Morgunblaðið - 07.12.1967, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DES. 1967
• SKUGG5JÁ • SKUGGSJA • SKUGGSJA •
*'• HÉR E R BÓKIN ’
lárussonMAR Fróðleiksþæftir og sögubrof
Enginn hefur lagt meira að mörkum til rannsókna ís-
lenzkri sögu á síðari hluta 20. aldar en Magnús Mór.
Hér er leyst góta Valþjófsstaðahurðarinnar frœgu, tek-
in til meðferðar persónusaga, réttar- og tónlistarsaga,
grundvöllur íslenzkrar hagsögu treystur til muna og
galdrablað dregið fram í dagsljósið. Kr. 451,50.
$
ATOK VIÐ ALDAHVÖRF
JONAS
ÞORBERGSSON:
Það verður aldrei sagt um Jónas, að hann hafi setið á
friðstóli þau ór, sem hann tók þótt í opinberum mól-
um. Hér segir hann fró svœsnum átökum nýrra blaða
og stjórnmálaflokka og umbyltingu atvinnu-, mennta-
og félagsmála. Kr. 397,75.
EIRÍKUR SKIPHERRA
GUNNAR M.
MAGNÚSS:
Eiríkur Kristófersson fyrrum skipherra segir frá draum-
um sínum og dulskynjunum og hversu þessir eiginleikar
oftlega komu honum að hagnýtu gagni í starfi, — eink-
um á sjónum. Hann segir einnig frá síðustu starfsárum
sínum hjá Landhelgisgœzlunni og „þorskastríðinu", er
þá stóð sem hœst. Kr. 397,75.
hagaun': Mðrus ð Valshamri og meisfari Jón
Márus bóndi lendir í andstöðu við meistara Jón og rek-
ur sagan viðskipti þeirra, sem oft verða hörð og bros-
leg og veitir ýmsum betur. Þjóðtrú og þjóðlífslýsingar
speglast í frásögn Hagalíns af þessum sérstœðu við-
skiptum og mun bókin verða talin í hópi beztu bóka
hans. Kr. 365,50.
clausen: Sögur og sagnir af Snæfellsnesi
Hér eru sögur af mörgum kynlegum kvistum, sagnir um
bátstapa og skipsströnd og sitthvað fleira er gerðist á
Snœfellsnesi fyrr á tíð. Kr. 397,75.
aaSSm, DULRÆN REYNSLA MIN
Frú Elínborg segir frá því, hvernig hún öðlaðist óbilandi
trú á framhaldslífið og hvernig þessi trú hennar hefur
gefið henni styrk til að taka œðrulaust því sem að hönd-
um hefur borið. Hún segir einnig frá ýmsum drauma
sinna og fyrirbœrum margs konar, er fyrir hana hafa
borið á langri lífsleið. Kr. 365,50.
SSSSNexme. MIÐARNIR VORU ÞRIR
Guðrún er Reykjavíkurstúlka og ekki vön að gera sér
grillur út af smámunum. Hún kemst að raun um, að lifið
er ekki leikur, leyniþrœðir hjartans eru flóknari en hún
hugði og ástin ekki að sama skapi langvinn sem hún er
djúp og heit. Fyrri bœkur Hönnu eru metsölubœkurnar
„Ást á rauðu Ijósi" og „Segðu engum". Kr. 298,85.
EINUM VANN ÉG E!ÐA
INGIBJORG
JONSDOTTIR:
Geirþrúður er óframfœrin og feimin og þráir vini og'
félaga, en á erfitt með að eignast þá. Hún þráir ást,
eiginmann og heimili, en þar bregzt lifið henni. — En
barnið bregzt henni ekki, — barnið sem hún eignaðisti
með kvœntum manni. Kr. 298,85.
SIGUR ÞINN ER SIGUR MINN
ÓLAFUR
TRYGGVASON:
Höfundur bókanna „Huglcekningar", „Tveggja heima
sýn" og „Hugsað upphátt" skrifar hér baráttusögu hjón-
arrna Sólveigar og Fjölnis, — sögu um ástir og örlög
ólíkra manngerða. í hinni hörðu baráttu lífsins er kœr-
leikur og fórnarlund þau vopn sem bezt bíta, og ást og
andlegur styrkur munu um síðir fá mykrið til að víkja , >
fyrir Ijósinu. Kr. 344,00.
THERESA CHARLES-.
