Morgunblaðið - 13.06.1991, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JUNI 1991
Skjaldbökuleikir:
Stórhættulegt er að leika
sér í holræsum borgarimiar
- segir Sigurður Skarphéðinsson aðstoðargalnamálastjóri
„HOLRÆSIN eru stórhættuleg.
í þeim er frárennsli frá húsum
sem veldur smithættu. Þau eru
ógeðsleg og. hætt er við að
krakkar, sem fara ofan í ræsin,
rati ekki út aftur. Sömuleiðis
er hætt við að þeim skriki fótur
í ræsinu. Því verður að gera
alit sem í mannlegu valdi stend-
ur til að stöðva þetta,“ sagði
Sigurður Skarphéðinsson, að-
stoðargatnamálastjóri, þegar
hann var spurður um hætturn-
ar sem gætu fylgt því að líkja
eftir einum vinsælustu teikni-
myndapersónum yngstu kyn-
slóðarinnar, Skjaldbökunum,
með því að klifra niður í hol-
ræsi. Skjaldbökurnar, öðru
nafni „Turtles", lifa í holræsa-
kerfi New York-borgar þar
sem þær lenda í ýmsum ævin-
týrum. Lögreglan sótti unga
drengi í skjaldbökuleik uppúr
tveimur holræsum í Reykjavík
í fyrrakvöld.
„Litlir krakkar geta ekki opnað
brunnlok yfir holræsunum. Lokin
vega tugi kílóa auk þess sem verk-
færi þarf til að opna þau. Því er
sennilegra að eldri krakkar hafi
opnað holræsin," sagði Sigurður
í samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að holræsin í borginni væru
yfírleitt þröng með töluverðu frá-
rennsli en benti á að í Breiðholti
væri vitað um stór holræsagöng
sem yfirleitt væru þurr. „Við
munum koma fyrir grindum í
þessi op til að koma í veg fyrir
að krakkar komist ofan í göngin
en þau geta verið stórhættuleg
Morgunblaðið/Þorkell
Eins og sjá má hefur ýmis konar varningur verið framleiddur í
tengslum við Skjaldbökuæðið. Til hægri sést lítill Skjaldbökuaðdá-
andi en hún heitir Hulda.
ef rignir því þá fyllast þau af
vatni,“ sagði Sigurður.
Uppáhalds dótið
Eins og áður segir hafa Skjald-
bökurnar notið mikilla vinsælda
meðal yngstu kynslóðarinnar að
undanförnu og margir krakkar
safna að sér hvers kyns dóti sem
framleitt er í tengslum við Skjald-
bökumar.
Einn þessara aðdáenda Skjald-
bakanna er ijögurra ára strákur
á barnaheimilinu Efrihlíð sem
heitir Fannar. í stuttu rabbi við
blaðamann sagðist hann eiga tvo
Skjaldbökukalla og einn vondan
nashyrningskall. „Með playmó eru
þeir uppáhaldsdótið mitt en mér
finnst líka gaman í bílaleik. Ég
fékk kallana í afmælisgjöf frá
pabba mlnum þegar ég varð fjög-
urra ára en ég á líka Skjaldbök-
ulímmiða með Skjaldbökuköllum
í bílum. Ég horfi stundum á
iskjaldbökurnar í sjónvarpinu og
æinu sinni tók vondi kallinn Slipp-
ær [rottu Skjaldbakanna] og batt
hana á höndum og fótum en svo
komu Skjaldbökurnar og björguðu
henni,“ segir Fannar og útskýrir
fyrir blaðamanni að Skjaldbök-
urnar fjórar, sem allar heita eftir
ítölskum listamönnum, beri hver
sitt sverðið sem þær noti í viður-
eignum sínum við vonda kallinn.
Erfitt að standa á móti
Áslaug Jónsdóttir, mamma
Fannars, er ekki eins hrifin af
Skjaldbökunum og sonur hennar.
