Morgunblaðið - 07.12.1967, Síða 1
32 SIÐUR
54. árg. 279. tbl.
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1967.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fyrir skömmu kom sveit sovézkra sprengjuflugvéla i „kurt-
isisheimsókn“ til Kairo höfuS borgar Egyptalands. Myndin
sýnir þrjár hinna tíu sprengju fiugvéla, áður en þær lentu á
flugvellinum þar. Talið er, að með þessu hafi Rússar viljað
láta í ljós stuðning sinn við Egypta í deilunni við ísrael, en
atburður þessi sýnir einnig vaxandi áhrif Sovétrikjanna í
Arabaríkjunum.
Helsingfors þakin nýföilnum snjo
og líkust glitrandi jólakorti
- á hálfrar aldar afmœli finnska lýð-
veldisins í gœr
Helsingfors, 6. desember,
AP-NTB.
Finnski fáninn var dreginn
að hún í mikilli snjókomu í
dag kl. 9 árdegis að venju á
þjóðhátíðardaginn á svo-
nefndri Útsýnishæð. Helsing-
fors líktist, eins og hún gerði
fyrir hálfri öld, glitrandi jóla-
korti. Þök húsanna og greinar
trjánna voru hvít af snjó og
djúpur snjór á götunum.
Þingmaðurinn Johannes
Virolainen flutti ávarp við
athöfnina á Útsýnishæð og
tveimur klukkustundum síð-
ar lögðu tveir ráðherrar
finnsku stjórnarinnar blóm-
sveig að minnismerki þeirra,
sem féllu í hópi rauðliða í
borgarastyrjöldinni, eftir að
lýst var yfir sjálfstæði lands-
ins í desember 1918. Á hádegi
var lagður annar blómsveigur
ur, í þetta sinn af Kekkonen
forseta og einum ráðherranna
við grafir hermanna við
Áskorun þriggja stœrstu stjórnmálaflokka V-Evrópu:
Viðræöur verði strax teknar upp
við Breta um inngöngu í EBE
De Caulle kallaður síðasti ráðherra Lúðvíks 14.
París. 6. desember NTB.
J’KÍK helztu stjórnmálaflokkar
landa Vestur-Evrópu, krlstilegir
demókratar, sósaldemókratar og
frjálsiiyndir báru I dag fram til-
tögu um, að þegar yrðu teknar
upp samningaviðræður varðandi
aðild Breta að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu.
Var þetta gert með áskorun,
sem kemur fram í „Parísar-
yfirlýsingu", sem samin er af
þingmönnum, er þátt taka í fund-
um Vestur-Evrópu-bandalagsins
í París, en í því eru hin sex
ríki Efnahagsibandalagsins og
Bretland.
I>eir franskir gaullistar, sem
þátt taka í fundum Vestur-
Evrópubandalagsins gengu 'f
fundi í dag annan daginn í röð,
eftir að einn af belgísku fulltrú-
unum hafði lýst því yfir, að svo
kynni að fara, að á dómsdegi
yrði litið á de Gaulle sem hinn
siðasta af ráðherrum Lúðvíks 14.
freipur en fremsta stjórnmala-
mann Evrópu.
Er helzti fulltrúi Gaullista
gekk út úr fundarsalnum í farar-
broddi fyrir félögum sínum,
fylgdu honum hróp gagnrýnsnda
úr hópi annarra fulltrúa á fund-
inum.
Það var belgísíki sósia'demo-
kratinn, Christian Etienne de la
VaOlee Poussin, sem las upp „Par
ísaryfirlýsinguna". Á fundinum
visuðu fuiltrúarnir einnig hinni
„eimhliða afstöðu“ de Grulles
varðandi þetta vandamél á bug,
eins og hún var látin í ljós á
fundi de Gaulles með. frétta-
mönnum fyrir skömmu.
Engir gaullistar vorj í hópi
þeirra þingmanna, em stóou að
„Parísaryfirlýsingunni“ en þess-
ir þingmenn eru hins vegar úr
þremur stjórnmálaflokkum, sem
telja sig njóta fylgis 80% kjós-
enda í hinum sjö ríkjum Vestur-
Evrópubandalag.-ins.
Sandudd. Heiðursvörður var
við báðar þessar athafnir og
hermannahljómsveitir léku.
Eftir hádegi var frumsýning á
skáldsögu Vaeino Linnas
„Óþekkti hermaðurinn" í leik-
ritsformi í finnsku ríkisóperu-
höllinni. Að þessari sýningu lok-
inni voru sýndar kvikmyndir
um Finnland í hátíðasal finnsku
rikisstjórnarinnar, en stúdentar
héldu minningarathöfn vfð graf-
ir hermanna í Sandudd.
í kvöld hafði svo Kekkonen
forseti boð inni fyrir 2000 gesti
í forsetahöllinni, sem lýst var
upp af fjölmörgum hátíðarljós-
um. í hópi þeirra voru meðal
annars sovézka sendinefndin á
hátíðinni með Podgorni forseta
í broddi fylkingar, en einnig
voru fulltrúar Noregs, Svíþjóð-
ar, íslands og Danmerkur á há-
tíðinni þar á meðal gesta auk
fjölmargra kunnra finnskra borg
ara.
Við komuna til hallarinnar var
hinum prúðbúnu gestum heilsað
með skrautlegri flugeldasýn-
ingu, sem þó sást ekki eins vel
og ella vegna þéttrar snjókomu.
