Morgunblaðið - 07.12.1967, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DES. IM7
Hljómar gera
garðinn frœgan
TÁNINGAHLJÓMSVEITIN
Hljómar gera líklega garðinn
frægari en margir aðrir. Hljóm-
plata þeirra „Show me you like
me“ er komin á vinsældarlist-
ann í Bandaríkjunum og í fylk-
inu Michigan er þessi plata nr.
6 á listanum. Columbia hljóm-
plötufyrirtækið gaf út þessa
hljómplötu, en á hinni hliðinni
er dægurlag, sem fjórmenning-
arnir syngja einnig á ensku og
heitir „Stay“.
í viðtali við Mbl. sagði Gunn-
ar Þórðarson, lagasmiður
Hljóma, að undirleik í fyrr-
greindri plötu hefðu annazt
bandarískir hljómlistarmenn.
Gunnar sagði, að allir meðlim-
ir Hljóma hefðu samið lagið og
textann við „Show me you like
Framh. á bls. 31
Hitaveitan gelur ylir-
leitt engan alslátt
sagði hitaveitustjóri í viðtali við Mbl. í gœr
VEGNA fréttar í einu dagblað-
anna í gær um það, að hitaveit-
an gæfi 20% afslátt á heitu
vatni, ef skortur yrði á þvi,
sneri Mbl. sér til hitaveitustjóra.
Jóbannesar Zoéga, og gaf hann
eftirfarandi upplýsingar:
Yfirleitt gefur hitaveitan eng-
an afslátt. Ef við gerum það, er
það í sérstökum tilvikum, sem
metin eru hverju sinni og stand'?
ekki í beinu sambandi við al-
mennan vatnsskort ' kuiducn.
Hins vegar höáum við reynt að
bæta upp þann skort sem orðið
hefur á góðri þjónustu, sem
komið hefur fram í vatnsskorti í
gamla bænum, með því að haekka
hitastig vatnsins á veturna um
10 stig.
Frá aðalfundinum
flytur ræðu.
Aðaifundur L.I.U. hófst í gær
AÐALFUNDUR LÍÚ hófst í gær
í Tjarnarbúð. Hófst fundurinn
með því, að Sverrir Júlíusson,
formaður sambandsins, flutti
ræðu.
Hann sagði m.a. í ræðu sinni,
að enn væri óljóst, hvaða ávinn-
ingur útgerðinni sé ætlaður af
gengifebreytingunni. I>ó virtist
Ijóst, að reiknað væri með því,
að bættur hagur hennar yrði
m.a. að byggjast á þvi, að laun
sjómanna hækkuðu ekki hlut-
fallslega umfram laun annarna
miðað við afbamagn.
Sagði Sverrir, að þetta sjónar-
18. oldur mól
verk fyrir 4,8
milljónir
London, 6. desember NTB.
LISTASAFN í London keypti
í dag málverk eftir franska
listmálarann Jean-Honoré
Fragonard fyrir 30.500 pund,
eða um það bil 4.8 milljónir
íslenzkra króna.
Fragonard var uppi á 18.
öld og stærð máiverksins er
20x30 sentímetrar. Kaupand-
inn var Hallborough Gallery.
Á sama uppboði var litið mál-
verk eftir ítalskan málara frá
15. öld selt fyrir 25.500 pund.
Titfinnanlegur skortur á
heitu vatni í gamla bænum
Varanlegar úrbœtur þegar í nœstu viku
TILFINNANLEGS skorts á
heitu vatni hefur orðið vart á
vissum svæðum í gamla bæn-
um. I Miðbæjarskólanum féll
kennsla t.d. að mestu leyti nið-
ur í gær af þeim sökum.
Er nú unnið að því að ráða
þarna bót á, eftir þvi sem Jó-
hannes Zoéga hitaveitustjóri
tjáði Mbl. í gær.
Þar eru þessi atriði helzt:
Ný kyndistöð verður tekin I
notknn í vikuiokin.
Fjórar nýjar borholudælur
verða teknar í notkun í næstu
viku, fsem munu auka vatns-
magnið í Reykjavíkurholunnm
að mun.
Annar ketill varastöðvarinn-
ar við Elliðaárnar hefur verið
bilaður, en viðgerð mun ljúka
nú um miðjan mánuðinn.
