Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991 EB og- EFTA eftir Rakel * Ottarsdóttur Inngangur Mikið hefur verið rætt um EB og stöðu okkar íslendinga í evrópskum málum í fjölmiðlum undanfarið. Flestir hafa sína skoðun á því hvort ísland skuli sækja um aðild að EB þó að rökin séu misjafnlega góð. í þessari grein mun ég leitast við að gera sem besta grein fyrir Evrópu- bandalaginu, uppbyggingu þess og stefnu og stöðu Islands. Eg mun einnig gefa lesendum nokkra hug- mynd um það hvemig EFTA starfar þar sem það er næstum óhjákvæmi- legt þegar talað er um stöðu íslands. Evrópubandalagið Uppruni Evrópubandalagsins. í kjölfar síðari heimsstyijaldar- innar stóðu Evrópuþjóðimar frammi fyrir mikilli upplausn og glundroða í málefnum sínum. Verkefni í þrem þáttum beið álfunnar. Í fyrsta lagi þurfti að koma á nýskipan í málum Evrópuríkja til að hindra að það Honda ’91 Accord Sedan 2,0 EX Verð f ró 1.432 þúsund. GREIDSLUSKILMÁLAR FYRIR ALIA WHONDA VATNAGÖRÐUM 24 RVÍK., SÍMI 689900 brytist út styrjöld á milli þeirra. í öðru lagi var nauðsyn að sameina Evrópu ti! mótvægis við Bandaríkin og Sovétríkin, hin nýju risaveldi. í þriðja lagi vildu Evrópuríkin leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýja, réttlátari og . friðvænlegri heimsskipan. Breskur þjóðarleiðtogi, Winston Churchill, hélt ræðu í Zrich árið 1946 þar sem hann lagði til stofnun bandalags á millí Frakklands og Þýskalands. Þessi uppástunga var ein kveikjan að nýskipan í málum Evrópu sem leiddi til stofnunar Evr- ópubandalagsins. 18. apríl 1951 var Kola- og stál- bandalag Evrópu stofnað. Aðild- arríki þess voru sex talsins: V- Þýskaland, Frakkland, Holland, Belgía, Lúxemborg og Ítalía. Mark- mið þessa félags var að koma á sam- eiginlegum kola-, járn-, og stálmark- aði aðildarríkjanna og sameiginlegri yfirstjórn þessara atvinnugreina. 25. mars 1957 var Rómarsáttmál- inn undirritaður. Benelux-löndin höfðu þá lagt til við önnur aðild- arríki Kola- og stálbandalagsins að komið yrði á Kjarnorkubandalagi Evrópu sem og Efnahagsbandalagi Evrópu (EBE). Markmið og starfs- grundvöllur EBE voru skilgreind í Rómarsáttmálanum, stofnsamningi bandalagsins. Efnahagsbandalagið var fyrst og fremst tollabandalag þar sem tollar í viðskiptum milli aðildarríkjanna voru afnumdir. Allar viðskiptahindranir milli þessara ríkja voru afnumdar og tékin var upp sameiginleg stefna í mikilvægum atvinnugreinum, s.s. landbúnaði. Árið 1967 tók gildi samningur sem kvað á um að Kjamorkubanda- lagið, Efnahagsbandalagið og Kola- og stálbandalagið yrðu sett undir sameiginlega yfirstjórn. Þetta nýja bandalag var nefnt Evrópubanda- lagið, EB. Uppbygging Evrópubandalagsins Helstu stofnanir EB eru 'eftirfar- andi: Ráðherraráðið (Council of Minist- ers) sem er valdamesta stofnunin innan EB. í ráðherraráðinu situr einn ráðherra frá hveiju aðildarríki. Fulltrúar í ráðherraráðinu eru ekki fastir heldur fer það eftir málefni hveiju sinni hvaða ráðherra sækir fundinn. Löggjafarvaldið er í hönd- um ráðherraráðsins. Það tekur end- anlegar ákvarðanir á grundvelli til- lagna frá framkvæmdastjórninni. Ráðherraráðið mótar pólitíska stefnu EB og sér um samningagerð við önnur ríki. Framkvæmda- stjómin (The European Commission) sem er nokkurs konar ríkisstjórn EB. í henni sitja 17 fulltrúar, tveir frá stærri aðildarríkjunum en einn frá þeim smærri. Hlutverk fram- SIEMENS UpDbvottavélar í miklu úrvaií! SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar, hljóölátar og sparneytnar. Breidd: 45 og 60 sm. * Verð frá 59.600,- kr. SMÍTH&NORLAND NÓATÚNI4 - SÍMI 28300 kvæmdastjórnarinnar er margþætt. Hún hefur framkvæmdavaldið, tekur ákvarðanir um tillögur frá ráðherr- aráðinu, framfylgir lögum EB, sem- ur fjárlög og sér um samskipti við þau aðildarríki sem ekki framfylgja