Morgunblaðið - 07.12.1967, Síða 23
MOEGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DES. 1967
23
Guðrún Árnadóttir
Minning
ÞAÐ voru sorglegar fréttir, sem
bárust þann 1. desember síðast-
liðinn, þegar ég frétti lát vin-
koau minnar, Guðrúnar Árna-
dóttur.
Gunnu man ég frá því ég
man fyrst eftir mér og þannig
fannst mér ávallt, að við mætt-
um hafa hana hjá okkur, syngj-
andi og glaða. Þannig sögðu
mamma og pabbi, að hún hefði
verið syngjandi sólargeislinn á
Keykjarfirði.
Mér fannst móðir mín -lýsa
eiginleikum Gunnu vel, er hún
sagði við mig, eftir a’ð við frétt-
um lát hennar: „Hún vann hugi
okkar, áður en þið fæddust, syst-
kinin, og átti þá, þótt þið kæm-
uð, börnin okkar“. Þannig man
ég Gunnu líka. Hún vann hugi
fólks og átti þá alla tíð.
Þó hugur minn sé dapur nú,
er ég skrifa þessar fáu línur,
koma samt í huga minn allar
þær ánægjustundir, sem við átt-
um saman heima á Djúpavík.
Það var alveg óhugsandi að
hafa Gunnu ekki með, ef eitt-
hvað var að ske. Þannig var það
þó Gunna væri komin með börn
og heimili, a'ð komið var saman
hjá henni eða hún fengin til
skrafs og ráðagerða út af heimil-
inu. Þá nutum við oft þess,
hversu blessuð Ólöf mín, sem
Gunna hafði alizt upp hjá, skildi
okkur vel og þarfir okkar fyrir
tilbreytingu, sem oft var ekki
mikil á okkar yngri árum á
Djúpavík. Við Gunna eigum
blessaðri Ólófu svo margt að
þakka og vona ég og óska, að
það megi verða Ólöfu huggun í
þessari miklu sorg að vita, að
vinir Gunnu voru og eru hennar
vinir í sorgum og gleði.
Þrátt fyrir fábreytileika og
ýmsa erfiðleika nobður á Djúpa-
vík, átti Gunna sinar sælustund-
ir þar. Þar giftist hún eftirlif-
andi éiginmanni sínum, Ingibirni
Hallbertssyni, elskulegum manni
og hvers manns hugljúfa. Með
honum hefur hún átt yndislega
daga alla tíð. Ég man aldrei eftir
því, að Ingi æðraðist eða skipti
skapi, þótt erfitt væri um at-
vinnu og margt annað, meðan
verið var að stofna heimili, sem
brátt varð fjölmennt. Það var
líka auður að eignast góða konu
og me’ð henni efnileg börn. Eg
bið þess, Ingi minn, að þér gefist
styrkur í sorgum þínum og
minningum um góða konu og
móður, megi lýsa þér og börnun-
um i þeim skugga, sem nú hefur
yfir borið.
Ég vil með þessum línum bera
hinztú kveðjur og þakklæti fyrir
allar sameiginlegu stundirnar,
frá foreldrum mínum og syst-
kinum. Við trúum því, að seinna
eigum við eftir að byggja aftur
sama staðinn.
Til eftirlifandi eiginmanns,
barna, móður, ömmu, systkina
og annarra ættingja sendum við
vináttúkveðjur og treystum því,
að björt minning hinnar látnu
muni veita ykkur styrk á þess-
ari erffðu stund.
Sissa.
Tókum upp í gær
dömublússur og barnakjóia.
Otrúíega lágt verð
G. S. búðin, Traðarkotssundi 3.
Gerið hagstæð kaup
Seljum næstu daga raðsófagrindur óbólstrað á lágu
verði. Einnig iítið gallaða borðstofustóla (grindur).
NÝVIRKI H.F., Síðumúla 11.
Símar 30909 og 33430.
Lausar
lögregluþjónsstöður
2 lögregluþjónsstöður í lögregluliði Hafnarfjarðar
og Gullbringul og Kjósarsýslu eru lausar til um-
sóknar.
Byrjunarlaun samkv. 18. fl. launasamnings opin-
berra starfsmanna auk 33% álags á nætur- og
helgidagavinnu.