Lin Piao opinberlega
nefndur arftaki Maos
Blódugir bardagar í Fukien
Hongkong og Varsjá, 6. des.
— NTB-AP —
LIN Piao, varnarmálaráðherra,
var í fyrsta skipti nefndur op-
inberlega sem sennilegur arftaki
Mao Tse-tungs i dag. Það var
fréttastofan Nýja Kína sem kall
aði í frétt Lin Piao „bezta eft-
irmann“ Maos.
Fréttaritari pólska blaðsins
Trybuna Ludu í Peking hermdi
í dag, að Piao væri ekki aðeins
kallaður „bezti eftirmaður" Ma-
os heldur einnig „bezti túlkandi
hugsana hans“.
Fréttaritarinn, Zygmund Slom
kowski, sagði, að mikil áróðurs
herferð hefði verið hafin til dýrð
ar Lin eftir að birzt hefðu í
nokkrum blöðum nokkur um-
mæli varnarmálaráðherrans um
mikilvægi hugsana formanns-
ins.
Lin Piao skýrði hugsanir Ma-
os í boðskap til flotaáhuga-
manna, sem efndu til ráðstefnu
um hugsanir formannsins í lok
síðasta mánaðar. Samkvæmt
skrá yfir þá valdamenn sem
sóttu þingið ásamt Mao segir
hann, að röð valdamanna Kina
eftir mikilvægi sé nú þessi:
Mao, Lin, Chou En-lai, for-
sætisráðherra, Che’en Po-ta, yf-
irmaður menningarbyltingar-
deildar miðstjórnarinnar, K’ang
Sheng, aðstoðarmaður Ch’ens og
Li Fu-ch’un aðstoðarforsætisráð-
herra, Chiang Chiing, kona Ma-
os, Chan Chub-ciat, yfirmaður
Framnh. á bls. 24
Washkonsky
við góðo heilsu
Skipt um hjarta í ungbarni
— en það lifði aðeins nokkrar klukkustundir
New York, 6. deseimber NTB
BANDARÍSKIR skurðlæknar
framkvæmdu í dag skurðað-
gerð, þar sem þeir sikiptu um
hjarta i ungbarni, sem var
drengur. Hann lifði siðan i
nokkra klukkutíma, en þá
hætti hið nýja hjarta að slá
Sagði hjartaskurðlæknirinn
dr. Adrian Kantrowitz frá
þessu á fundi með fréttamönn
um og taldi, að mistekizt hefði
að beita þeirri aðferð, sem
notuð var. Læknir þessi er í
hópi þeirra, sem lengst eru
komnir varðandi nýjar að-
ferðir í hjartaskurðlækning-
um.
Sagði hann, að barnið hefði
þjáðzt af hjartaskeimmd,
sem hefði algjörlega lokað
innganginum að vinstra
hjartahólfinu. Þetta mein var
ekki unnt að lækna á neinn
hátt með skurðaðgeirð, es
barninu var haldið á lítfi með
stöðugum blóðgjöfum, á með-
an leit fór fram um öU Banda
ríkin að ungbarni, sem þjá@-
ist af heilaskemimd, sem
myndi hafa dauðann í för
með sér.
3>ess konar barn — með
heilaskemmd — lifir venju-
legia aðeins í tvo eða
þrjá daga. Loks fékkst vitn-
eis'kja frá sjúkrahúsi í Phila-
delphiu, að slíkt barn hefði
fæðzt þar sl. mánudag. For-
eldirarnir voru beðnir leyfis
um, að iáta hjartaaðgerðina
fara fraim, eftiir að barn þeirra
var dáið, og gáfu þeir sam-
þyklki sitt.
Skurðaðgerðin var firam-
kvæmd af hópi skurðlækna
við Maimonides iæknamið-
Framh. á bLs. 31
Höfðaborg, 6. des. NTB
DENISE Darwall, stúlkan
sem hjartað var tekið úr að ,
henni látinni og sem senni-
lega mun verða til þess að
bjarga lífi annars manns, var
jarðsett í dag, eftir að einföld
en áhrifamikil útfararathöfn
hafði farið fram. Við athöfn-
ina voru einnig læknar þeir,
sem framkvæmdu fyrstu
skurðaðgerð í heimi, þar sem
skipt var um hjarta í manni.
Ásamt stúlkunni var einnig
móðir hennar jarðsett, en hún
fórst í sama bílslysi og stúik-
an slasaðist svo hættuilega,
að l'eiiddi hana til bana.
Á meðan þetta gerðist, tók
Luis Washkansky, maðurinn,
sem hjarta stúlkunnar var
grætt í, enn framförum. Hann
gerði að gamni sínu í dag og
kailaði sjálfan sig ..hinn nýja
Frankenstein“. Washkarisky
liggur enn undir súrefnis-
tjaldi, en ástand hans fer jafnt
og þétt batnandi og líkami
hans sýnir þess ekki merki, að
hann rnuni ekki sætta sig við
nýja hjartað. Skurðlæknirinn,
sem stjórnaði aðgerðinni,
Chris Bernhard prófessor, var
í dag svo bjartsýnn varðandi
heilisu Washkanskys, að hann
taldi, að sjúklingurinn gæti
farið úr sjúkrahúsinu eftir
þrjór vikur.
L