 7 3 7 Föstudagskvöld 14. júní Húsið opnað kl. 23.30. Laugardagskvöld 15. júní Húsið opnað kl. 22.00. tiúm IaIjAnd Miða- og borðapantanir í síma 687111.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.