Morgunblaðið - 07.12.1967, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DES. 1987
jMtogtiitfrlfifrifr
■CTtgefandi: Hf. Árvakur, R'eykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðaistræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími. 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ
ótt uppbygging atvinnu-
veganna hafi verið með
eindæmum ör frá árinu 1960
er því ekki að leyna að tvö
sl. ár hafa verið átvinnuveg-
unum erfið. Sjávarútvegur og
fiskiðnaður hafa orðið fyrir
miklum áföllum vegna verð-
falls og aflabrests, iðnaður
hefur á undanförnum árum
talið sig eiga í vök að verj-
ast, vegna frjáls innflutnings,
aukins vöruframboðs og
hækkandi tilkostnaðar innan-
lands, og í einstökum lands-
hlutum hefur landbúnaður
orðið fyrir töluverðum búsífj
um vegna erfiðs árferðis.
Gengislækkunin mun mjög
bæta hag útflutningsfram-
leiðslunnar og iðnaðarins og
einníg stuðla að hagkvæm-
ari útkomu á útfluttum land-
búnaðarvörum. Sú aukna
starfsemi atvinnuveganna,
sem fylgja mun smátt og
smátt í kjölfar hennar, mun
einnig koma verzluninni til
góða í auknum viðskiptum.
Allt bendir því til þess, að nú
íé hagstætt tækifæri fyrir at-
vinnufyrirtækin til þess að
styrkja stöðu sína, auka hag-
kvæmni í rekstri og taka upp
margvíslegar nýjungar í starf
semi sinni.
Öllum er ljóst, að sú mikla
uppbygging, sem orðið hefur
í atvinnuvegunum sl. sjö ár,
er fyrst og fremst verk einka-
framtaksins, dugandi manna
víðs vegar um landið, sem af
djörfung og dugnaði hafa ráð
izt í framkvæmdir, sem kom-
ið hafa öllum landsmönnum
til góða. Einkaframtakið hef-
ur oft átt erfitt uppdráttar
hérlendis og' að því hefur oft
og lengi verið kreppt af póli-
tískum ástæðum. Svo hefur
þó ekki verið í tíð núverandi
ríkisstjórnar, enda hefur
þetta tímabil verið einka-
framtakinu hagstætt.
Vissulega er ekkert við það
að athuga, þótt atvinnufyrir-
tæki hagnist vel í góðum ár-
um. Það er einmitt forsenda
þess, að atvinnulífið í land-
inu haldi áfram að eflast og
framleiðslan að vaxa. En með
sama hætti verða atvinnu-
fyrirtækin einnig að vera
reiðubúin til þess að taka á
sig einhver áföll, án þess að
kalla strax á hjálp ríkisvalds
ins, ef eitthvað bregður út af.
Nú hafa aðstæðúr verið
skapaðar til nýrrar framfara-
sóknar og uppbyggingar í ís-
lenzkum atvinnuvegum, Á
miklu ríður að það tækifæri
verði notað til hins ítrasta.
Aukin framleiðsla, aukin hag-
kvæmni í rekstri og vaxandi
þátttaka almennings í at-
vinnurekstrinum eiga að
verða undirstaða þess nýja
uppbyggingartímabils í at-
vinnuvegunum, sem nú getur
hafizt, ef rétt er að staðið
SAGAN ENDUR-
TEKUR SIG
/Yrlög Héðins Valdimarsson-
^ ar voru ráðin aðeins fá-
um mánuðum eftir að hann
gekk til samstarfs við komm-
únista um stoínun Sósíalista-
flokksins. Pólitískum ferli
hans lauk með því að hann
gekk af fundi miðstjómar
Sósíalistaflokksins við sjötta
mann.
Hannibal Valdimarsson hef
^ir verið lífseigari í samvinn-
unni við kommúnista. — í
þrettán ár hefur hann setið
við sama borð og þeir og bar-
izt hart fyrir pólitísku sjálf-
stæði sínu. Nú hefur hann
einnig gengið út af miðstjórn
arfundi, að þessu sinni Al-
þýðubandalagsins, með einn
tug manna með sér. Verða ör-
’ög hans hin sömu og Héðins?
