Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JUNI 1991
Ráðinn að-
stoðarmað-
ur fjármála-
ráðherra
STEINGRÍMUR Ari Arason,
hagfræðingur, hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Frið-
riks Sophussonar fjármálaráð-
herra. Tekur hann til starfa í
ráðuneytinu í næstu viku.
Steingrímur Ari fæddist í
Reykjavík árið 1953. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1973 og við-
skiptafræðiprófi frá Háskóla ís-
lands 1979. '
Samhliða námi sinnti hann
kennslustörfum og tók virkan
þátt í félagsstörfum stúdenta.
Hann nam síðan við Uppsalahá-
skóla í Svíþjóð og lauk þaðan
mastersgráðu í hagfræði árið
1983.
Undanfarin ár hefur hann
starfað sem hagfræðingur hjá
Steingrímur Ari Arason
Verslunarráði íslands og er for-
maður skattamálanefndar Sjálf-
stæðisflokksins.
Steingrímur Ari er kvæntur
Lindu Rós Michaelsdóttur, kenn-
ara, og eiga þau þrjú böm.
Innílutningur eykst mun
meira en útflutningur
í APRÍLMÁNUÐI voru fluttar vörur fyrir 7,1 milljarð króna og inn
fyrir 10,4 milljarða króna fob. Vöruskiptajöfnuður í apríl var því
óhagstæður um 3,3 milljarða króna en í apríl í fyrra var hann óhag-
stæður um 0,6 milljarða króna á föstu gengi.
Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
vom fluttar út vömr fyrir röska
28,6 milljarða króna en inn fyrir
tæpa 29,8 milljarða króna fob.
Vöruskiptajöfnuðurinn á þessum
tíma var því óhagstæður um 1,1
milljarð króna en á sama tíma í
fyrra var hann hagstæður um 3,2
milljarða króna á sama gengi.
í frétt frá Hagstofu íslands seg-
ir: Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
var verðmæti vömútflutnings 2,8%
meira á föstu gegni en á sama tíma
í fyrra. Sjávarafurðir vom um 81%
alls útflutningsins og vom um 6%
meiri en á sama tíma í fyrra. Út-
flutningur á áli var 13% meiri en
útflutningur kísiljárns var 54%
minni en á sama tíma á síðastliðnu
ári. Útflutningsverðmæti annarrar
vöm var 9% minna í janúar-apríl
en á sama tíma í fyrra, reiknað á
VEÐUR
Heimild: Voöurstofa íslands
(8yggt á veðurapá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 13. JUNI
YFIRLIT: Skammt vestur af Skotlandi er 982 mb lægð sem þokast
austur, en 1028mb hæð við Svalbarða.
SPÁ: Norðan- og norðaustanátt, kalt, víðast þurrt. Skúrir norðan-
og austanlands, en þurrt að mestu sunnan- og suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðan- og norðaustanátt, sums staðar
allhvöss norðan- og norðaustanlands en mun hægari annars stað-
ar. Norðan- og austanlands má búast við úrkomu, en víða bjart-
viðri sunnanlands. Á sunnanverðu landinu má gera ráð fyrir hita
upp í 9 stig en víðast annars staðar mun svalara.
HORFUR Á LAUGARDAG: Noröanátt nokkuð stíf um austanvert
landið en hægari annars staðar. Skúrir eða slydduél á annesjum
norðan- og austanlands en þurrt annars staðar. Hiti 4 til 6 stig.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN: y, Norftan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- ■j Q Hitastig: 10 gráður á Celsíus
Heiðskirt * stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöftur er 2 vindstig. • V * V Skúrir Él
Létt*^84 / / / / r / t Rigning Þoka
Hálfskýjað rii * / # •> Þokumóða Súld
Fjk Skýjaft / * / * Slydda oo Mistur
/ # /
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 8 skýjað Reykjavík 8 rigningogsúld
Bergen 11 rigning
Helsinki 17 skýjað
Kaupmannahöfn 12 rigrímg og súld
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk 1 alskýjað.
Ósló 15 skýjað
Stokkhólmur 14 skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Algarve 24 heiðskfrt
Amsterdam 14 rigrímg
Barcelona 22 þokumóða
Berlín 21 skýjað
Chicago 10 skýjaft
Feneyjar 24 heiðskírt
Frankfurt 23 léttskýjað
Glasgow 10 rigning
Hamborg 14 rigning
London 18 skýjaft
Los Angeles 16 þokumóða
Lúxemborg 20 skýjaft
Madríd 28 léttskýjað
Malaga 24 heiðskírt
Mallorca 24 léttskýjað
Montreal 18 alskýjað
NewYork 22 mistur
Orlando vantar
París 19 skúrir
Madeira 21 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Vín 22 léttskýjað
Washington 25 mistur
Winnipeg 16 úrk.fgrennd
föstu gengi.
Verðmæti vöminnflutningsins
fyrstu fjóra mánuði ársins var 21%
meira en á sama tíma í fyrra. Inn-
flutningur sérstakrar fjárfestingar-
vöra (skip, flugvélar, Landsvirkjun)
og innflutningur til stóriðju hefur
orðið minni en í fyrra. Almennur
innflutnignur hefur hins vegar auk-
ist verulega eða um 28% og um
30% að frátöldum olíuinnflutningi.