Upplýsingar um starfið gefur undirritaður eða
yfirlögregluþjónn og skulp umsóknir hafa borizt
embættinu fyrir 20. des. n.k.
Bæjarfógetinn í Ilafnarfirði,
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu, 30. nóv. 1967.
Einar Ingimundarson.
ísleikur Þorsteinsson
-Minning
Kveðja frá Bræðrafélagi
Óháða safnaðarins
ÞANN 28. nó'vember andaðist
að EUilheimilinu Grund, ísleikur
Þorsteinsson söðlasmiður, eftir
langa og stranga sjú'kdcimslegu.
ísleikur var Rangæingur að ætt
og uppruna fæddur 18. júní 1878
og aldurinn orðinn æði hár. Ekki
er ég fróð.ur um æskuár Isleiks
því leiðir okkar lágu ekki saman
fyrr en 1950 og tel ég það mikla
gæfu fyrir mig að fá að njóta
vináttu hans öll þau ár sem síðan
eru liðin. Það var þegar Óháði
fríkirkjusöfnuðurinn var stofn
aður, en þar var hann einn aðal
hvatamaður og brennandi í and
anum til 'hinztu stundar. Hann
var kirkjunnar maður af lífi og
sál og beytni hans öll í samraemi
við það. Hann var í stjórn Óháða
safnaðarins alla tíð meðan heilsa
entist og star.faði þar mjög mitkið
svo og í Bræðrafélagi kirkjunar
þar sem hann varafor.roaður í 15
ár oig heiðursfélagi eftir það.
Margar hugljúfar minningar
geymast hjá o'kkur sem sátum
fundi með ísleiki því mörgu
miðlaði hann okkur a.f sinni trú
arreynslu og fór ekki dult með
það að framhaldslíf væri til og
því bæri að búa sig undir það
meðan við lifum hér á jörðinni,
enda get ég varla hugsað mér
grandvarari mann til orðs og
æðis en ísleikur var.
Okkur sem störfuðum með hon
um væri vissulega gott að taka
hann til fyrirmiyndar. það er það
sem svo maiga vantar nú tii dags
það er trúartraustið en það er
undirstaða gæ.fu og gengis. Við
flyijum þér kæri bróðir -allar
okkar beztu óskir, þegar þú nú
leggur upp í förina beim, við
vitum hvað heimkoman verður
góð og unaðsleg nú þegar jólin
nálgast og allt er bjart.
Að endingu færi ég eiginkonu
þinni börn.um svo og öllum ást-
vinum þínum ísleikur minn okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum þeiim guðs biessunar
uon alla framtíð. Hafðu hjartans
þök'k fyrir vináttu þína og
tryggð alla tíð. Við í Bræðrafél-
aginu okkar munum ávalt minn-
ast þin þegar góðs rnanns er get
ið. Guð blessi sál þ:na um alla
eilífð.
S. H.
Atvinna óskasl
Rúmlega fertugan mann vant-
ar einhvers konar vinnu. Hef-
ur verið vélstjóri í rúm 20 ár
(minna vélstjórapróf). Hefur
góðan bíl. Uppl. í síma 17684
milli kl. 6—8 næstu kvöld.
Gjöfirt sem gleéur..
Kodak Instamatic 104 með
innbyggðum flashkubb, sem tekur 4 myndir
án þess að skipta þurfti um peru.
kr. 877.00.
Kodak Super 8
kvikmyndatökuvélar
í miklu úrvali.
Verð frá kr. 4.465.00.
Kodak Instamatic myndavél er jólagjöfin sem vekur gleði og heldur
áfram að gleðja löngu eftir að hún er gefin. Instamatic myndavélar
geta allir farið með — börn sem fullorðnir. Gefið myndavélina sem
er 100% sjálfvirk, með innbyggðum flashlampa og tekur jafnt lit sem
svart/hvítar myndir.
Kodak Instamatic 25 kr. 433.00. Kodak Instamatic 204 kr. 1.150.00
Kodak Instamatic 104 kr. 877.00
Kodak Instamatic 224 kr. 1.500.00
HANS PETERSENf
SiMI 20313 - BANKASTRÆTI 4
I