Um það skal engu spáð á
þessu stigi. Hitt er ljóst að
kommúnistar hafa endanlega
náð öllum völdum í Alþýðu-
bandalaginu. — Hannibal og
hans menn eiga sér þar ekki
viðreisnarvon. Það er sjálfs-
blekking ein, ef þeir telja sig
enn hafa möguleika á að
breyta stöðunni sér í hag.
ATHYGUSVERT
VIÐTAL
Viðtal sem franskt kvöld-
blað birti við Couve de
Murville, utanríkisráðherra
Frakka, um hugsanlega aðild
Breta að Efnahagsbandalag-
inu hlýtur að vekja mikla at-
hygli. Franski utanríkisráð-
herrann lýsir því þar yfir, að
hann sé fylgjandi aðild
Breta að Efnahagsbandalag-
inu, en segir um leið að sú
afstaða sé ekki í ósamræmi
við stefnu de Gaulle, Frakk-
landsforseta.
Annað hvort er hér um að
ræða viðleitni undirmanna de
Gaulle til þess að taka að ein-
hverju leyti ráðin af forsetan
um, eins ólíklegt og það er að
slíkt takist, eða vandlega yfir
vegað skref til þess að rjúfa
þá einangrun, sem Frakkar
hafa kallað yfir sig með af-
stöðu sinni til aðildar Breta
að EBE og til stefnunnar í
hinum alþjóðlegu peninga-
málum.
Hvort sem um er að ræða
hlýtur viðtalið við franska
útanríkisráðherrann að vekja
mikla athygli og auka vonir
ll^al 111 mrn 2 1 AN IÍR HFIMI
\ii»V U 1 n 1» UH V1LIIVM
S0NARS0NUR STALÍNS
SAGDUR BÚA Á ÍTALfU
TIL þessa hefur verið sagt
að Yakov Stalin, sonur sov-
ézka einræðisherrans; hafi
verið skotinn til bana í fanga
búðum nazista í heimsstyrj-
öldinni síðari. Nú er komin
fram á sjónarsviðið ítölsk
kona, frú Paola Liessi Zamh-
on, sem heldur þvi fram að
Giorgio sonur hennar sé son-
ur Yakovs, og þess vegna son-
arsonur Stalins einræðis-
herra.
Frú Paola býr í Novara,
skamm frá Milano, og er nú-
verandi eiginmaður hennar
veitingahúseigandi þar. Áður
en hún gitftist hafði hún
kynnzt rússraeskum her-
manni, sem barðist með ítölsk
um skæruliðuim gegn sveitum
nazista, og átt með honum
soninn. Hermaður þeissi kom
til Ítalíu eftir flótta úr þýzk-
um fangabúðum, og gekk
undir nafninu Giongio höf-
uðsmaður. Frú Paola kveðst
hafa séð skilríki hans og var
hann skráður sem Giorgio
Vorazoscili, en hann sagði
henni sjálífur að það væri
ekki hans rétta nafn, og að
hún yrði furðu lostin ef hún
vissi hvað hann héti í raun
Og veru.
Fréttamenn ræddu nýlega
við frú Paolu, og sagði hún
þeim sög-u sína og afdrif rúss
neska hermannsins „Giorgio“,
eða hvað sem hanm rét réttu
nafni. Giorgio strauík við
þriðja mann úr fangabúðum
Þjóðverja, og voru félagar
hans einnig rússneskir.
Gengu þeir í lið með sveit
skæruliða, sem herjaði á svæð
irau við Feneyjar. í þeirri
sveit var m.a Giovararai, bróð
ir Paolu, og Paola færði
skaeruliðum oft mat upp í
sumir að hann hafi ekki vilj-
að láta Þjóðverjana ná sér lif
andi og tekið haradsprengju
og sprengt hana við brjóet
Yakov Stalin
Frú Paola Liessi Zambon
fjallaskála þar sem þeir höfð
ust við. Segir hún að félagar
Giorgios hafi jafnan kallað
hann Yakov.
