Alþýðublaðið - 24.12.1940, Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLAÐSINS
5
GLEÐILEG JOL!
Reinh. Andersen, klæðskeri.
Biskupsstofan á Hólum úr „Galdra-Lopti“ Jóhanns
Sigurjónssonar. Sviðið er nákvæmlega eftir gamalli
mynd af biskupsstofunni.
gröf sinni með Rauðskinnu, en bráðlæti Lopts sjálfs
varð honum að falli, því strax þegar hann sá hana, þreif
hann til hennar, en það var of snemmt og af misskiln-
ingi hringdi einn af félögum Lopts klukkunum og Gott-
skálk komst í gröfina með Rauðskinnu með sér. Það má
búast við, að í sögunni sé sá sannleikskjarni, að Loptur
hafi virkilega reynt að vekja Gottskálk biskup upp, og
gert samning við djöfulinn, en tilraunin hlaut auðvitað
að misheppnast. Hafi svo Steinn biskup komist á snoðir
um athæfi Lopts, hefir hann tekið það sem hvert annað
strákapar og látið sér nægja að áminna hann.
Um samband Lopts við kvenfólk eru engar sagnir "
nema í þjóðsögunni, sem segir frá því að hann hafi
einu sinni, þegar hann fór heim í jólafríi, tekið eina
vinnukonuna á Hólum og járnað hana og lagt við hana
beisli og riðið henni gandreið heiman og heim. Öðru
sinni drap hann stúlku á staðnum, sem var þunguð af
völdum hans. Gerði hann það á þann hátt, að eitt sinn,
er hún var að bera aska inn í eldhús og úr því, að hann
lét göng opnast fyrir henni í miðjum vegg, og er hún
hafði gengið inn í þau, luktist veggurinn. Það er erfitt
að segja nokkuð um það hvort nokkur sannleikur fel-
ist í þessari sögusögn, en ekki þarf annað til, en að
stúlka hafi horfið á Hólum á skólaárum hans til þess að
slík saga hafi getað myndast, þar sem almenningur
trúði því að hann væri rammgöldróttur. Var sú trú svo
mögnuð, að þegar einn af skólabræðrum hans eitt sinn
var á ferð heim til sín fyrir jól og hreppti illviðri og
skaðkól, kenndi hann það göldrum Lopts.
T-j RÁTT fyrir allan þann orðróm, sem gekk um Lopt
* á Hólum, verður það ebki séð, að Steinn biskup
hafi látið hann gjalda þess að neinu. En það er líklegt
að hann hafi einmitt verið í áliti hjá biskupi vegna lær-
dóms, enda fekk hann góðan vitnisburð. Menn vita líka
með vissu, að Páll lögmaður Vídalín þekkti hann ,enda
voru tveir fóstursynir lögmanns samtíma honum í
skóla. Hafði lögmaður sjálfur áhuga á göldrum og ekki
ólíklegt að Loptur hafi komið í Víðidalstungu til hans á
ferðum sínum að vestan og til Hóla. Hefir orðrómurinn
um Lopt aðeins orðið til þess að auka löngun lögmanns
til að kynnast honum.
GLEÐILEGJÚL!
Samband ísl. samvinnufélaga.
GLEÐILEG J ÚLl
Skóbúð Reykjavíkur.
GLEÐILEG JÖL!
Sápuverksmiðjan Sjöfn.
GLEÐILEG J O L!
Verzlun Sig. Þ. Skjaldberg.
Laugavegi 49.
GLEÐILEGRA JÓLA
óskar öllum
Silkibúðin.
GLEBILEGJÖL!
Slippfélagið í Reykjavík.
«NM