Morgunblaðið - 07.12.1967, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DES. 1967
Sveinn Benediktsson:
FÉLAGSLÍF
AÐAL-
íbúðir
óskast
Ekki má gleyma
aðalatriiinu
EINUM af ritstjórum Morgunbl.,
Eyjólfi Konráði Jónssyni,
hefur tekist að skrifa heilsíðu-
grein í blaðið um flutning á að-
alskrifstofu Síldarútvegsnefndar
fyrir Norður- og Austurland frá
Siglufirði til Rvíkur án þess að
geta aðalatriðis málsins með
einu einasta orði, en það
er hverjir það eru, sem bera
fram óskina um þennan flutning.
í stað þess beinir hann skeytum
sínum að mér persónulega og að
Síldarútvegsnefnd.
Ritstjórinn æsir sig upp í að
segja: „Þessi áform mega ekki
takast. Ef Nefndin yrði flutt suð
ur mundu skrifstofur Verksmiðj-
anna fylgja á eftir, og þá hefðu
þeir menn, sem vilja byggja ís-
land allt, beðið slíkan ósigur, að
ólíklegt er, að vörn yrði úr því
snúið í sókn. Það er hér og ein-
mitt hér, sem sköpum skiptir".
Hvaða ósköp ganga hér á?
Þó hefur ekki annað skeð en
að síldarsaltendur á Norður- og
Austurlandi hafa sjálfir sam-
þykkt með samhljóða atkvæðum
á síðasta aðalfundi Féla.gs síldar
saltenda á Norður- og Austur-
landi svofellda ályktun:
„Aðalfundur FSNA. telur nauð
synlegt að skrifstofu Síldarútvegs
nefndar í Reykjavík verði falin
yfirumsjón með söltun Norður-
og Austurlandssíldar, en skrif-
stofur verði áfram á Siglufirði
og Austurlandi".
Síldarútvegsnefnd hefur ekki
annað til saka unnið í þessu sam
bandi, en að vilja verða við þess
ari ósk síldarsaltendanna.
Síldarútvegsnefnd er skipuð
sjö eftirtöldum mönnum:
Þremur kjörnum af Alþingi
þeim: Jóni L. Þórðarsyni, fram-
kv.stjóra, Jóni Skaftasyni, alþing
ismanni og Erlendi Þorsteinssyni
formanni nefndarinnar. Valtýr
Þorsteinsson útgerðarmaður er
tilnefndur af Landssamabndi ísl.
útvegsmanna, Hannibal Valdi-
marsson er tilnefndur af Alþýðu
HÖRÐUR ÓLAFSSON
hæstaréttarlögmaður
Löggiltur skjalaþýðandi og
dómtúlkur (enska).
Austurstr. 14 - Sími 10332 og
35673.
AUGLÝSINGAR
Sirvil 22*4*BO
sambandi Islands, Ólafur Jóns-
son af Félagi síldarsaltenda Sunn
an- og Vestanlands og Sveinn
Benediktsson af Félagi síldarsalt
enda á Norður- og Austurlandi.
Allir þessir nefndarmenn
greiddu því atkvæði í nefndinni
að verða vió þessari ósk Félags
síldarsaltenda.
Hverjir eru líklegri en síldar-
saltendur sjálfir og sjö fulltrúar
í Síldarútvegsnefnd til þess að
geta dæmt um það, hvað bezt
henti í þessu efni?
Er þessi ritstjóri Morgunblaðs-
ins fær urn það? Hann er
svo ókunnugur málavöxtum, að
hann telur allt í voða um byggð
landsins og „sköpum skipti“, „ef
Nefndin yrði flutt suður".
Hann virðist ekki vita,
eða vilja vita, að nefndin
hefur ekki komið til
Siglufjarðar eða haldið þar fundi
áxum saman, en fjöldi nefndar-
funda verið haldnir í Reykja-
vík, oft með mjög ófullnægjandi
tengslum við aðalskrifstofuna fyr
ir Norður- og Austurland á Siglu
firði, m.a. vegna þess hve illa
gengur oft á tíðum að ná síma-
sambandi við skrifstofuna, þrátt
fyrir sjálfvirkt símasam-band.
Ég get ómögulega fallizt á það
sjónarmið, að þeir sem vilja
verða við óskum síldarsaltenda
í hinum dreifðu kauptúnum og
kaupstöðum á NorðuT- og Aust-
urlandl vilji þar landauðn, en
sá sem vill ekki taká tillit til
óska þeirra, sé bjargvætturinn.
Mér virðist hinn góði ritstjóri
Mor-gunblaðsins h-afi í þessarí rit-
smíð sinni gerzt full keimlíkur
sum-um öðrum í málflutningi sín-
um. þegar hann telur að sjálf-
sagðar ráðstafanir, s-em g-erðar
eru eftir ósk þeirra, siem hlut
eiga að máli, horfi til niðurrifs
og landauðnar, einungis ef
Reykjavík er viðurkennd sem
miðstöð viðskipta og verzlunar
landsins.