„Mér finnst mikið ofbeldi fylgja
Skjaldbökunum og þær eru mun
minna þroskandi en til dæmis
playmobil-leikföng. Þess vegna
reyni ég að stilla því í hóf hvað
Fannar horfir mikið á Skjaldböku-
myndirnar sem til eru á mynd-
bandaleigum en við erum ekki
með Stöð 2 svo hann horfir ekki
á teiknimyndimar þar.“
Ofbeldisleikföng
Anna Helga Hilmarsdóttir,
fóstra í Efrihlíð, tekur í sama
streng og Áslaug. „Við reynum
að hafa áhrif með því að ræða
við börnin. Segja þeim að okkur
finnist þetta ekki falleg leikföng
og spytja þau hvaða skoðun þau
hafi á köllunum," segir Anna
Helga og bendir á að Skjaldbök-
urnar séu bannaðar á barnaheim-
ilinu. „Við erum ekki með Skjald-
bökur og við viljum ekki að krakk-
arnir komi með þær að heiman á
dótadögum því þær teljast til of-
beldisleikfanga sem eru bönnuð
hér,“ segir hún og bætir við að
börnin verði oft æst þegar þau
leika sér með Skjaldbökurnar og
oftar en ekki gefa þau frá sér
alls kyns hljóð án þess að mynda
orð. Þetta segir Anna Helga að
séu áhrif frá sjónvarpsglápi. Með
því að hlusta á börnin sé auðvelt
að þekkja þau úr sem horfí mikið
á sjónvarp.
Hraðfrystiiðnaðurinn:
Stöðvun blasir við hálfum öðr-
um tug fyrirtækja að óbreyttu
Ratsjárstöð varnarliðsins á
Stokksnesi.
Fjarskiptastöðvar
Bandaríkjahers:
Áætlaðri
lokunflýtt
ARNÓR Siguijónsson hjá varn-
armálskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins segir, að ástæðan fyrir
ákvörðun Bandaríkjamanna um
að loka fjarskiptastöðvum
bandaríska hersins á Stokksnesi,
Keflavík og i Færeyjum 1. sept-
ember nk., sé fyrst og fremst
vegna þess að kerfið er gamalt
og dýrt i rekstri. Auk þess hafa
bandarísk stjórnvöld ákveðið að
skera niður fjárveitingar til hers-
ins um 25%. í undirbúningi er
umsókn til Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar um framlag til
að reisa hér tvær jarðstöðvar er
taki við fjarskiptunum.
Arnór sagði, að ljóst hafi verið
að kerfinu yrði lokað vegna aldurs
en að það yrði í haust og með svo
stuttum fyrirvara hafi komið á
óvart. Allt hafi bent til þess að
reikna mætti með þessu kerfí fram
til ársins 1992. Sagði hann að ís-
lensk stjórnvöld hefðu fundað með
hagsmunaaðilum en aðalþolandinn
er Flugmálastjóm og hefur utanrík-
isráðuneytið fyrir hönd stjómvalda
farið þess á leit við Bandaríkjamenn
að þeir fresti lokun á kerfinu um
eitt ár eða til haustsins 1992. Til
vara er óskað eftir að Flugmála-
stjóm fái aðgang að fjarskiptarás-
um Bandaríkjamanna þeim að
kostnaðarlausu.
Amór sagði, að í undirbúningi
væri umsókn um fjárveitingu til
Alþjóðaflugmálastofnunar i sam-
vinnu við Flugmálastjóm, Sam-,
gönguráðuneyti og Bandaríkja-
menn til að reisa tvær jarðstöðvar,
sem tækju á móti gervihnattasend-
ingum og tækju við af núverandi
kerfi. Reiknað er með að bygging
slíkra stöðva taki eitt ár og að
kostnaður við hverja stöð sé um 30
milljónir króna.
UM ÞAÐ bil hálfur annar tugur
fyrirtækja í hraðfrystiiðnaðinum
á nú í miklum rekstrarerfiðleik-
um, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, og blasir við fyrir-
tækjunum stöðvun að óbreyttu.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær að vitað
væri að ýmis fyrirtæki í þessari
grein ættu við erfiðleika að
glima, en kvaðst ekki hafa upp-
lýsingar um fjölda þeirra eða
umfang erfiðleikanna. Hann
sagði að innan ríkisstjórnarinnar
hefði ekki verið tekið á því,
hvernig brugðist yrði við gagn-
vart þessum fyrirtækjum, leiti
þau þar ásjár. „Það hefur ekki
verið gert, hins vegar vara ég
mjög við því að menn leiti þess-
ara gervilausna sem fyrrverandi
ríkisstjórn fór í,“ sagði Þor-
steinn.
