Morgunblaðið - 07.12.1967, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DES. 1967
Borgarbókasafninu valinn
staður í nýja midbænum ?
-Tillögur um nýtt Borgarbóka-
safn lagðar fram í borgarráði
FYRIR Borgarráðsfund fyrir
skömmu var lögð fram greinar-
gerð og tillögur borgarlögmanns,
fræðslustjóra og borgarbóka-
varðar um nýtt hús fyrir aðal-
safn Borgarbókasafns Reykja-
víkur. Þeir mæla með því, að
húsinu verði valinn staður í hin-
um nýja miðbæ, sem risa á
samkv. skipulagi sunnan Miklu-
brautar og austan Kringlumýr-
arbrautar, enda komi það heim
við þá stefnu, að bókasöfn séu
sem mcst miðsvæðis.
í greinargerðinni er fyrst rætt
um þörfina á því, að nýtt bóka-
safnshús verði byggt. Bent er
á, að hús aðalsafnsins við Þing-
holtsstræti sé svo lítið, að það
rúmi tæplega þá starfsemi, sem
þar er nú rekin, en umbætur
eða aukin stai fsemi geti engin
orðið. Viðbygging kemur heldur
ekki til greina þar sem hún
mundi strax verða ófullnægjandi
með stækkandi borg, segir í
greinargerðinni.
Dularfullu flugslysin
- Urval frásagna um frœgar slysagátur
PRENTSMIÐJA Jóns Helgason-
ar hefur sent frá sér bókkia
„Dularfullu flugslysin" eftir
Ralph Bariker. Eins og nafn bók-
Amelia Earhart
arinnar ber með sér fjallar hún
uam ýmis flugslys sem fræg hafa
orðið og mörg eru mönnuim gáta
enn í dag.
Bókin akiptist í fjórtán kafla
og segir í hinum fyrsta þeirra frá
Ameliu Earhart, sem týndist yfir
Kyrrahafinu 2. júlí 1937 ásamt
aðstoðanmanni sínum, Fred
Noonan og greinir frá sögusögn-
uim þeim sem uippi voru um ára-
bil um að þau Amelia hefðu
ekki farizt þá heldiur látið lífið
löngu síðar í fangabúðuim Jap-
ana á einni Kyrrahafseyja.
Aðrir kaflar bókarinnar heita:
Örlög „Lady Be Good“; Atlants-
hafsprinsesisan; Heimur Alberts
Voss; Leslie Howard og föru-
nauitar hans; Hin langa þögn
„Star Tiger“; Ray Hinehclitffe og
Etsie Mackay; Skeik'kja á landa-
bréfi; Rangar dyr; Glenn Miller;
Corrig'an áttaviti; Hertoginn af
Kent; Vítisvélin; Bill Lancasfer.
„Dularfullu flugslysin" er 228
bls. og myndasíður sextán. Her-
steinn Pálsson þýddi bakina en
Prentsmiðja Jóns Heigasonar hf.
nrentaði og atf út.
—----------------------—-----
- HITAVEITAN
Framh. af bls. 2
fyrstu komu í vor og hafa ekki
biilað síðan. Höfuim við þegar
fengið betri reynslu af þeim en
öðrum gerðum af bordælum.
— Loks má geta þess, að það
sem af er vetrinum, höfum við
ekki haft til afnota nema ann-
an ketil varastöðvarinnar við
Elliðaár að hluta, þar sem hann
hefur einnig orðið að gegna
hlutverki rafmagnsveitunnar.
Hinn ketillinn, en hann bilaði á
ofanverðum síðasta vetri, hef-
ur verið í viðgerð, en þess er
vænzt, að hann verði aftur tek-
in í notkun í miðjum þf»;sum
mánuði.
— Að þessum aðgerðum lokn-
um mun ekki koma til þess, að
skortur verði á heita vatninu,
það sem eftir er veettrar.
Þá segir um stærð væntan-
legs safnhúss, að tvímælalaust
beri að gera samsvarandi kröf-
ur til almenningsbókasafns hér
og í nágrannalöndunum. Hið
nýja bókasafn eigi því að vera
rúmgott og er áherzla lögð á
það, að um gerð þess alla verði
tekið fyllsta tillit til reynslu
annarra þjóða í þessum efnum.
Síðan er raút um það, að hús-
ið verði byggt í áföngum og
lagt til, að 1. áfangi verði full-
gerður i árslok 1972. Gæti safn-
ið þá tekið til starfa í apríl
1973, en þá eru 50 ár liðin síðan
Bæjarbókasafn Reykjavíkur tók
til starfa.
- VOLVO
Frarnh. af bls. 32 '
grindanna. Vegna gengislækkun-
arinnar hækkaði verð á Volvo-
grindunum meira en á Leyland-
grindunum, en að sögn Torben
Friðrikssonar, innkaupastjóra
Reykjavíkurborgar, verður ekki
hætt við kaupin á Volvo-grind-
unum, þar sem verksmiðjurnar
hefðu gripið til þess ráðs, að
lækka verð á framleiðslu sinni
til þeirra landa, sem hafa lækk-
að gengið.
