Morgunblaðið - 02.11.1963, Page 21
Laugardagur 2vnov. 196S
»y<P/ ftUHPé£PéÐ
<w
m
Höfðu sen.difcæ'ki skipsins bilað,
en móttökutí/ski voru í lagi. Er
síðan vandlega rakið í fréttunuim
hvernig skipið fánnst, og skýrt
tfrá allri leiitinni, sem var mjög
umfangsmií' il atf hálfu íslend-
inga, Banífcrikjamanna og Kan-
adamaruji*- .Tiðtal var við leitar-
mennina. fundu skipið. Skýrt
var frá samtolum á loffcbylgjum,
er fóru fram milli fólks í landi
og skipverja á Þormóði goða.
Viðtal vti' vi<5 foreldra tveggja
bræðra J I*''-\nusi, og kváðu þau
viðtalið viö Oiaf loftskeytamann
hafa gefið sér nýja von. Raett
var vUÍ '*»»■ skipsfcjóra og dótt-
ur. Eiginkona skipstjórans sagð-
ist hafa verið viss um, að skipið
væri ofansjávar, því að sig hefði
ekki öreymt mann sinn. Enn
eitt viðtalið var við Ólaf loft-
skeytamann, sem alltaf kvaðst
hafa verið viss um, að Úranus
væri ‘heilfl. á húfi. Hringt var til
skipstjórans á Þormóði goða og
talað við hann, birt kort af N-
Atlantshafi og merkt inn á, hvar
Úranus var staddur, haft sam-
tal við bandaríska flugstjórann
é ieitarflugvélinni o.s.frv. Á for-
síðu var mynd af Úranusi á heim
sigling.u, sem tekin var, þegar
togarinn fannst.
15. jan. voru viðtöl í Mbl. við
skipverja á Þormóði goða, sem
|þá var kominn til Reykjavíkur,
og 16. jan. er skýrt frá komu
Úranusar. Mikifll mannfjöldi tók
é móti skipverjum, enda segir
svo í frétt Mbl.: „Mun vart hafa
ríkt meiri fögnuður yfir endur-
heimt nokkurra manna, síðan
tflugvélin Geysir fannst á Vatna-
jökli fyrir áratug“.
Viðtal var við skipstjórann, og
kcm þá í Ijós, sem mörgum þótti
merkilegt, að ummæli Ólafs loft-
skeytamanns reyndust rétt. Skip-
stjóri sagði: „Þefcta var smá and-
skotans hnútur, sem kom á brúna
stjórnborðsmegin og braut
nokkra glugga, og þá blotnuðu
tækin“. Myndir voru birtar af
vinum og vandamönnum, sem
voru að fagna sikipverjum, og
viðtöl við nofckra þeirra. Skýrt
var frá flugi gæzluflugvélarinnar
Ránar til Úranusar, ræfct við
yngsta manninn um borð, þann
sem stýrði skipinu, þegar brot-
sjórinn reið yfir, loftskeytamann-
inn o.fl..
Loftmynd frá Öskjugosinu í okt. 1961.
Hér hefur verið rakin að
nokkru leyti — en ekki nándar
nærri. öllu — hvernig Morgun-
blaðið fylgdist með einu máli.
11. marz 1961 var samkomu-
lag Breta og íslendinga í land-
helgisdeilunni formlega stað-
fest. Mbl. sagði í fyrirsögn:
„Deilumálunum lokið“. Með
þessu vannst einn mesti sigur í
þjóðarsögunni.
25. april var skýrt frá öðru
fagnaðarefni: „Handritin til ís-
lands“. Þar var skýrt frá sam-
þykki íslenzku ríkisstjórnarinn-
ar við tilboði Dana um afhend-
ingu á megni handritanna. —
Því miður bar svo þjóðþing
Dana ekki gæfu til að staðfesta
þetta síðar.
14. okt. skýrði Mbl. frá því
fyrst blaða, að eitthvað væri að
gerast við Öskju: „Umbrot við
Öskju. Miklir gufumekkir sjást
úr flugvél“. Síðan var fylgzt
með umibrotunu/m, unz 27. okt
að sagt var yfir þvera forsíð-
una: „Öskjugos. Hraunstraumur-
inn í gærkveldi lengri en í öllu
Heklugosinu“. Fyrstu lýsingar
á gosinu bárust Mbl. frá flug-
mönnum úr varnarliðinu, sem
voru á venjulegu eftirlitsflugi
kvöldið áður. Þá var ekki beðið
boðanna, heldur fengin flugvél,
og síðan flugu fréttamenn og
ljósmyndari Mbl. að gosstaðn-
um ásamt dr. Sigurði Þórarins-
syni. Voru þeir fyrstir á staðinn
og því fyrstir til að lýsa gos-
'3r
■&> £ •> &
* i
v r -
< «■*»
'y A Sv
ílillllllillllll
mm
• xivXv.y.:- :n -' ■•>•*>• .
Fyrsta blaðamyndin frá gosstöðvunum í Öskju birtist í Mbl. 29. okt. 1961. Mennirnir standa fyrir framan yzta jaðar hrauntungu.
(Ljósm.: Arnþór Björnsson)
(Ljósm.: Tryggvi Helgason)
Lengra verður „annáll“ þessi
ekki rakinn, enda héðan af um
nýlega atburði að ræða, sem
mönnum eru enn í fersku minni.
mimiL
að auglýsing i stærsta
og útbreiddasta blaðmu
borgar sig bezt.
JARÐYTUVINNA
GRÓFTUR
ÁMOKSTUR
HÍFINGAR
^iarðvi
iinslan sf