Morgunblaðið - 02.11.1963, Blaðsíða 5
. f^auRardagur 2. nóv. 1063
HOHGUNBLA&13
Hcuraldur Sveinsson, íonnaður Árvaks:
Morgunb laðið
og Sigfús Jónsson
ÞEGAR Morgunblaðið minn-
ist 50 ára afmælis síns, horfir
það á bak brautryðjendunum,
sem byggðu það upp og lögðu
grundvöll að gengi þess. En
einn er þó sá, sem eftir stend-
lir, mitt í erilsöi. > og ábyrgð-
arríku starfi. Þaö' er Sigfús
Jónsson, framkvæmdastjóri
blaðsins. Hann hefur nú starf-
að hjá fyrirtækinu í rúm 40
ár, því hann réðst í þjónustu
þess 25 ára gamall, árið 1923,
og var fyrst um sinn gjald-
keri þess.
Þegar Sigfús Jónsson kom
til Morgunblaðsins, var fjár-
hagur þess þröngur og fram-
tíðarhorfur ekki sérlega bjart
ar.
Svo var enn um langan
tíma, allt þar til atvinnulíf
landsins tekur að rétta við,
um og eftir 1940. Smátt og
smátt tekst að framkvæma
verulegar umbætur á efna-
hag fyrirtækisins. Sigfús Jóns
son tekur mikinn og virkan
þátt í uppbyggingu blaðsins
um leið og hann hvetur til að-
gæzlu og varfærni, hann vill
að breytingarnar komi í á-
föngum, án þess að fjárhagin-
um sé stefnt í voða. Hann er
alltaf með hugann við fyrir-
tækið og finnst framgangur
þess vera sem sinn eiginn. í
þröngu og ófullkomnu hús-
næði, sem framkvæmdastjóri
hafði lengst af til umráða, var
allt í röð og reglu undir stjórn
hans.
Þegar Morgunblaðinu vex
fiskur um hrygg og það tek-
ur að rétta úr kútnum, verð-
ur Sigfús Jónsson fram-
kvæmdastjóri þess og vinnur
enn sem fyrr að eflingu þess
og áframhaldandi uppbygg-
ingu. Nú hefst hið mikla
framkvæmdatímabil í sögu
blaðsins.
Byrjað er á að kaupa prent-
smiðju, síðan lóð og hafizt er
handa um að byggja yfir starf
semi blaðsins. En við mikla
erfiðleika var að etja, sem þó
er óþarft hér að telja. En nú
reyndi mikið á Sigfús.
Sigfús Jónsson bætti nú á
sig óhemju starfi við að
stjórna byggingarfram-
kvæmdum við hús blaðs-
ins, kom öll sú vinna
ofan á fullan vinnudag
við hina daglegu fram-
kvæmdastjórn blaðsins. En
Sigfús lét ekki erfiðleikana
buga sig, heldur stæltist við
hverja raun. Og að lokum
kom að því að blaðið flutti
alla sína starfsemi undir sitt
eigið þak, snemma vors 1956.
Þá er víst að Sigfús Jóns-
son andaði léttara. Erfiðasti
hjallinn var að-baki.
En Sigfús hefur ekkert
slakað á, heldur hvatt áfram
til þess, að Morgunblaðið
byggði upp aðstöðu sína og
keppti að því að vera í farar-
broddi í blaðamennsku á ís-
landi.
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri.
Frá því að Mbl. eignaðist
sína eigin prentsmiðju, sem
nú er ein stærsta prent-
smiðja landsins, hefur Sigfús
Jónsson verið prentsmiðju-
stjóri hennar, jafnhliða fram-
kvæmdastjórastarfi sínu.
Þótt verkefni Sigfúsar hafi
fyrst og fremst verið dagleg
fjármála- og framkvæmda-
stjórn, hefur hann þó jafnan
fylgzt vel með efni blaðsins,
glaðst yfir að sjá þar góðar og
læsilegar greinar, og alltaf
viljað hafa visst jafnvægi
milli lesefnis og auglýsinga
og þá stundum orðið að vera
sáttasemjari milli ritstjórnar,
sem alltaf vill miðla lesend-
um sem mestum fróðleik og
svo áhugasamra auglýsenda,
sem hefur þótt ótrúlega erfitt
að koma auglýsingum í blað-
ið þótt full greiðsla sé boðin.