MAÐUR HANDA MER
Ný spennandi ástarsaga um dularfullt herragarðsfólk,
eftir höfund bókanna vinsœlu, „Falinn eldur", „Höfn
hamingjunnar" og „Húsið á bjarginu". Kr. 298,85.
CARL H PAULSEN;
SKYTTUDALUR
Hrífandi fögur ástarsaga eftir höfund hinna vinsœlu
bóka, „Með eld í œðum", „Sonurinn frá Stóragarði" og
„Skógarvörðurinn". Kr. 298,85.
PER HANSSON
TEFLT Á TVÆR HÆTTUR
„Stórkostleg bók, skelfileg, en jafnframt mjög hrífandi
í allri sinni einföldu viðkvcemni'', segir Arbeiderbladet.
— Þetta er ekki skáldsaga. Þetta er skjalfest og sönn1
frásögn um Norðmanninn, sem gerðist nazistaforingi og
trúnaðarvinur Gestapo, — samkvœmt skipun frá London.
SKUGGSJÁ Kr’ 34400<
• SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA •
- ERLENT YFIRLIT
Framh. af bls. 17
beri einstaklingsframtak. og lík-
legt má telja, að hann beúi sér
fyrir umbótum á skattakerfinu.
Einnig er ekki talið ólfk'egt, að
hann hvetji til þess að sterlings-
pundið verði lagt niður sem al-
þjóðlegur varagjaldeyrir.
Wilson forsætisráðherra hefur
tekið að sér yfirstjórn efnahags-
málanna í Bretlandi, og þess
vegna mun Jenkins veitast örugt
að leggjast gegn vilja hans. Hins
vegar hefur hann sterka aðstöðu
til að hafa áhrif á forsætijráð-
herrann, þvi að margir telja að
Verkamannaflokkurinn hafi nú
aðeins eitt tækifæri ef*ir tii þess
að ná sér á strik. Ef Wilson og
Jenkins yrðu ósam-má'.a í mikil-
vægu máli og Jenkins segði af
sér, mundi Verkamannaflokkur-
inn bíða mikið áfall, sem gæti
riðið honum áð fullu. Þess vegna
verða þeir að standa saman, og
mun þetta auka áhrif Jenkins.
Á sínum tíma náði Wilson völd
unum í Verkamaanaílokknum
með stuðningi vinstra armsins,
Jenkins er hægri jafnaðarrr.aður
og sagði skilið við Gaitskell á
sínu-m tíma vegna pess að for-
ysta Verkamannaflokksin« var
því mótfallin að Bretar sæktu
um aðild að Efnahags-bandalag-
inu. Þótt Jen-kins geti orðið Wil-
son hættulegur keppinautur
þegar fra-m líða stundir var harn
sennilega eini maðurinn, sem Wil
son treysti til að taka við h:nu
vandasama embætti fjármála-
ráðherra. Og ef Jenkins vinnur
afrek í starfi sinu ko-ma þau
einnig forsætisráðherranum til
góða, svo að fyrst um sinn að
minnsta kosti þarf Wilson ekki
að óttast uppreisn í ílokknum.
IMýir árekstrar
á Arabíuskaga?
DEILA um nokkrar ómerkilegar
smáeyjar, sem kadust Kuria
Muria, geta stofnað samskiptum
Breta og stjórnarinnar í hiíiu
nýja Suður-Jemen-lýðveldi í
hættu og leitt til árekscra milli
hins nýja lýðveldis og soldáns-
dæmisins Muskat og Oman,
grannríkisins á suðaustanverð-
um Arabíu-skaga, sem er undir
brezkri vernd. Kuria Muria-eyj-
ar eru brezk nýlenda á Arabíu-
hafi, um 55 km. frá strönd Mus-
kat, sem þær til heyra landfræði-
lega séð, og hafa litla hernaðar-
þýðingu. íbúarnir eru skyldari
íbúum Mus'kat og Oman en ibú-
um Suður-Jemen.
Þótt eyjarnar séu ómerkilegar
lögðu samningamenn Þjóðfreisis-
fyl-kingarinnar í Suður-Jsmen
(NLF) svo mikla áherzlu á það
í viðræðunum við Breta um sjálf
stæði landsins að Kuria Muria-
eyjar yrðu innlimaðar í Suður-
Jemen, að minnstu munaði að
viðræðurnar færu út um þúfur.
Að lokum féllst NLF á að á-
kvörðun yrði síðar tekin í mál-
inu gegn því skilyrði að eklkert
yrði um málið sagt opinberlega.