Hið einkennilegasta við þetta
er, að þeir sem hæst gala um að
þeir óttist að allt og allir flytjist
til Reykjavíkur og annarsstaðar
horfi til landauðnar, vilja sjálfir
hvergi vera nema þar.
Þett-a virðist mjér að eigi meira
skylt við átkvæðaveiðar en síld
veiðar eða sölu saltsíldar.
Þessum málum verður bezt
borgið með því, að yfirstjórnin
sé samhent, nefnd og aðalskrif-
stofa á sama stað, þeim
stað sem félag síldarsaltenda
sjálfra telur hentugastan, en það
er í Reykjavík, en hinsvegar
verði skrifstofur áfram á Siglu-
firði og Austfjörðum.
Ferðafélag
íslands
heldur kvöldvöku í Sigtúni
fimmtudaginn 7. des. kl. 20,30.
Húsið opnað kl. 20,00.
FUNDAREFNI:
1. Þeir taka til máls og flytja
sjálfvalið efni:
Sigurður Jóhannsson, vega-
málastjóri,
Eysteinn Jónsson, fyrrv.
ráðherra,
dr. Sigurður Þórarinsson,
jarðfr.
Hallgrímur Jónasson,
Jóhannes úr Kötlum.
2. Sýnd litkvikmyndin „Heyr.
ið vella á heiðum hveri“,
tekin af Ósvaldi Knudsen.
3. Myndagetraun, verðlaun
veitt.
4. Dans til kl. 24,00.
Aðgöngumiðar seldir í bóka
verzlunum SigfúsaT Eymunds-
sonar og ísafoldar. Verð kr.
60.0000.
FASTEIGNAVAL
Skólavörðustíg 3 A. 2. hæð
Simar 22911 og 19255.
Til sölu m.a.
2ja herb. vönduð íbúð í há-
hýsi.
2ja herb. íbúðarhæð við Rauð-
arárstíg og eitt herb: í kjall
ara.
3ja herb. kjallaraíbúð í Hlíð-
unum.
3ja herb. risíbúð í Hlíðunum.
4ra herb. íbúðarhæð við Ljós-
h-eima.
4ra herb. íbúðarhæð við Álf-
heima. (Þrjú svefnherb.).
4ra herb. kjallaraibúð við Há-
teigsveg.
5 herb. íbúðarhæð við Hvassa
leiti, ásamt bílskúr.
5 herb. íbúðarhæð í Vestur-
bænum.
5 herb. íbúðarhæð við Eski-
hlíð, 1. og 2. veðréttir lausir.
6 herb. íbúðarhæð við Eski-
hlíð. Endaíbúð.
Jón Arason hdl.
Sölumaður fasteigna
Torfi Ásgeirsson
Kvöldsími 200 37.
* SKUGGSJÁ • SKUGGSJÁ • SKUGGSJÁ • SKUGGSJA • SKUGGSJA •
HANNA
KRISTJÓNSDÓTTIR
SKUGGSJÁ
Guðrún er Reykjavíkurstúlka, sem ekki er vön að
gera sér grillur út af smámunum. Þess vegna fœr
það ekki á hana þá foreldrar hennar skilji, meðan
hún er í fimmta bekk Menntaskólans. Hún heldur
áfram námi eins og ekkert hafi í skorizt, 'hún á
áfram í ástarœvintýrum með jafnöldrum sínum og
tekur lífinu létt. Hún er af ríku fólki og hefur alltaf
getað veitt sér það, sem hugurinn girnist. Hún er hœnd að föður sínum, en ber
takmarkaða virðingu fyrir móður sinni, duttlungafullri og glœsilegri konu, sem
eftir skilnaðinn tekur upp samband við gamlan unnusta sinn. Það er einmitt
þessi tilvonandi stjúpi Guðrúnar, sem raskar öllu lífi hennar, kemur róti á hug
hennar. Guðrún kemst að raun um, að lífið er ekki leikur, leyniþrœðir hjartans
eru flóknari en hún hugði. Hún kemst líka að raun um, að ástin er ekki að
sama skapi langvinn sem hún er djúp og heit.
Fyrri bœkur Hönnu eru „Ást á rauðu Ijósi" og „Segðu engum".
• SKUGGSJÁ • SKUGGSJÁ • SKUGGSJÁ * SKUGGSJA • SKUGGSJA •
Mióiirnii'
vorii
prír
fasteignasalan
Laugavegi 96 - Sími 20780
Til sölu
Við Drápuhlíð, 2ja herb. kjall
araíbúð í góðu standi, um 80
ferm.
Við Brekkulæk, 3ja—4ra herb.
íbúð á 1. hæð. Falleg íbúð
um 110 ferm. Bílskúrsrétt-
ur.
Við Gnoðavog, 3ja—4ra herb.
jarðhæð, um 95 ferm. Mjög
góð íbúð. Teppalögð, góður
garður.