Sagði Torben, að Volvo-bílar
kostuðu það sama í Danmörku
nú og fyrir gengislækkunina og
hið sama gildir í Bretlandi. Bret-
ar hafa hins vegar fellt niður
3% útflutningsbætur á sínum
vörum, þannig að tilboð Ley-
land mun hækka nokkuð við
það. Einnig er afgreiðslufrestur
Leylana-verksmiðjanna of lang-
ur, eða tii apríl.
Torben sagði, að endanlegt
svar myndi berast frá Volvo-
verksmiðjunum í vikulokin.
- HLJÓMAR
Framh. af bls. 2
me“. Bassagítarleikarinn Hljóma
Rúnar Júlíusson, syngur lagið.
Aðspurður sagði Gunnar
Þórðarson, að hin r.ýja 12-laga
hljómplala þeirra félaga hefði
selzt mjög vel. Hann bætti því
við, að í janúar n.k. mundi
verða gefinn út ný tveggja laga
plata, lögin samin atf Gunnari,
hjá SG-þljómplötum.
- SKIPT UM HJARTA
Framh. atf bls. 1
stöðina í Brooklyn. Skýrði dr.
Kantrowitz frá því, að bæði
ungbörnin hefðu verið höfð
í skurðaðgerðarstofunni, á
meðan beðið var etftir því, að
barnið meið heilaskem*ndina
dæi og nokkrum mínútum
eftir að það varð, hófst skurð
áðgerðin. Bftiir að hún 'hafði
verið framkvaemd, virtist allt
ganga vel, að því er drenginn
varðaði, sem uim hjarta hafði
verið framkvæmd, virtdisit allt
nýja hjarta að slá. Sagði dr.
Kantrowitz, að drenguirinn
hefði dáið mjög skyndilega og
óvænt. Ásiæðan hefði ekki
verið sú, að llíkaminn hefði
neitað að samlagast hinum
nýja líkamsvaf. Yrði nú ýtar-
leg læknisrannsókn látin
fara fraim, og síðan gefin út
læknayfirlýsing.
Úr Fatamiðstöðinni.
Ný herrafataverzlun
opnuð í Reykjavík
NÝLEGA var opnuð ný herra-
fataverzlun að Bankastræti 9
hér í borg, sem ber h'eitið Fata-
miðstöðin.
Hefur hún á boðstólum fatnað
bæði innlendan úr enskuan efn-
um og erlendan úr Terylene og
ullarefnuim, fyrir karlmenn og
drengi, að ógleymdium táningun-
um. Auk þess aðrar herravörur.
Við opnun kynnti Fatamið-
stöðiin vetrartízkuna ’67/'88, sem
er sniðin eftir tízku ársins 1890.
Eigandi Fabamiðstöðvarinnar
er Þórarinn Andrésson, en hann
rekur einnig verzlunina Andrés,
Laugavegi 3.
Bílarnir eftir áreksturinn. (Ljós m. Mbl. K.Ben.).
Viðbelnsbroin
aði i árekstri
ALLHARÐUR árekstur varð á
mótum Laugavegar og Klappar-
stígs laust fyrir hádegi i gær. Þar
rákust á vörubíll og Volkswagen
bill og viðbeinsbrotnaði ökumað-
ur Volkswagenbílsins.
ökumaður vörubílsins seglst
hatfa komið að gatnamótunum á
grænu ljósi og því hafi hann
haldið viðstöðulaust áfram. Volks
Forsetoskipti
í Uruguoy
Montievideo, 6. des. — NTB —-
FORSETI Uruguay, Oscar Gest-
ido, hershöfðingi, andaðist i
gær, og nýr forseti, Pachero Ar-
eco, vann embættiseið sinn í
dag. Areco, sem er 47 ára gam-
aU, var kjörinn varaforseti í
fyrra og tók við forsetaembætt-
inu sjálfkrafa.
Gestido hershöfðingi fékk
hjartaátfall á erfiðum stjórpar-
fundi og lézt skömmu síðar á
hersjúkrahúsi. Á fundinum
hatfði 'hann sett ofan í við ung-
an ráðhecra, sem vildi fá að yf-
irgefa fundinn, þar sem hann
var uppgefinn. Gestida vax kjör
inn florseti í fyrra, en þá hafði
þjóðarráð að svissneskri fyrir-
mynd stýrt lándinu í 14 ár.