Meirihluti þessara fyrirtækja sem
um ræðir hefur fengið fyrirgreiðslu
Hlutafjársjóðs Byggðastofnunar og
Atvinnutryggingarsjóðs útflutn-
iungsgreina. Fyrirtækin eru í öllum
Iandshlutum, þó er Morgunblaðinu
ekki kunnugt um að neitt þeirra sé
á höfuðborgarsvæðinu.
Ekkí verður liðið að hlaupið sé
undan með verðmæti úr búinu
- segir Sverrir Hermannsson bankastjóri um gjaldþrot Hraðfrystihúss Olafsvíkur
HRAÐFRYSTIHÚS Ólafsvíkur hf. var lýst gjaldþrota í gær. Bústjóri
hefur verið skipaður Jóhann H. Níelsson, hæstaréttarlögmaður. Sverr-
ir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, segir að hlutafélögin sem
skráð eru fyrir togaranum Má og þremur bátum, sem lagt hafa upp
hjá Hraðfrystihúsinu, séu málamyndafélög og bankinn krefjist þess
að skipin verði tekin aftur inn í bú frystihússins. Ólafur Gunnarsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, mótmælir því harðlega að um undan-
skot eigna hafí verið að ræða þegar stofnuð voru sérstök félög um
rekstur skipanna.
Á föstudaginn á að kröfu Lands-
banka íslands að fara fram annað
og síðara uppboð á togaranum Má,
sem lagt hefur upp hjá Hraðfrysti-
húsinu. Bjöm Líndal, aðstoðarbanka-
stjóri Landsbankans, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að bankinn
hafi ekki enn beðið um frestun á
uppboðinu, en endanleg afstaða til
þess verði tekin á fundi bankastjóm-
ar í dag.
Togarinn og þrír bátar, sem einnig
hafa lagt upp hjá Hraðfrystihúsinu,
eru í eigu sérstakra hlutafélaga, en
veiðum þeirra hefur verið stýrt frá
fyrirtækinu. Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, segir
varðandi uppboð á Má, að bankinn
hafi ekki uppi nein áform um að flytja
skip eða kvóta frá Ólafsvík. „Það sem
við þurfum að gera, er að hreinsa til
í þessu máli um ieið og við viljum
styðja heimamenn í að rétta allt þetta
við. Það voru stofnuð þarna mála-
myndafélög og þeim seld skipin, að
því er virðist þegar mönnum sýndist
vera farið að haila undan fæti og
að til gjaldþrots gæti komið. Lands-
bankinn mun ekki líða, að menn
hlaupi fyrir horn með verðmæti, sem
eiga heima í búinu. Bankinn gerði í
vetur kröfu um að skipin yrðu aftur
færð inn í fyrirtækið og eftir því
verður gengið,“ segir Sverrir Her-
mannsson.
Ólafur Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihússins, segir að
ummæli um að reynt hafi verið að
skjóta eignum undan séu fráleit. Mál
þrotabúsins sé nú til meðferðar hjá
réttum aðilum og þar muni koma í
ljós hvort ásakanir af þessu tagi séu
á rökum reistar.
Þorsteinn Pálsson sagði að vafa-
Iaust væri engin einhlít skýring á
vanda fyrirtækjanna. Sums staðar
væru menn með margra ára eða
áratuga uppsafnaðan vanda, í öðr-
um tilvikum kunni að vera um
óstjórn að ræða. „Það eru enda-
laust til skýringar á því hvers vegna
fyrirtæki lenda í slíkum erfíðleikum.
Ég held að ekki sé nein algild skýr-
ing á því.“
Hann sagði að nú væri að koma
í ljós að svokallaðar björgunarað-
gerðir í gegn um sjóði fyrrverandi
ríkisstjórnar hafi ekki verið lausn á
vanda fyrirtækja. „Þær fólu í sér
að vandamálum var sópað undir
teppi og glansmyndin sem dregin
var upp fyrir kosningar var fölsuð.
Þetta er kjami málsins sem menn
eru að horfast í augu við núna.
Þetta kemur fram í vanda fjöl-
margra fiskvinnslufyrirtækja, þetta
kemur fram I rekstri rækjuverk-
smiðjanna, ullariðnaðinum, hvar-
vetna í atvinnulífinu."