Forseti Suður-Jemen, As-Shaabi,
sveik þetta laforð, og þá til-
kynntu Bretar að eyjarnar yrðu
látnar af hendi við soidáninn í
Musk-at og Oman. í hefadarskyni
stofnaði As-Shaabi embætti
landsstjóra Kuria Muria.
Þjóðarstolt Suður-Jemenbúa
krefst þess, að Kuria Muria-eyjar
verði innlimaðar, og As-Shaa-bi
og NFL er legið á hálsi fyrir
að glata því sem sé réttmæt eign
þjóðarinnar svo að As-Shaabi
verður að sýna að hann sé harður
í horn að taka o-g beygi sig
ekki fyrir Bretum. Heldur ó-
sennilegt er að soldámnn í Mus
kat og Oman hafi ágirnd á eyj-
unum, en ef NLF grípur til rót-
tækra ráðstafana kynm =s-vo að
fara, að um 350 Bretar, sem
enn búa í Aden, yrðu reknir
úr landi. Ef Bretar tækju siðan
fyrir alla fjárhagslega aðstoð
yrði þjóðin að þola m-klar
þrengingar nema þá að annað
stórveldi kæmi til skjalanna.
Engir málmar finnast í jörðu
í Suður-J«nen og vegir eru fáir.
Ef nýja stjórnin leitaði eftir
st-uðningi Rússa mundi nærvera
þeirra helzt miðast við það að
ná öruggri fótfestu í þessum
hluta Arabaskaga. í bók er As-
Shaabi samdi fyrir nokkrum ár-
um sagði hann að eitt af bar-
áttumálum NLF færi frelsun íbúa
M-uskat og Oman, og Rússar og
Kínverjar hefðu áreiðanlega mik
inn áhuga á siíkri baráttu. Þess
vegna hefur meira verið gert
úr deilunni u-m Kuria-Muria en
efni standa ef til vill til. Hms
vegar bendir ekkert til þess enn
sem komið er, að hið nýja iýð-
veldi verði undir áhrifum komm-
únista, þótt stórnin aðhyllist
vinstri sósíalisma.
Brottflutningur brezka herliðs-
ins frá Aden m-un valda mikiuni
efnahagslegum erfiðleikum, sem
reynt verður að leysa með jnn-
flutningstollum og skattaálögum.
Ás-tandið í efnahagsmálunum er
bágborið, brask er almennt og
gengisfellingin í Bretlandi hefur
komið sér illa. Þess vegna hefur
nýja stjórnin bannað verðhækk-
anir á na-uðsynjavörum. AUt
bendir til þess að nýja stjórnin
hafi örugg tök á ástandinu og
njóti stuðnings yfirgnæfanai
meirihluta íbúanna.
Kortið sýnir Suöur-Jemen og
Kuria Muria-eyjar. Deilur stóðu
einnig um Perim-eyjar við
mynni Rauðahafs, en Bretar hafa
fallizt á að hið nýja lýðveldi
fái þær.
HIKANJOLABLA11987
Lesefni fyrir alla
fjölskylduna
SÖgur —
Frósúgnir —
Viðtöl —
Jólaleikir —
Gátur —
Þrautir
Jólabaksfur —
Jólamatur —,
Jó'laskraut —
HÁTÍÐAMATUR
JÖLAMATUR
Mataruppskriftir
með litmyndum
17 mismunandi uppskriftir með
áætluðu verði. Allt fáanlegt í
fyrsta flokks kjötbúð.
Út í bláan eterinn
Viðtal við Þorstein Ö. Stephensen leik-
listarstjóra, sem stjórnar stærsta leik-
húsi landsins, Leiklistardeild Ríkisút-
varpsins.
Þegar við flúðum
frá Spáni
Rætt við Helga P. Briem, ambassa-
dor, um Spánverja, mennlngu
þeirra, og samskipti okkar við þá.
Vel sagða sögu tek
ég fram yfir flest
Viðtal við Gunnar Gunnars-
son, skáld, um feril hans og
störf ytra og hér heima. —
Jafnelskulegt og Ketilbjörn á
Knerri væri sjálfur kominn.
jólanótt
Yfir barnsfæðingu hvil-
ir jöfnan hátíðlegyr
blær. Loftið er þrungið
spennu og kvíða. Frá-
sagnir um fæðingar á
jólanótt fyrr og nú*