samningum svo eitthvað sé nefnt. Evrópuþingið (The European Parliament). I þinginu sitja 518 full- trúar kjörnir í beinum kosningum í aðildarríkjunum. Þeir eru frekar full- trúar stjórnmálaflokka heldur en fulltrúar þjóða. Vald þingsins er ekki mikið. Ráðherraráðinu og fram- kvæmdastjórninni er skylt að hafa samráð við þingið í sérstökum tilvik- um sem hefur nokkur áhrif á ákvarð- anir EB. Þingið hefur einnig eftirlit með störfum framkvæmda-stjórnar- innar, aðild að fjárlagagerð og því er heimilt að lýsa yfir vantrausti á framkvæmdastjórnina sem leiðir af sér afsögn hennar í heild. Evrópudómstóllinn (The Europ- ean Court of Justice) þar sem eru 13 fulltrúar, einn frá hveiju aðild- arríki auk eins viðbótardómara. Þessir dómarar eru kosnir af ráð- herraráðinu. Hlutverk dómstólsins er að dæma í deilum milli aðild- arríkja, deilum milli EB og aðild- arríkja, deilum milli stofnana EB, deilum milli einstaklinga eða félaga og EB, álitamálum um alþjóðasamn- inga og samninga EB við utanað- komandi ríki og málum sem dómstól- ar aðildarríkja skjótatil Evrópudóm- stólsins til úrlausnar. Innan EB starfa fjórar minni stofnanir: Evrópska ráðið (leiðtoga- ráðið) sem æðstu leiðtogar aðild- arríkjanna skipa, Efnahags- og fé- lagsmálanefndin sem veitir ráðgjöf, Endurskoðunardómurinn sem end- urskoðar alla tekju- og gjaldaliði EB og Fjárfestingabanki Evrópu sem annast fjárfestingar í þágu banda- lagsins og aðildarríkja þess. Markmið og stefna Evrópubandalagsins Aðildarríki EB eru í dag tólf tals- ins. Þau eru: Ítalía, Spánn, Portú- gal, Frakkland, Bretland, Danmörk, Holland, Belgía, írland, Lúxemborg, Grikkland og V-Þýskaland. Markmið Evrópubandalagsins er að koma á markaðsbandalagi, einum óskiptum heimamarkaði þessara 12 þjóða. Þannig eiga þjóðirnar að geta aukið hagsæld sína, hagvöxt og al- mennar framfarir þegnanna. EB reynir að tryggja frið í Evrópu og náin, vinsamleg samskipti aðildar- ríkjanna. Samvinna og samhæfing aðildarríkja í félagsmálum, mennta- og menningarmálum og umhverfis- málum er líka takmark EB. Rómarsáttmálinn kveður á um hvernig þessum markmiðum skuli náð og verða því nú gerð frekari skil. Settur var sameiginlegur tollur aðildarríkjanna út á við og innbyrðis tollar afnumdir. Tollabandalagi var komið á, fyrsta skrefínu í átt að fullkomlega sameiginlegum markaði aðildarríkjanna. Árið 1992 er stefnt að því að all- ar viðskiptahindranir verði úr sög- Rakel Óttarsdóttir „Ef til aðildar okkar kæmi myndu erlendir aðilar aftur á móti fá greiðan aðgang að fiskimiðum okkar sem myndi leiða til hnignun- ar á íslenskum sjávarút- vegi. Þar sem sjávarút- vegurinn er aðalat- vinnuvegur okkar ís- lendinga er okkur mjög annt um fiskimiðin.“ unni samkvæmt áætlun EB um fijálsan innri markað. Vöruskoðun og landamæraeftirlit milli banda- lagsríkjanna verður með öllu afnum- ið fyrir árslok 1992. Borgurum EB-ríkjanna er tryggt frelsi til að búa og stunda atvinnu hvar sem er á bandalagssvæðinu. Með því er komið á sameiginlegum vinnumarkaði meira en 300 milljóna manna. Þessar reglur gilda þó ekki um störf hjá hinu opinbera. Borgar- ar EB hafa einnig rétt til að stofna fyrirtæki og reka atvinnu- og þjón- ustustarfsemi hvar sem er á banda- lagssvæðinu. Allar hindranir og mismunun í flutningum fjármagns sem er í eigu manna sem búsettir eru á bandalags- svæðinu á að afnema í áföngum. Rómarsáttmálinn gerir ráð fyrir því að aðildarríkin hafi með sér sam- eiginlega stefnu í sjávarútvegsmál- um. Þar segir að aðildarríkin hafí öll jafnan rétt til veiða á öllum mið- um EB-ríkjanna þó með þeirri tak- mörkun að bandalagið úthlutar ein- stökum ríkjum kvóta. Aðildarríkjum er einnig heimilt að takmarka veiðar á viðkomandi svæði út að 12 sjómíl- um við eigin skip. Sjávarútvegs- stefna EB felur einnig í sér verndun fiskistofna