Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991
Ágreiningur um hvert eðli-
legt tímakaup á að vera
- segir húsameistari um reikninginn vegna skjaldarmerkis íslands
HÚSAMEISTARI ríkisins segir að ágreiningurinn vegna reiknings
frá Járnsteypunni sé um hvert eðlilegt tímakaup fyrir myndskurð
eigi að vera. Alþingi hefur greitt tæpar 500 þúsund fyrir gerð
móta af skjaldarmerki Islands, sem setja átti á svalir Alþingishúss-
ins. Reikningurinn sem Járnsteypan sendi hljóðaði uppá kr.
1.098.508 og neitar Alþingi að greiða hann. Lögmaður Járnsteyp-
unnar hefur stefnt Alþingi og lítur á greiðslu Alþingis sem hluta-
greiðslu.
Morgunblaðiö/Sig.Jóns.
Hörður Sigurjónsson frummótasmíðameistari á verkstæði sinu
með mótið af skjaldarmerki íslands.
„Við fengum reikning sendan
frá Alþingi sem við skoðuðum og
yfirfórum og töldum þá að það
tímagjald sem myndskurðarmað-
urinn tók sér væri hærra en það
sem við höfðum átt von á. Ágrein-
ingurinn er um hvert eðlilegt tíma-
kaup þessa fagsviðs á að vera,“
sagði Garðar Halldórsson húsam-
eistari ríkisins í samtali við Morg-
unblaðið.
„Viðmiðunargrundvöllur minn
var að verkið kostaði tilbúið til
uppsetningar, með lituðum fána,
1.100 þúsund og voru það efri
mörkin. Mótið sjálft átti að kosta
700 þúsund í þessari viðmiðun.
Allt var þetta munnlegt og skýrt
tekið fram að einungis væri um
grófar viðmiðunartölur að ræða og
virðisaukaskattur (VSK) var ekki
ræddur í þessu sambandi, enda eru
öll verð sem ég gef upp án VSK,“
segir Hörður Siguijónsson frum-
mótasmíðameistari sem vann öll
mót vegna þessa verks en Járn-
steypan hf átti að steypa skjaldar-
merkið úr kopar í þeirri stærð sem
embætti húsameistara ríkisins bað
um.
Tilbúin að skila verkinu á
verði innan efri marka
viðmiðunar
„Reikningurinn sem ég sendi
Járnsteypunni, en allir mínir reikn-
ingar. fara í gegnum skrifstofu
fyrirtækisins, hljóðaði uppá
840.320 krónur auk 205.878 króna
í VSK, samtals kr. 1.046.198 fyrir
mótið sjálft, sem fór nokkuð fram
úr viðmiðunni. Ég og Járnsteypan
lýstum okkur tilbúin á sínum tíma
til að að skila merkinu, steyptu og
lituðu, tilbúnu til uppsetningar á
verði sem er innan við efri mörk
viðmiðunargrundvallarins, en Al-
þingi neitar að greiða reikning-
inn,“ segir Hörður.
Járnsteypunni barst þó ávísun
frá Alþingi uppá tæpar 500 þús-
und, en húsameistari ríkisins telur
tímagjald Harðar, 2.280 krónur í
jafnaðarkaup, of hatt og vill miða
við laun iðnaðarmanna á trésmíða-
verkstæði sem höfðu 767,02 krón-
ur í dagvinnukaup á þessum tíma.
Hann segir því að verkið eigi að
kosta kr. 477.621 með VSK.
Þessp vilja Járnsteypan og
Hörður ekki una og hafa því stefnt
Alþingi. Ávísunina sem Alþingi
sendi hefur Járnsteypan innleyst
og lítur á hana sem hlutagreiðslu.
Hörður sagði að hann hafí þegar
greitt 205.878 krónur í VSK af
þeim reikningi sem hann sendi
Alþingi. Hann vildi líka taka fram
að hann væri með mjög dýrar vél-
ar á mótasmíðaverkstæði sínu og
launataxti hans væri samkomulag
við Járnsteypuna frá árinu 1988
og miðað við útselda vinnu á vél-
smíðaverkstæði.
Ekki talað um ákveðið gjald
fyrir unna tíma
„Það var ekki samið fyrirfram
um tímagjaldið, en munnleg áætl-
un lá fyrir og ákvörðun um að láta
vinna verkið var tekin á grund-
velli hennar. Þar var talað um
ákveðna upphæð, en ekki um
ákveðið gjald fyrir unna tíma. Við
miðuðum við útselt tímakaup iðn-
meistara af öðrum gerðum því
myndskurður er viðurkennd iðn-
grein og okkur fannst þetta eiga
heima þar. Það getur vel verið að
hann fái viðurkennt með dómi að
hans svið eigi að flokkast annars
staðar, en það er þá önnur skoðun
en við höfum. Forsvarsmenn Al-
þingis ákváðu síðan að greiða inná
þennan reikning þá upphæð sem
við töldum engan ágreining vera
um og síðan hef ég ekki fylgst
með málinu, það hefur verið hjá
Alþingi," segir Garðar Halldórsson
húsameistari.
„Við óskuðum eftir tilboði í upp-
hafí en gátum ekki fengið það
vegna þess hversu sérhæft verk-
efni þetta er,“ sagði Garðar. Hann
sagðist ekki hafa rætt við Hörð
um að það væri í lagi að fara fram
úr kostnaðaráætluni, það hafi ver-
ið einhver annar starfsmaður
stofnunarinnar.
„Þetta hófst með því að menn
frá húsameistara ríkisins leituðu
til mín um mánaðamótin júlí/ágúst
1990 og báðu mig að athuga hvort
þetta væri mögulegt og einnig
vildu þeir fá einhverjar hugmyndir
um hvað þetta myndi koáta,“ segir
Hörður.