Ekki mun koma til þess, að
aftur verði skortur á heita vatn-
inu í vetur.
Hitaveitustjóra fórust orð á
Maður handtekinn vegna
barnsráns í Frakklandi
Sjö ára drengur týndur í þrjá
daga. Faðirinn hafnar sam-
vinnu við lögregluna.
Chartres, Frakklandi,
6. desember. NTB.
LÖGREGLAN í Frakklandi
handtók í dag mann sem þyk-
ist vera einkaleynilögreglu-
maður í sambandi við rán á
veiklulegum sjö ára gömlum
dreng, Emmanuel Malliart að
nafni.
Að sögn lögreglunnar hefur
hinn handtekni, sem heitir
Jean Claude Mansion, hringt
í foreldra Emmanuels í Ver-
sölum skammt frá París.
Kona sem annast dyravörzlu
í pósthúsi í Bailleau-e-Pin
skammt frá Chartres gaf ná-
kvæma lýsingu á manninum.
Að sögn lögreglunnar sagði
Mansion, sem er 33 ára að
aldri, að hann hefði hringt í
föður Emmanuels, en hann
starfar í landvarnarráðuneyt-
inu, til þess að bjóða honum
aðstoð sína. Mansion var yf-
irheyrður í kvöld og upplýs-
ingar hans bornar saman við
framburð föður Emmanuels.
Dyravörzlukonan í pósthús-
inu ræddi lengi í gær í síma
við Jacques Malliart, föður
Emmanuels og segir, að hann
hafi tjáð sig fúsan tíl að
greiða 20.000 franka (um það
bil 180 þús. ísl. krónur) í lausn
argjald fyrir drenginn eins og
krafizt var í nafnlausu bréfi
sem honum var sent. Dyra-
vörzlukonan er eitt mikilvæg-
asta vitni lögreglunnar í mál-
inu .
f dag bárust lögreglunni
hundruð ábendinga hvaðan-
æva að úr landinu.
Lögreglan lokaðj heilu
hverfi í Versölum þegar tvær
nunnur tilkynntu, að þær
hefðu séð Emmanuel aka í
bifreið ásamt dökkhærðum
manni, en leit að bílnum bar
ekki árangur.
Faðir drengsins neitar að
hafa samstarf við lögregluna,
þar sem hann heldur að hún
hafi látið síazt út upplýsingar
um staðinn þar sem hann
hafði ákveðið að hitta bams
ræningjann og greiða honum
lausnargjaldið.
Barnsræninginn kom ekki.
en stór hópur blaðamanna fór
á staðinn. Foreldrar drengsins
telja, að strangasta gætni og
leynd sé nú eina vonin ttil
þess að þau fái barnið aftur
lifandi.
Síðat 1 kvöld var ekkert vit
að hvað orðið hefði um dreng
inn, en hann hvarf um hádegi
á mánudag, þegar hann var á
leið heim úr skóla í mat. Einn
af vinum Emmanuels sagði
lögreglunni, að hann hefði séð
hánn fara eitthvað með ó-
þekktum dreng skömmu áð-
ur en hann hvarf. Sporhund-
ar röktu slóð Emmanuels að
sælgætisbúð, en þar hvarf
slóðin.
Foreldrar Emmanuels ótt-
ast að drengurinn hafi veikzt
vegna þess, að veður hefur ver
ið kalt að undanförnu og þoka
legið yfir, en Emmanuel þjá-
ist af andateppu. Faðir drengs
ins fékk nafnlausa bréfið um
lausnargjaldið síðdegis á
mánudag og tjáði sig strax
fúsan til að greiða það. Þeg-
ar honum tókst ekki að hafa
samband við barnsræningjann
í gærkvöldi, bað hann hann
um að afhenda drenginn
presti eða munk. er gæti kom
ið boðum á milli um þau skil
yrði sem glæpamaðurinn set-
ur fyrir því, að skila drengn-
um aftur til foreldranna.
þessa leið:
— í vetur höfum við sloppið
við vatnsskort að mestu leyti
fram unidir mánaðaimót, hann
hefur hvorki verið áberandi né
tilfinnanlegur fyrr en núna.