Við Stóragerði 4ra—5 herb.
íbúð á 1. hæð í blokk, suð-
ursvalir, teppi á gólfum. —
Skipti á góðri íbúð í Laug-
arneshverfi koma til greina.
Við Háaleitisbraut, 5 herb.
íbúð á 4. hæð í blokk. Enda-
íbúð. Mjög falleg íbúð með
harðviðarinnréttingum. Fal-
legt útsýni.
Við Eskihlíð, 6 herb. íbúð á 4.
hæð. Glæsileg ibúð.
Ibúðir óskast
Höfum kaupendur að íbúðum
í Laugarneshverfi, Hlíðun-
um og víðar.
AÐAL
fasteignasalan
Laugavegi 96 - Sími 20780
Kvöldsími 38291.
FÁSTEIGNASALAN
GARÐASTRÆTI 17
Símar 24647 - 15221
Til sölu
2ja herb. rúmgóð og vönduð
íbúð á 3. hæð við Rauða-
læk.
3ja herb. kjallaraíbúð við Sig-
tún.
3ja herb. íbúð á 4. hæð við
Sólheima.
4ra herb. íbúðir við Brekku-
stíg og Bræðraborgarstíg.
5 herb. falleg hæð við Háa-
leitisbraut.
Einbýlishús í Austurborginni,
6—7 herb., laust strax, bíl-
skúr, góð lóð.
Við Digranesveg. Nýtt tvíbýl-
ishús æskileg eignaskipti á
3ja til 4ra herb. íbúð.
íbúðir óskast
Höfum kaupendur að:
2ja herb. íbúð í Hlíðunum, má
vera í kj-allara eða risíbúð.
3ja herb. íbúð, helzt í Háa-
leitishverfinu, góð útborg-
un. íbúðin þarf ekki að vera
laus strax.
Raðhús við Háaleitishverfi.
Árni Guðjónsson, hrl.
Þorsteinn Geirsson, hdl.
Helgi Ólafsson, sölustj.
Kvöldsímj 40647.
2ja—3ja herb. íbúð, helzt í
nágrenni Borgarspítalans.
2ja—3ja herb. íbúð, helzt í
háhýsi.
3ja—4ra herb. hæðir með alit
sér. 1 mörgum tilfellúm
mjög miklar útborganir.
Til sölu m.a.
2ja herb. ný og rúmgóð kjall-
araíbúð með sérhitaveitu
við Hjarðarhaga.
2ja herb. stór og góð kjallara-
íbúð við Kirkjuteig.
2ja herb. kjallaraíbúð við
Skipasund. Rúmgóð með sér
hitaveitu. Útb. aðeins kr.
250 þús.
3ja herb. lítil rishæð í gamla
Vesturbænum. Teppalögð og
vel um gengin. Útb. aðeins
kr. 200 þús.
3ja herb. íbúðir
við Lindargötu, Ásvallagötu,
Leifsgötu. Skipasund, Efsta-
sund, Safamýri, Ásrbaut,
Njálsgötu, Laugarnesveg,
Laugaveg, Hringbraut, Lang
hoitsveg, Kaplaskjólsveg og
víðar.
4ra herb. íbúðir
við Skólagerði, Víðihvamm,
Framnesveg, Miðtún, Meist-
aravelli, Álfheima, Klepps-
veg, Stóragerði, Ljósheima,
Sólheima og víðar.
5 herbergja
glæsileg íbúð í smíðum í
Fossvogi með sérþvottahúsi
á hæðinni.
Glæsileg efri hæð í smíðum í
gamla Austurbænum með
stórum svölum 160 ferm. —
Allt sér.
140 ferm. glæsilegar hæðir í
smíðum í Kópavogi.
Lúxuseinbýlishús i Austur-
borginni.
Stórt og glæsilegt raðhús í
Fossvogi, nú fokhelt.
Mosfellssveit
Einbýlishús, 110 ferm. með 4ra
til 5 herb. íbúð. 3.800 ferm.
lóð. Uppl. á skrifstofunni.
Verzlun
í fullum rekstri ásamt verzl
unar- og íbúðarhúsi til sölu
í einu af elztu kauptúnum
norðanlands. Einstakt tæki-
færi fyrir duglegan verzlun-
ar mann.
ALMENNA
FASTEIGNASAUN
UNDARGATA 9 SÍMI 21150
Ávaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Upplýsingar kl.
11—12 f.h. og 8—9 e.h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3A.
Símar 22714 og 15385.
Víðsjá — kvikmyndagerð
Sjónvarpsaugiýsingar
Vér viljum vekja athygli auglýsenda á að nú eru
síðustu forvöð að undirbúa auglýsingakvikmyndir
til sýninga í sjónvarpi fyrir jól.
Fullkomin tæki og sérþjálfaðir kvikmyndagerðar-
menn tryggja góðan árangur.
Víðsjá — kvikmyndagerð
Vogatungu 24 — Sími 41550.
(Símaviðtalstími 10—12 f.h.)