Hér munar mikið um innflutning-
inn í apríl en þá reyndist almennur
innflutningur án olíu .52% meiri en
í sama mánuði í fyrra. Aukning
almenna innflutningsins fyrstu
fjóra mánuði ársins kemur fram í
flestum vöruflokkum, hvort sem
um er að ræða neysluvöm, rekstr-
arvöru eða ijárfestingarvöru. Af
einstökum liðum sem hafa aukist
mikið má sérstaklega nefna vélar
og tæki til atvinnurekstrar en enn-
fremur unnar málmvörur og bíla,
bæði til atvinnurekstrar og einka-
nota.
Borgarráð:
BHM byggir yfir
aldraða félagsmenn
BORGARRAÐ hefur samþykkt
úthlutun á lóð við Suðurgötu
fyrir 40 til 50 íbúðir ætlaðar
öldruðum félagsmönnum í
Bandalagi háskólamanna.
Lóðin er sunnan háskólasvæðis-
ins en stærð hennar og lega hefur
enn ekki verið ákveðin. Fyrir-
komulag húss og bílastæða er háð
samþykki skipulagsnefndar. Um
íbúðimar gilda þeir skilmálar um
eignarhald, að eigendur þeirra
hafí náð 63 ára aldri og nægir að
annað hjóna uppfylli það skilyrði.
Gert er ráð fyrir að byggður
verði um 400 fermetra þjónustu-
kjarni á vegum Reykjavíkurborgar
á lóðinni að liðnum 3 til 4 árum.
Af þeim sökum skal skipulag á
lóðinni og hönnun mannvirkja
unnin í samráði við byggingar-
nefnd aldraðra, segir í tillögu
Ágústar Jónssonar skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings, sem
lögð var fram í borgarráði.
Erlendir vísindamenn:
100 umsóknir um rann-
sóknarleyfi á Islandi
UM 100 erlendir aðilar hafa sótt
um leyfi til að stunda náttúru-
vísindarannsóknir hér á landi í
sumar. Flestir ætla að stunda hér
jarðfræði- og landafræðiathug-
anir.
Að sögn Axels Björnssonar hjá
Vísindaráði, sem úthlutar rann-
sóknarleyfunum, hafa erlendir
vísindamenn einkum áhuga á að
stunda hér rannsóknir í tengslum
við landmótun, jöklafræði,
hraunsprungur, eldfjöll, hveri
o.s.frv, auk rannsókna á dýralífi og
gróðri.
Axel sagði að flestir kæmu frá
Bretlandi í þessum tilgangi en þar
í landi hefði skapast viss hefð fyrir
því að stúdentar á 1. og 2. ári í
jarðvísindum fari í rannsóknar-
ferðalög til íslands á sumrin. Af-
gangurinn kæmi aðallega frá Norð-
urlöndunum, Þýskalandi, Frakk-
landi og Bandaríkjunum, auk ein-
staka manns frá öðmm þjóðum.
Samkvæmt reglugerð er þess
krafist að erlendir vísindamenn
sæki um leyfí til rannsókna hér, en
þau eru nær undantekningarlaust
veitt. Tilnefndur er íslenskur eftir-
litsmaður með hveijum vísindahópi,
og vísindamennimir verða að skila
skýrslu um niðurstöður rannsókna
sinna til íslenskra yfírvalda.
ASÍ og BSRB
mótmæla lyfja-
reglugerð
ASÍ og BSRB mótmæla nýrri
reglugerð um greiðslu almanna-
trygginga á lyfjakostnaði.
I sameiginlegri fréttatilkynningu
sem samböndin sendu frá sér í gær
segir að ætla megi að þessar breyt-
ingar hækki lyfjakostnað á hvern
einstakling og skerði kaupmátt
launa sem nemur 0,2-0,4%. Enn-
fremur segir að hækkunin sé ekki
í samræmi við þau samskipti, sem
hafa verið á milli ríkisstjómar og
launþega að undanförnu.
ASÍ og BSRB munu fara fram á
viðræður við heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið um afnám eða
breytingar á hinni nýju reglugerð.
Breytingar á námslánum:
Útifundur námsmanna
á Lækjartorgi í dag
Námsmannahreyfingarnar efna í dag klukkan 17 til mótmælafund-
ar á Lækjartorgi vegna fyrirhugaðra breytinga á úthlutunarregluni
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
í fréttatilkynningu frá sam-
starfsnefnd námsmannahreyfíng-
anna segir, að með fundinum vilji
námsmenn sýna samstöðu sína og
eindregna andstöðu við fyrirhugað-
ar breytingar á úthlutunarreglum
Lánasjóðsins, en þær séu á skjön
við grundvallarmarkmið sjóðsins
um að jafna tækifæri manna til
náms óháð efnahag og félagslegri
stöðu.
Fram kemur í tilkynningunni, að
á fundinum muni fulltrúar náms-
manna flytja ávörp og Bubbi Mort-
hens Ieika nokkur lög. Kynnir á
fundinum verði Jóhann Sigurðar-
son, leikari. Þá segir að mennta-
málaráðherra, Ólafi G. Einarssyni,
hafi verið boðið að ávarpa fundinn.
Að samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfínganna standa Stúdentaráð
Háskóla íslands, Bandalag sér-
skólanema og Samband íslenskra
námsmanna erlendis.