Síðustu daga hefur vatnfcskorts
hins vegar gætt á vissum svæð-
um í gamla bænum eins og
venjulega og hefur verið unnið
að því að ráða þar bót á. Og
eru þetta þá helztu atriðin:
— Hitaveitan hefur haft nýja
kyndistöð í smíðum í Árbæ á
þessu ári og verður hún tekiin í
notkun nú í vikulokin.
— Víð eigum von á fjórum
nýjum borholudælum í byrjun
næstu viku og verða þær sett-
ar í holurnar strax og þær
koma, þannig að væntanlega
verður þeim aðgerðum lokið í
næstu viku. Við þetta eykst
vatnsmagnið í Reykjavíkurhol-
unum að mun.
— Þetta er ný gerð af dæl-
um, en hún er byggð á margra
ára tilraunum hitaveitunnar í
samvinnu við bandarískt fyrir-
tæki, sem smíðar dælurnar.
Seinustu dælurnar af þessari
gerð koma síðar í vetur, en þær
Framh. á bls. 31
mið væri eðlilegt með tillilti til
þess að í fyrsta lagi væri ólík-
legt, að aðrar stéttir féllust á
að réttmætt væri að laun sjó-
manna hækkuðiu umfram þá
hækkun, sem þæT sjállfar fengju
með vísitöluhæk'kuniinni 1. des-
ember. í öðru lagi væri óihjá-
kvæmilegt að genigisbreytingin
leiddi til mikil'lar hækikunar á
ýmsusn rekstrarútgjöldum út
gerðárinnar, t. d. hækkuðu verð
skipa, hækkun á olíunn, veiðar-
færum, tryggingariðgjölidium o.
fl., sem óeðlilegt væri að útgerð-
in tæki ein á sig, án hlutdeildar
sjómannanna, en þeitita hefði þó
átt sér stað í alltof ríkurn mæli
undanfarin ár, ekki sízit á síid-
veiðiflotanum.
Ræða Svenris er biirt í heiid
á öðrum stað í blaðinu.
Að lokinni ræðu formanns var
flutt skýrsl'a sambandisistjórnar
fyrÍT sl. ár, en að því búnu voru
kiosnar nefndir, sem störfuðu í
gærkveldi.
Fundinum verður framhaldið í
dag og hefst kl. 14. Mun sjávar-
út veg.sm álará ðherra, Eggert G.
Þorsteinsson, ávarpa fundinn
kl. 3.
Wilson leysti
vinnudeiluna
London, 6. desemiber.
AP-NTB.
EIMREIÐARSTJÓRAR í Bret-
landi ákváffn í dag, aff hætt * viff
að fara sér hægt við vinna sina
og tef ja járnbrautarferffir, þar er
þeir fengu kröfum sínum fram-
gengt í sáttatillögum er Harold
Wilson, forsætisráffherra, lagði
fyrir þá.
Eimreiðastjórarnir hófu þessar
aðgerðir á miðnætti á laugardag
og fólust þær í því, að þeir gerðu
ekkert fram yfir það sem þeir
Framh. á bls. 31
Jökulieílin u hiekkisi
á í Horn aiirði
JÖKULFELLINU hlekktist lítil-
lega á í innsiglingunni til Horna
fjarðar á laugardaginn, og tafff-
ist viff þaff um tvo sólarhringa.
Skipið var að kom til hafn-
ar með fóðurbæti og til að sækja
þangað fisk. Skuggsýnt var þeg
ar skipið kom, og vildi þá svo
óheppilsga til, að það lenti utan
í sandeyri, sem þarna er, og
strandaði. Losnaði skipið af eyr
inni með eigin vélaraifli, en naut
þó aðstoðar jarðýtu. Yar sikipið
fast á eyrinni í tvo daga, en
engar skemmdir munu hafa
komið fram á því.
Ekkert nthugnvert við
hreyiilmötorinn
UNNIÐ var að rannsókh óhapps-
ins, ér flugvélin nauðlenti
skammt frá Norrænahúsinu í
fyrradag. Var allur mótorinn
rannsakaður, eri ekkert kom í
ljós, er gaif néina vísbendingu
um orsöik þess, að hreyfillinn
missti afl. I fyrstu yar jafnvel
talið að tregða í benzín'rennsli
hefði valdið þessu, en nú þyk-
ir það fremur ósennilegt. Rann-
sóknin heldur áfram.