„Tímamörkin voru mjög knöpp
því ég átti að .skila verkinu fyrir
þingsetningu og mótin urðu að
vera tilbúin ekki síðar en 26. sept-
ember. Ákveðið var að hafa fánann
í lit og það þarf að vera varanleg-
ur litur sem er innbrenndur á kop-
arinn sem skjaldarmerkið átti að
vera steypt úr. Ég fann aðila sem
gat séð um litunina og hann áætl-
aði að það myndi kosta um 100
þúsund krónur.
Málin þróuðust síðan þannig að
ég var beðinn um að saga merkið
út úr masoníti til að hægt væri
að skoða það á svölum Alþingis-
hússins, en þar mun því hafa verið
ætlaður staður. Einn forseta þings-
ins og menn frá húsameistara
ríkisins voru viðstaddir þegar þetta
var gert.
Skömmu síðar var ég kallaður
á fund húsameistara og mér falið
verkið. Ég fékk teikningu af
skjaldarmerkinu á A-3 örk og byrj-
aði á að stækka hana upp í fulla
stærð, sem er 1,20 m á hæð, og
gera gráskyggnu til að fá merkið
í þrívídd, en mér var tjáð að slík
teikning væri ekki til af merkinu.
Smíðina hóf ég síðan 25. ágúst
og til að standast þau knöppu tíma-
mörk sem mér voru sett réði ég
mér myndlistarmann og vann hann
í 78 klukkustundir við verkið auk
þess sem ég tók mér frí í vinnu
minni og einbeitti mér að þessu
verki," segir Hörður.
Embætti húsameistara
fylgdist ekki með hvernig
verkið gekk
Hann segir að rætt hafi verið
um að menn frá húsameistara
fylgdust með smíði verksins en
þeir hafi aldrei komið til að skoða
hvernig gengi þrátt fyrir að hann
hefði samband við þá eftir því sem
vættir merkisins tóku á sig mynd.
„Tveir menn frá húsameistara
komu þegar mótin voru svo til
fullkláruð og gerðu þeir eina at-
hugasemd og lagfærði ég merkið
í samræmi við það. Verkinu skilaði
ég síðan 24. september.
Vissu að ég færi fram yfir
viðmiðunargrundvöllinn
Þegar ég var kominn nokkuð á
veg sá ég að ég færi framúr munn-
legum viðmiðunargrundvelli sem
ég hafði sett fram varðandi kostn-
að og hafði því samband við starfs-
mann húsameistara. Hann tjáði
mér að þetta væri svo lítið frávik
að það væri engin fyrirstaða. Ein
meginástæðan fyrir því að ég fór
fram úr viðmiðunnin var að ég gat
ekki fengið hentugasta efnið til
að vinna með og varð því að nota
harðara efni sem er mun þyngra
í vinnslu. Ég hafði gert starfs-
mönnum húsameistara viðvart um
þetta áður en verkið hófst.
Eftir að húsfriðúnarnefnd komst
í málið var haft símasamband við
mig og ég beðinn um að hafa ekki
hátt um hvað ég væri að gera, en
verkið var ekki stöðvað.
Járnsteypan fékk síðan bréf frá
húsameistara þar sem sagði að
stöðva ætti verkið, en þá var smíði
vel á veg komin. Aðeins átti eftir
að setja það saman og ganga end-
anlega frá því. Starfsmenn húsa-
meistara féllust á að ljúka verkinu
því betra væri að eiga fullklárað
skjaldarmerki en hálfkarað fyrir
mikla fjármuni," segir Hörður.
Lögmaður Jámsteypunnar seg-
ist hafa staðið í stappi við að fá
reikninginn greiddan frá því upp
úr áramótunum og allt hafi verið
reynt til að leysa málið. Það tókst
hins vegar ekki og J)ví var ákveðið
að stefna Alþingi Islendinga.
Friðrik Olafsson skrifstofustjóri
Alþingis segir að málið sé nú fyrir
dómstólum og ríkislögmaður fari
með það fyrir hönd Alþingis. Hann
benti á að Alþingi bæri eins og
öðrum ríkisstofnunum að verja fé
sínu á skynsamlegan hátt og færi
því ekki að borga reikninga sem
væru langt fyrir ofan sanngirnis-
mörk. Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um málið.
12/220 VOLTA SJÓNVARPSTÆKIN FRÁ HEIMILISTÆKJUM
FLAKKARINN
Tilvalið tæki á skrifstofuna, í bílinn, bátinn, gott
sem „monitor“ fyrir myndbandsupptökuvélina
og tölvuleikina.
• 13 cm hágæða litaskjár „Monitor" • Innbyggt AM/FM sterio
útvarp og segulband • Stafræn klukka með vekjara • 220 volt
eða rafhlöður 12 volt • 12 volta bílasnúra fylgir.
SKINANDI
SJÓNVARP í BÚSTAÐINN
14 tommu litasjónvarp með fjarstýringu og
12/220 volta spennubreyti. Hefur alla kosti stóru
tækjanna. I I
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
'ó samKÚufuiH
(Upefléch
'snmmni
Hágæða 10 tommu litaskjár, myndband
(afspilun) og fullkomin fjarstýring. 12/220 V.
• TYP-002 SUPERTECH • 10 tommu hágæða litaskjár
• leitari með minni • Fullkomið afspilunartæki • „lnfra-rauð“
fjarstýring • Allar aðgerðir sjást á skjánum
• Stærð B:270 H:310 D:310 mm.
FRÁBÆRI FERÐAFÉLAGINN
illiiltlillilllillllll 111! II f iii 111SI i il i 1 í i iliii iÍÍUUiiiJlliii jfjiiiilii U JliillUlliiill
Wí
uCi' Yö -líílú