á svæðum bandalagsins. Gagnvart löndum utan bandalagsins beitir EB tollum svo lengi sem EB- þjóðirnar geta fullnægt markaðinum með eigin framleiðslu eða með inn- flutningi frá ríkjum sem það hefur samið við. íslendingar hafa oft feng- ið að líða fyrir þennan hluta sjávar- útvegsstefnunnar. EB hefur einnig sameiginlega landbúnaðarstefnu sem hljóðar á þá leið að koma skuli á sameiginlegum markaði með landbúnaðarvörur. Meginmarkmið landbúnaðarstefnu EB er að auka framleiðsluna, tryggja bændum mannsæmandi lífs- kjör, koma jafnvægi á markaðinn, tryggja framboð landbúnaðarvara og tryggja að neytendur fái landbún- aðarvöru á hóflegu verði. Árið 1985 tók ráðherraráð EB þá ákvörðun að hrinda í framkvæmd tímasettri áætlun um þær ráðstafan- ir sem þarf að gera til að ná megin- markmiði EB, þ.e. að skapa stóran sameiginlegan markað EB-ríkjanna fyrir árslok 1992. þessi áætlun nefn- ist „Hvítbókaráætlun“ og er henni lýst í Hvítbók framkvæmdastjórnar- innar. í Hvítbókinni er talað um 279 breytingar sem gera þarf og eiga þær allar að hafa gengið í gildi í árslok 1992. Þessum breytingum er hægt að skipta í þijá meginflokka: hindranir vegna landamæra, tækni- legar viðskiptahindranír og skatta- legar hindranir. Ætlunin er að af- nema allar þessar hindranir. Það mun hafa í för með sér margvísleg- ar afleiðingar í atvinnulífi aðildar- ríkjanna, s.s. aukna alþjóðahyggju, lægra verð, aukin alþjóðaviðskipti, nýjungar og nýsköpun. Löndin munu líklega reyna að stuðla að bættum lífskjörum með því að laða að sér sem flest fyrirtæki. Þetta mun allt leiða til þess, að atvinnulíf EB-ríkj- anna mun búa við betri starfsskil- yrði og standa þannig betur að vígi í samkeppni við aðrar þjóðir. Fríverslunarsamtök Evrópu Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) voru stofnuð árið 1960. Stofnun þeirra var nokkurs konar svar þeirra ríkja, sem stóðu utan EBE, við stofnun þess og um leið varnaraðgerð þannig að EFTA-ríkin liðu ekki fyrir að hafa ekki tekið þátt í EB. EFTA var stofnað af sjö þjóðum: Austurríki, Bretlandi, Danmörku, Nofegi, Portúgal, Svíþjóð og Sviss. í dag hafa orðið breytingar á þess- ari skipan; Bretland, Danmörk og Portúgal hafa gengið í EB en ísland og Finnland hafa gengið í EFTA. EFTA er ekki tollabandalag eins og EB heldur fyrst og fremst frí- verslunarsamtök. Fijáls verslun er á 'milli aðildarríkja samtakanna en hún nær þó eingöngu til iðnaðarvara og tiltekinna sjávarafurða. Við stofnun EFTA var Stokk- hólmssamningurinn undirritaður. í samningnum stendur að markmið EFTA sé að stuðla að stöðugum hagvexti, fullri atvinnu, aukinni framleiðni, hagkvæmri nýtingu framleiðsluþáttanna, fjármálalegu jafnvægi og bættum lífskjörum á EFTA-svæðinu. Sanngjöm sam- keppni skal ríkja í viðskiptum milli aðildarríkjanna og vinna skal að far- sælli þróun og aukningu alþjóðavið- skipta. EFTA miðar samkvæmt^ þessu hvorki að því að verða efna-' hagsleg heild á sama hátt og EB né að náinni stjórnmálasamvinnu. Til að ná settum markmiðum hafa EFTA-ríkin myndað fríverslunar- svæði þar sem tollar eru felldir niður í viðskiptum með vörur innan svæð- isins. Vörur frá einu EFTA-ríki njóta sömu meðferðar í EFTA-ríki sem þær eru fluttar til og þær vörur sem þar eru framleiddar. Vörumar eru því tollfijálsar og það má ekki beita neinum aðgerðum þannig að sam- keppnisaðstöðu þessara vara sé mis- munað. EFTA er ólíkt EB, það er í raun- inni bara ein stofnun, EFTA-ráðið. í ráðinu sitja sex fulltrúar, einn frá hvetju aðildarríki. Hver fulltrúi hefur eitt atkvæði og allar ákvarðanir skulu vera samhljóða. Öll aðildarrík- in hafa því jafnan rétt og völd óháð stærð og íbúatölu. i EFTÁ-ráðið getur sett á fót þær stofnanir og nefndir sem það telur þurfa á hveijum tíma. Nokkrar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.