í daglegri umgengni er
Sigfús Jónsson heldur fá-
skiptinn, en jafnframt hið
mesta prúðmenni. Við nánari
kynni kemur í ljós valmenni,
sem jafnan vill greiða götu
samstarfsmanna sinna. Hon-
um hefur ekki alltaf verið
létt um að greiða fram úr
vandkvæðum samstarfs-
manna sinna, sem stundum
hafa leitað til hans í erfiðleik-
um sínum. En flestum þeirra
mun þó hugstæðast úr við-
skiptum við hann, að þeir
gengu af fundi hans léttari í
spori og hýrari í bragði, en
við komu sína. Trygglyndi
hans og drengskapur munu
ekki síður verða samstarfs-
mönnum hans hugstæð en ár-
vekni hans og dugnaður við
f r amkvæmdast j órnina.
Höfuðeinkenni Sigfúsar
Jónssonar í daglegu starfi er
hógværð og yfirlætisleysi. En
bak við það liggur sterkur
vilji og heilsteypt skapgerð.
Þeir eiginleikar fram-
kvæmdastjóra Morgunblaðs-
ins hafa reynzt blaðinu drjúg-
ir til giftu og gengis þau 40 ár,
sem hann hefur starfað við
það.
Á þessum tímamótum í ævi
Morgunblaðsins þakka útgáfu
stjórn og ritstjórn blaðsins
Sigfúsi Jónssyni hin miklu
störf hans í þágu þess. Sam-
starfsmenn hans og vinir
þakka honum góða og drengi-
lega samvinnu, um leið og
þeir óska honum alls velfarn-
aðar í framtíðinni. Megi
Morgunblaðið sem lengst
njóta starfskrafta og hollra
ráða Sigfúsar Jónssonar.
Haraldur Sveinsson.
KOfVNARTÆKl
Útvegum köfunartæki frá
flestum kunnustu framleið-
endum heims. Komplett sett
frá kr. 6 þús., einnig ljós-
mynda- og veiðitæki fyrir
sportkafara. Sjóskíðaföt og til
heyrandi. Fáein sýnishorn fyr
irliggjandi og væntanleg í
verzl.. Sport, Laugavegi 13.
ÖRN INGÓLFSSON,
Leifsgötu 16 .— Sími 18158.
VIGGÓ ODDSSON,
HvasSaleiti 6. — Sími 24818.
Kveðja frá AP
EFTIRFARANDI afmæliskveðju hefur Stanley M.
Swinton, forstjóri AP, sent Morgunblaðinu:
Á fimmtíu ára afmæli Morgunblaðsins — hinum
merku tímamótum í sögu mikils dagblaðs — leyfi ég
mér að senda yður árnaðaróskir fréttastofunnar
Associated Press.
í ævi mannsins eru fimmtíu ár miður aldur. En nú
byrjar Morgunblaðið annað hálfrar aldar skeið með
þrótti æskunnar og vizku ellinnar. Þúsundir starfsfé-
laga yðar hjá Associated Press-fréttastofunni um all-
an heim, senda kveðjur sínar á þessum merkisdegi.
Óska Morgunblaðinu til ham-
ingju með 50 ára afmælið og
gæfu og gengis á komandi árum.
O. P. NIELSEN
raf virk j ameistari.
Síðan 1910 hefur vand-
látt kvenfólk getað
lceypt vandaða vöru,
vandlátra fram-
leiðenda.
í meira en 50 ár hefur
Konten’s
verið í fremstu röð með
al framleiðenda líf-
stykkjavara.
Snið hafa breytzt og
tæknin hefur lagt til
ný og betri efni — en
beztu sniðin og vönd-
uðustu efnin hafið þér
jafnan getað valið í
hinu fjölbreytta úrvali
lífstykkjavara frá
Kanterís