Morgunblaðið - 02.11.1963, Qupperneq 60
00
MORCV N BLAÐIÐ
Laugardagur 2. nóv. 1963
Sundurlausir þankar
Morgunblaffið var til húsa í Austurstræti 8 til ársins 1956
EFTIR ÞORBJÖRN
GUÐMUNDSSON
ÞAÐ MÁ með sanni segja að
starf blaðamanna hvar sem er
og á hverjum tíma sé hið sama,
eða að minnsta kosti svipað.
Þannig er það og í eðli sinu —
en ytri aðstæður geta þar mörgu
breytt. Æskilegast er að sjálf-
sögðu að starfssvið hvers og
eins sé nokkuð þröngt þannig
að hann geti einbeitt sér af
sem mestri orku að ákveðnum
verkefnum. Þeirri skiptingu verð
ur þó ekki við komið nema á
blöðum með mannmörgu starfs-
liði — og fyrir það líða hin
mninni blöð.
Miklar breytingar hafa orðið
á Morgunblaðinu á þessu sviði
sem öðrum á þeim rúmlega tutt-
ugu árum, sem 'ég hefi unnið
við blaðið, þar sem í fyrstunni
var hægt að telja blaðamenn-
ina á fingrum annarrar hand-
ar. Þá varð sami maðurinn að
gera allt, safna fréttum, skrifa
þær, lesa prófarkir, annast próf-
arkasamanburð og koma þeim
á sinn stað — og þetta ailt á
mettíma. Það var því ekki við
góðu að búast, og þó furða að
ekki skyldi ver takast.
# Þridáikurinn
Þegar auglýsingarnar voru á
forsiðu blaðsins, var erlendum
fréttum ætluð 2. síðan, en inn-
lendum fréttum sú 3. Það var
aldrei neinn hörgull á erlendum
stórfréttum á stríðsárunum, þar
var af nógu að taka. Vígstöðv-
arnar sáu fyrir því. Erfið hlust-
unarskilyrði voru það eina, sem
sett gat strik í reikninginn. Þeir,
sem á innlendri vakt voru, hugs-
uðu fyrst og fremst um að ná í
„þrídálkinn“, það er að segja
eina frétt, sem hægt var að
hafa með þrídálka fyrirsögn að
minnsta kosti. Ágætt var svo að
krækja í tvær eða þrjár tvídálka
fréttir og nokkra eindálka
stubba. Þá var síðunni borgið.
Þá eins og nú tók eltingaleikur-
inn við fréttirnar oftast lengst-
an tíma, og eftirtekjan ekki ætíð
í fullu samræmi við erfiðið.
# Vildu ekki — en verffa
Margar myndir og minningar
koma upp í hugann, þegar litið
er yfir farinn veg þótt ekki sé
hann langur. Það er oft gaman
að vera í miðri hringiðunni. En
því ber ekki að neita að það
reynir stundum á þolrifin.
Stærstu fréttirnar eru oft þær
verstu. Og auðvelt verður starf
blaðamannsins þá ekki. Hann
getur ekki hopað á hæli, og er
þar, sem hann vildi kannski
sízt vera. Þeir munu ekki heldur
margir blaðamennirnir, sem
ekki hafa einu sinni eða oftar
óskað þess að hafa aldrei nálægt
því starfi komið.
En það er ekki ætlunin að
ræða um starf blaðamannsins al-
mennt í þessum fáu línum. Mér
datt aðeins í hug, þegar ég sett-
ist við ritvélina, að festa á blað
nokkrar sundurlausar minning-
ar, sem þó verða að engu bundn
ar þeim atburðum, sem hæst risu
á þessum tima.
• Á „gamla Mogga"
Það var ætíð mikill gesta-
gangur á „gamla Mogga“ í Isa-
foldarhúsinu við Austurstræti,
margir, sem litu þar inn. Sum-
ir áttu ekkert brýnt erindi, gerðu
þetta aðeins af göanlum vana í
von um að frétta eitthvað nýtt,
en aðrir komu með greinar eða
ábendingar. Sennilega eru mér
einna minnisstæðastir þeir fyrstu,
sem ég kynntist þannig. Af þeim,
sem nú eru horfnir, má t.d.
nefna sr. Kristin Daníelsson, Vig
fús frá Engey, dr. Helga Pjet-
urss, Hallgrím Jónsson, fyrrver-
andi skólastjóra og E.Ó.P.
Dr. Helgi átti í nokkrum erf-
iðleikum með okkur. Setjurun-
um var gjarnt á að stafsetja
nafnið hans vitlaust, sleppa öðru
s-inu, og þótt hann leiðrétti þetta
í próförk gættum við þess ekki
ætíð að fylgja leiðréttingunni
eftir. „Varið ykkur á gegnum-
trekknum", var oft það fyrsta
og síðasta, setm dr. Helgi sagði,
þegar hann kom og fór. Þótti
honum æði næðingssamt hjá okk
ur og vissi sem var að það gat
verið hættulegt heilsunnL
# Gaf engan griff
Hallgrímur Jónsson varð okk-
ur að miklu liði. Hann þreytt-
ist aldrei á að brýna fyrir okk-
ur rétt og gott málfar. Það væri
ekkert erfiðara að skrifa rétt
mál en rangt, sagði hann. Við
fengum að heyra það óþvegið,
þegar ambögur komu í blaðinu.
Og áminningu fengum við ef
okkur láðist að leggja honum
lið í baráttu hans gegn mál-
venjum, sem hann taldi að ættu
ekki rétt á sér. Við skrifuðum
t.d. að einhver hefði verið flutt-
ur á Sjúkrahús, eða ynni á skrif-
stofu, í staðinn fyrir í sjúkra-
hús og skrifstofu. „Aumingja
maðurinn, skyldi honum ekki
vera kalt uppi á þaki?“ sagði
Hallgrímur. Einnig þótti Hall-
grími miður, þegar greinar-
merkjum var sleppt í fyrirsögn-
um.
