Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 17
hans Hauks. Það er ósanngjarnt gagnvart þeirri velmenntuðu ungu kynslóð í landinu sem veit að nú verður að gera átak og bæta fyrir allar ofnýtingarsyndirnar. Timbur- hugsjónin á ekki að hafa forgang og landbótaskógræktin efna- og hugmyndalegan afgang. Aðstaðan á að vera sem jöfnust, en sam- keppni mikil. Timbrið mun skila sér í sögunarmyllur framtíðarinnar hvort sem það er afurð einfaldrar forsjárhyggju, eða heilbrigðrar samkeppni í alhliða skógrækt og landbótastarfi. Ohugsandi er að virkja fólk til landbótastarfa án þess að skaffa því friðað land og veita því sann- gjarna eignaraðiid að þeim skógi er það stofnar til. Einstaklingsfram- tak, samkeppni og vinnuaðstaða eru hugtök sem hvorki sveitarfélög, ríki eða löggjafarvald geta litið framhjá í skógi-æktarmálum, eigi gerð þjóð- félagsins á annað borð 'að virka í landbótum. Þó ráðamenn Skógræktar ríkis- ins leggi nú út í stórframkvæmdir með bændum á héraði eftir hálfmis- heppnaða Fljótsdalsáætlun, er þeim nokkur vorkunn. Þeim ber skylda til að sýna fram á árangur stórra svæða, í vexti og viðgangi skógar. Ekki er því að leyna að þarna eru elstu hefðir skógræktar og vel að merkja á landi í besta flokki. Hitt er svo annað mál, að það er ramm- asta ósanngirni gagnvart fólki i öðrum landshlutum að eingöngu sé stutt við bændur á Héraði. Þeir stóðu sig miðlungi vel í Fljótsdals- áætluninni, fengu nýtt skógræktar- prógram, svokallaða Héraðsskóga, þegar allt sauðfé var skorið niður á svæðinu. Nú eru þeir að fylla lönd- in með sauðfé og stofna þar með uppátækinu í voða og til mikilla útgjalda vegna girðingakostnaðar. Meðan þessu fer fram bíða þús- undir manna um allt land aðeins eftir aðgangi að friðuðu landi, þar sem þeir gætu ræktað sinn eigin skóg í félagi og samkeppni hverjir við aðra. Við erfiða stöðu landbótafólks ganga búháttabreytingar í landbún- aði nú fram með þeim hætti að hrossaeign margfaldast undir engu eftirliti. Útiganga hrossa vex stöð- ugt með vitund, afskiptaleysi og þar með embættisafglöpum forða- gæslumanna og hreppstjóra víða um iand. Sumarlangt er hrossum þjappað saman í lítil girðingahólf, augljóslega í þeim tilgangi að þau hlaupi ekki í spik og rýri möguleika eigendanna til að pranga með þau. Sums staðar er álagið svo mikið að landið nær aldrei grænum lit. Dapurlegt er að hugsa til gróðurrík- isins í þessari svívirðu og væri lær- dómsríkt fyrir nemendur búnaðar- skólanna að gera á þessu rannsókn- ir undir leiðsögn kennara sinna. Þeir fengju svo vonandi inni með niðurstöðurnar í einhveiju hesta- mannaritinu. Höfundur er búfræðingur. Afmælis Jóns Sigurðsson- ar minnst á Hrafnseyri Þjóðhátíðardaginn 17. júní 1991 eru 180 ár liðin frá fæðingu Jón Sigurðssonar forseta. Eins og undanfarin ár verður afmælisins minnst á fæðingar- stað hans, Hrafnseyri við Arn- arfjörð. Við það tækifæri mun Sigurbjörn Einarsson biskup flytja hátíðarræðuna en hann vígði Minningarkapellu Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri 3. ágúst 1980. Jafnframt mun Karlakór Þingeyrar syngja nokkur lög og Björgvin Þórðar- son syngja einsöng. Hátíðarhöldin sem Hrafns- eyrarnefnd gengst fyrir heíjast kl. 2 með guðþjónustu og pred- ikar þá sóknarpresturinn séra Gunnar E. Hauksson. (Fréttatilkynning) MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991 --- ---j----—;—■—> ■ ■ ■ ■■ ■ ■—rT""T"lf — — 17 Morgunblaðið/Finnur Magnússon Frá aðalfundi Rauða krossins. Talið f.v. frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, Gunnhildur Sigurðardóttir formaður Hafnarfjarðar- deildar R.K.Í., Matthías Á. Mathiesen fundarstjóri, Hannes Hauksson framkvæmdastjóri R.K.Í. og Anna Þrúður Þorkelsdóttir varaformað- ur R.K.Í. Sjálfboðaliðar R.K.I. unnu þijátíu ársverk SJÁLFBOÐALIÐAR Rauða krossins á Islandi unnu samanlagt um 55.000 klukkustundir í fyrra. Það jafngildir um þrjátíu ársverkum fólks í fullri vinnu. Nærri helmingur þessa vinnuframlags var til félagslegr- ar þjónustu af ýmsu tagi. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi Rauða kross íslands sem haldinn var í Hafnarfirði um síðustu helgi. Yfirskrift fundarins var „Sjálfboð- in þjónusta-starf sjáifboðaliðans í þágu hugsjóna Rauða krossins.“ Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða krossins er stærsti einstaki sjálfboðaliðahópurinn innan hreyf- ingarinnar. í deildinni eru 700 konur og um 300 þeirra eru virkar og vinna reglulega. Samtals skila þær um 23.000 klukkustundum á ári, sem eru nærri 13 ársverk. Næstum allt þetta starf er unnið í þágu sjúkra og aldraðra. Ætla má að sjálfboðaliðar Rauða krossins um land allt hafi skilað ein- um sex ársverkum til erlendra verk- efna, en fatasöfnun og fatagerð ber hæst á þeim vettvangi. Næstum 4000 stundir voru unnar vegna flótt- amanna sem komu til landsins og sjálfboðaliðar vörðu álíka tíma til neyðarvarna og skyldra verkefna. I aðra málaflokka fór minni tími. STAR SENDIBIFREIÐ [INN TIL AD TRCYSTA A AEROSTAR 4x4 • Sjálfskipting • V6 4.0L EF1160 ha vél • Tölvustýrt fjórhjóladrif með átakslæsingu • Stereo útvarp Verö án vsk. Kr. 1.448.000 NY STJARNA MÆTT TIL STARTA Ford Aerostar er kominn til landsins - hörkuknár, byggður á grind, sterkur, glæsilega búinn og frábær í akstri. Staöalbúnaöur: • V6 3.0I EF1145 ha vél, eyðslugrönn • ABS hemlalæsivörn að aftan • Vökvastýri • Tvöföld hurð að aftan • Vistvænn búnaður • Átakslæsing á afturdrifi • Stereo útvarp Verð án vsk. Kr. 1.267.000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.