Skömmu eftir að þau hitt-
ust í fyrsta sinn tófcust ást-
ir með þeim Paolu og Giorgio,
og eitt sinn sýndi hann henirai
mynd af sys'tur sinni og
sagði: „Er hún ekki falleg?
Ef barnið okkar verður stúlka
verðum við að skíra hana í
hlöfuðið á benni og láta hana
heita Svetlana."
Giiorgio var oftast uppi í
fjöllum að berjast við Þjóð-
verja, og þar kom að Þjóð-
verjum tófcst að umkriragja
sveit skæruliða, sem hann var
með. Ber ekki sögum saman
um endalok Giorgios. Segja
Giorgio Zambon
sitt. Aðrir segja að hann hafi
tekið nokkrar handsprengjur
og gert áhlaup á Þjóðverj ana,
og varpað að þeim sprengjum
þar til þeirn tókst að skjóta
hanra til bana.
Sonur þeirra Paoliu og Gi-
orgios fæddiist í okitóber
1945, og ábvað Paola að gefa
honum nafn föðurins, Giorg-
io. Segir hún að nokkrum
mánuðum seinna hafi komið
til hennar fulltrúar sovézku
ræðismannsskrifstofunnar og
boðizt ti)l að táka barn henn-
ar og greiða henni fé. Þessu
boði neitaði hún, og hefur
ekkert heyrt úr þeirri átt síð
an.
Paola var liöngu hætt að
velta því fyrir sér hver elsk-
hugi hennar hefði verið í
rauninni, en nýlega kom eiran
af fyrri samberjum Giorgios
úr skæruliðasveitunum til
Paolu með ítalsfct vikublað,
sem birti útdrátt úr nýútkom-
inni bók Svetlönu Stalinsdótt
ur, og þar var mynd af Yak-
ov. Telja þau Paola og Gio-
vanni bróðir hennar sig þar
þekkja elskhuga Paoilu. Gi-
orgio yngri er nú 22 áira og
múrari að atvinnu.
Kynna nýja skemmtikrafta
FORRÁÐAMENN veitingahúss-
ins Lidó eru að fara að kynna
nýjung í skemmtanalífi Reykja-
víkur. Þar er um að ræða kynn-
ingu á nýjum skemmtikröftum.
Auglýst var eftir fólki, sem
hefði hæfileika til að syngja,
lesa upp, dansa, flytja gaman-
vísur, eða eftirhermur, og einn-
ig eftir söngflokkum eða hljóm-
sveitum, sem hefðu hug á að
manna um að Bretar og
fleiri þjóðir, sem eftir því
hafa leitað, fái inngöngu í
EBE. "
kynna sig með því að koma fram
í Lidó.
Þegar hafa fjölmargir gefið
sig fram og ef fleiri hafa áhuga,
geta þeir haft samband við Ró-
bert Kristjónsson, veítingamann,
í. síma 35936. Fyrsta kynningar-
kvöldið verður svo sunnudaginn
10. desember og þar koma fram
m.a. Vilhjálm/ur H. Gíslason, sem
flytur eftirhermuþátt, Ásta Sig-
urðardóttir, sem sýnir jazzball-
et, Eiríkur Hansen, sem syngur
lög úr söngleiknum fræga „The
Sound of Music' ‘og Bergþóra
Árnadóttir, sem flytur lög eftir
móður síraa, Aðalbjörgu Jóhanns-
dóttur, og leikur sjálf undír á
gítar. Sextett Ólafs Gauks, að-
stoðar svo í þeim atriðum, sem
undirleiks er þörf. Á þessum
kynn-ingarkvöldum er að sjálf-
sögðu dansað til klukkan eitt, og
leikur Sextett Ólafs Gauks fyrir
dansi. Erlendis er það víða siður,
að kynna nýja skemmtikrafta í
veitingahúsum og hafa margir
frægir menn og konur hafið
glæsilegan feril upp úr því. Slík
tækífæri hafa venð frem'ur fá
hér á íslandi og gæti því þessi
framtakssemi forráðamanna
Lidós orðið mikil uppörvun
ungu listafólki.