# Götóttir skór
Nokkuð bar á því að „utan-
garðsmenn“ styngju inn kollin-
um einkum þegar líða tók á
kvöldið. Minnisstæðastur þeirra
verður Dagur Austan, og sá
þeirra, sem sízt var amazt við.
Hann kom oft skemmtilega á
óvart. Eitt sinn falaðist hann eft-
ir tíkall' hjá einum blaðamann-
inum. Sá lyfti fætinum, sýndi
gat á skósólanum og sagði: „Ég
er blankur, hef ekki einu sinni
efni á að láta sóla skóna mína
eins og þú sérð“. Dagur varð
hugsi, stakk síðan hendinni í
jakkavasann, dró upp fimm 10
króna seðla og sagði: „Héma,
taktu þetta, það nær engri átt
að þú gangir í götóttum skóm“.
# Engin tæpitunga
Báðir ritstjórar blaðsins frá
þessum tíma eru nú látnir. Það
er örugglega holt ungum mönn-
um að hafa slíka húsbændur
sem þeir Jón Kjartansson og
Valtýr Stefánsson voru. Það
gustaði oft af þeim. Þeir fóru í
enga launkofa með það, sem þeim
þótti miður fara og sögðu það
tæpitungulaust, en gleymdu
heldur aldrei að hrósa því, sem
þeim þótti vel gert. Samstarf
þeirra Jóns og Valtýs var mjög
gott. Ég efast um að þeim hafi
nokkru sinni orðið sundurorða.
Valtýr hafði þann hátt á að
hringja heim til þess blaða-
manns, sem í hlut átti, ef hon-
um þótti eitthvað miður fara
eða öfugt, venjulegast eld-
snemma að okkur fannst, sem
höfðum verið á vakt kvöldið
áður. En Jón lét allt slíkt bíða
þar til menn mættu til vinnu.
Kom hann þá fram í dyrnar
á skrifstofu sinni með gleraug-
un uppi á enni og glettnin skein
úr augunum.
# Ógreidd, gömul skuld
Það þurfti enginn að starfa
lengi með Valtý Stefánssyni til
þess að finna, hve skógræktin
var honum hjartfólgin. Og ekki
aðeins skógræktin heldur einnig
sandgræðslan. Þær voru ófáar
ferðirnar, sem hann fór austur
á Rangárvelli til þess að fylgjast
með ræktunarstarfinu þar. Hann
ljómaði, þegar honum þótti sá
árangur, sem þar hafði náðst,
gefa til kynna að hægt myndi
að klæða nakið og uppblásið
landið gróðri að nýju. Barátta
hans við að opna augu almenn-
ings og fá hann til að viður-
kenna hina ógoldnu, gömlu skuld
við jörðina er alþjóð kunn.
# Illgresiff
Það getur verið að pólitísk
stórátök hafi ekki verið Valtý
að skapi, en það fékk ég þó
aldrei á honum séð t.d. fyrir
kosningar. Þvert á móti virtist
hann þá oftast í essinu sínu.
Honum fannst sem eitthvað
hlyti að vera athugavert við
Morgunblaðið, ef andstæðingarn
ir skömmuðu blaðið ekki, eða
þá ritstjórana. Eitt sinn hitti ég
hann í Vallarstræti að morgni
kosningadags á leið niður í Sjálf
stæðishús. Spurði hann hvort ég
ætlaði að vinna þar um daginn.
Ég kvað nei við, ég ætlaði að
fara upp í kálgarð og reita arfa.
„Það er gott,“ sagði hann eftir
nokkra þögn, „ég veit ekki hve-
nær á betur við að uppræta ill-
gresið en einmitt á þessum degi.“
# Máttarstólparnir
Fyrstu ár mín við blaðið voru
þeir ívar Guðmundsson og Jens
Benediktsson aðalmáttarstólpar
ritstjórnarinnar auk ritstjóranna.
Ég undraðist oft hvernig ívar
fór að því að ná öllum þessum
fréttum, það var eins og ekkert
færi framhjá honum. Hann gjör
þekkti borgina og var kunnug-
ur eða vissi deili á ótrúlega
mörgum. Þau voru ekkert fá
„skúbbin“, sem hann kom með.
— Jens var hamhleypa að hvérju
sem hann gekk og réði yfir
afbragðs penna. Prentararnir
sögðu að hann gæti „matað“
þjár setjaravélar samtímis, ef
í nauðir ræki. Það var sjónar-
sviptir að þeim góða dreng, er
féll frá alltof ungur.
# Einn íslendingurinn enn
Ég fékk fljótt það verkefni á
blaðinu að skrifa um íþróttir,
aðallega frjálsíþóttir, og í sam-
bandi við þær eru ef til vill
ánægjulegustu minningamar
bundnar. Það var á þeiim tima.
þegar fleiri áhorfendur mættu
á vellinum til þess að horfa á
eitt félagsmót í frjálsíþróttum
en landskeppni nú. Þórunin var
þá ör, sprottin upp af almenn-
um áhuga. Sennilega hefi ég
aldrei verið stoltari en á er-
lendum vettvangi að stríðinu
loknu, þegar hver íslenzki æsku-
maðurinn af öðrum reyndist of-
RAÐSÓFIhí^a^itekt SVEINN KJARVAL
litið & húsbúnaðinn hjá húsbúnaði • • •
EKKERT HEIMILI ÁN HÚSBÚNAÐAR
SAMBAND HÚSGAGNAFRAMLEIÐENÐA
laugavegi 26 simi 209 70