Morgunblaðið - 07.02.1968, Blaðsíða 18
li
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1968
Verkstjóri óskast
Óskum að ráða verkstjóra vanan við stjórn og steypu-
vinnu, járnbindingar og mótasmíði.
Ensku eða sænskukunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 52485 og 52339.
ISAL
Tæknífræðingur
eða teiknari
vanur hönnun hrexnlætislagna óskast til starfa
í Straumsvík.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist í pósthólf 244 Hafnarfirði,
fyrir 14. þessa mánaðar.
íslenzka Álfélagið h.f.
ísland
Vörumerkið
„CELLOPHANE”
Hér með tilkynnist, að framleiðslufyrirtækið British
Ceiiophane L:mited, Bath Road, Bridgewater, Somer-
set, Englandi, er skrásettur eigandi á íslandi að vöru-
merkinu:
„CELLOPHANE”
sem er skrásett nr. 175/1947 fyrir arkir úr celluiose
og celluloseumbúðir og innpökkunarpappír og nr.
164/1956, sem er skrásett fyrir cellulose pappír í örkum
og rúllum, skorin stykki, ræmur undnar á kefli, poka
og umslög, allt til umbúða og innpökkunar-noktunar.
Notkun orðsins ,,CELLOPHANE“ um ofanskráðar
vörur, að þær séu framleiðsla British Cellophane
Limited. og notkun þess um sérhverjar aðrar vö.rur
er því brot gegn rétti British Cellophane Limited.
AÐVÖRCN
Komið mun verða í veg fyrir slík réttarbrot með lög-
sókn til verndar hagsmunum viðskiptavina og notenda,
og eiganda ofangreinds vörumerkis.
- ER ÞÖRF
Framhald af bls. 20
Hæfileikamenn á sviði tækni-
menntar eru að sjálfsögðu alls
góðs maklegir og ég get ekki
ímyndað mér, að „þröngsýnustu
kaupmenn" muni af ásettu ráði
leitast við að setja þeim stólinn
fyrir dyrnar með því að hindra,
að þeir geti aflað sér verzlunar-
leyfa í framtíðinni, þrátt fyrir
fyrirhugaða breytingu á lögum
um verzlunaratvinnu. Hins vegar
er ofur eðlilegt, að hinar ýmsu
stéttir virði þá verkaskiptingu,
sem þróast hefur í okkar þjóð-
félagi eins og meðal nágranna-
þjóðanna, sem okkur eru kunn-
astar, en þjóðhagslega séð hefur
sú skipting gefið góða raun. Það
er því ekki óeðlilegt, að kaup-
sýslumenn láti sig það nokkru
varða, að aðrar stéttir í þjóðfél-
aginu troði sér ekki inn í þeirra
sérgrein, sem þeir eru að leitast
við að hafa að aðalatvinnu, nema
þeir einstaklingar, sem hug hafa
á að breyta um atvinnu, sanni
með lögformlegum hætti, að
þeir hafi tileinkað sér þá nauð-
synlegu þekkingu, bóklega og
verklega, sem lög um verzlunar-
atvinnu gera ráð fyrir á hverjum
tíma. Það ætti að vera auðvelt
fyrir flesta tæknimenntaða menn,
jafnt háskólamenntaða sem aðra.
Hið nýja frumvarp um breyt-
ingu á lögum um verzlunarat-
vinnu er fyllilega tímabært, og
ef það verður að lögum, gæti
þróun mála, ef til vill, orðið sú,
að eðlilegur fjöldi sérmenntaðra
kaupsýslumanna fái lifað af
kaupsýslustörfum, eins og verk-
fræðingar ættu að geta lifað
mannsæmandi lífi, vel flestir, af
þeim tekjum, sem þeir njóta fyrir
sin verkfræðistörf, svo sjálfsagt
sem það er, að þeir hafi góða
lífsafkomu.
Jón Ó. Hjörleifsson
viðskiptafræðingur
AUGLYSINGAR
SÍIVII SS*4*80
SPILAKVÖLD
Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
verður fimmtudaginn 8. febrúar kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Góð kvöldverðlaun. — Kaffiveitingar.
N E F N D I N .
VORUGEVMSLA
- LACERCEYMSIA
Til leigu er jarðhæðin í Tryggvagötu 8 — m.a. hentugt til
geymslu á vörum og/eða lager.
Upplýsingar gefa:
Lögmenn
Eyjólfur Konráð Jónsson
Jón Magnússon
Hjörtur Torfason
Sigurður Sigurðsson
Tryggvagötu 8, símar 1-1164 og 2-2801.
HJÁLPRÆÐISHERINN
A
MAJOR ALF AJER YFIRFORINGI DRENGJASKÁTA.
FAGNAÐARSAMKOMA kl. 20.30 miðvikudag 7. febr.
Fjölbreytt efnisskrá. Sextett æskulýðsfél. syngur.
Velkomin.
Eigendur Eord bifreiða
Höfum fyrirliggjandi yfirlímd Ijósker fyrir hægri
handar akstur í eftirtaldar tegundir:
Cortina, Zephyr, Transit, Trader, svo og Taunus,
allar gerðir. — Notið tækifærið og látið útbúa ljósker
yðar tímanlega, fyrir hægri umferð.
Ford-umboðið, Sveinn Egilsson h.f.,
Verkstæðisþjónusta, Iðngarðahverfi.
LITAVER
Barrystaines
linoleum parket gólfflísar.
Stærðir 10 cm x 90 cm.
23 cm x 23 cm.
Gott verð
íslenzkir
örlagaþættir
Bækurnar eftir Tómas Guðmundsson og
Sverri Kristjánsson
KONUR OG KRAFTASKÁLD
UNDIR HAUSTSTJÖRNUM
í VETRARVOLKI
HORFIN TÍÐ
fást nú aftur hjá bóksölum.
Rókaútgáfan FORNI
Stýrimannastíg 3 — Sími 14950.
Reykjavík,______
IJtsala — útsala
Útsalan stcndur sem hæst.
Drengjajakkar 150 kr.
Barnagallar 350 kr.
Anorakar 295 kr.
Gallabuxur 95 kr.
Kvens'iðbuxur 495 kr.
Drengjaföt 95 kr.
Hjá okkur er hægt að gera góð kaup.
U bOiöirv
Laugavegi 31. — Sími 12815.
ÁRSHÁTÍÐIN
VERÐUR HALDIN FÖSTUDAGINN 9. FEBRÚAR í LINDARBÆ OG HEFST KL. 21.
FARFUGLADEILD REYKJAVÍKUR.