Talið er að Areco forseti, sem
er prótfessor, þlaðamaður og
hnefaleikari í fnístundum, haldi
áfram strangri stefnu fyrirrenn
ara síns í efnalhagsmáhwn og
reyni að hefta verðbólgu og
draga úr skriiflfinnslku. Verðbólga
og atvinnuleysi hefur aukizt í
landinu og ótrygigt áistand ríkir
á vinnumarkaðnum. f síðasta
mánuði var gengið fel'lt um 50%
og síðan hefur stjórnin reynt að
halda verðbólgu í skefjum og
koma í veg fyrir aukinn fram-
færsiukostnað.
wagenbíllinn skemmdist nokkuð,
en liíið sem ekkert sá á vöru-
bílnum eftir áreksturinn.
-------------:............- ..-
Leiðrétting
i f GREIN minni um Whitney-
myndlistarsafnlð í New Yortk sl.
sunnudag og var „prentvillipúk-
in.n“ umsvifamikilil, rauf sam-
henigi, felldi niður orð og breytti
greinaskilum. Bar pú'ki þesisi
sigurorð af viðleitni höfundar til
að skipa efni þannig, að rétt orð-
færi og hugblær næði til les-
enda. Verður þó að treysta því,
að lesendur hafi víðast fundið
hinn rétta þráð — og því ein-
ungis leiðrétt hið meinlegasta:
1. í upphafsdálki greinarinnar
ruglast línur, Rétt er setningin
þarnnig: „Að frú Whitney, rétt
þrítug að aldri árið 1907, hag-
nýtti endurbyggt gripahús við
Mac Dougal götu í Greenwich
Village, bar aðalsmerki hins sjálf
stæða brautryðjanda".
2. Litlu neðar í sama dlálki á
að lesast: „Þrátit fyrir að bygg-
ingin sé en.ginn skýjakljúfur,
einunigiis sjö hæðir frá
grunni — — —“
3. í þriðja dál'ki, lesist: „Nú-
tímaiegt „naturalistisk.t“-mál-
verk eftdr Jaok Beal-------“
4. f sama dálki, litlu neðar,
lesiist: „Varla gebur önnur viinnu-
brögð færari þessum til að losa
um nýjar hugmyndir----------“z
Að öðru leyti fel éig velvilj -
uðum leservdum að ráða í hið
rétta.
Bragi Asgeirsson.
- WILSON
Framhald af bls. 2
þurftu að gera. Aðgerðir þeirra
höfðu ekki eins alvarlsg áhrif á
farþegaflutninga og óttazt var,
en útflutningsiðnaðuriun varð
fyrir miklu tjóni. Útflutnings-
fyrirtæki hafa reynt að hagnýta
sér þá bættu aðstöðu sem geng-
isfellingin hefur veitt, en seina-
gangur eimreiðarstjóranna hindr
aði það.
Kvikmyndasýning á veg-
um Stúdentafélags HÍ.
STDENTAFÉLAG Háskóla fs-
lands hefur sýningu á kvi'k-
myndum Þorgeirs Þorgeirsson-
ar n.k. laugardag (9. des.) klulkk
an 3 e.ih. Sýningin er opin al-
menningi og verður í Háskóla-
bíói. Þetta er fyrsta sýningin á
mynduim Þorgeirs í Reykjavík
— en kvikmyndir þessar urðu
tilefni allmi'kils umtals á dögun-
um þs'gair þær voru frumsýnd-
ar að Hlégarði i Mosfellssveit
vegna þess að sýnmgaraðstaða
baifði ekki fengizt með viðun-
andi kjörum í Reykjavík eða
Kópavogi.
Sýningin næsta laugardag
gæti orðið eina tækiifæri Reyk-
ví'kinga Um sinn til að sjá þess
ar myndir því ekki er fyrirhug-
að að hafa fleiri sýningair á veg
um Stúdentafélagsins — og enn
situr við saroa varðandi þau
kjör sem íslenzkum kvikimyndn
verkum eru boðin í bíóhúsum
Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Á undan sýningunni á laug-
ardaginn flytur höfundur mynd
anna inngangsorð og greinir frá
hrakningum þessara kvikmynda
og ræðir vandamál kvikmynda-
dreifingarinnar hérlendis —
einnig verður þá skýrt frá
störfum ellefu manna nefndar,
sem undanfarnar vilkur hefur
unnið að því að kanna grund-
völl fyrir nýrri Kvikmynda-
stofnun, sem sinna mundi þörf-
um íslenzkrar kvikmyndafram-
leiðslu og annast sýningar er-
lendra úrvalsverka að staðaídri,
en hugmyndin um þörf slíkra'r
stofnunar lcorn einmitt fyrst
fram við fyrrgreinda frumsýn-
ingu þessara mynda í Hlégarði
á dögunum.
Aðgangur er ölíum heimill
sem fiyrr segir og 'kostar miðinn
kr. 40.00. Forsala aðgöngumiða
er hafin í bókaverziunum Lár-
uisar Blöndal við Skólavörðu-
stíg og í Vesturveri og hjá Sig-
fúsi Eymundsen.
Einnig verða miðar seldir í
Háskólabíói eftir hádegi á laug-
ardag verði eittthvað þá óselt.
(Frá S.F.H.Í.)