Morgunblaðið - 08.02.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1974
Hugþekk
barnabók
Þóra Marta Stefánsdóttir:
LÓA LITLA LANDNEMI
2. útgáfa aukin
Leiftur h.f. 1973
Eg var að leggja frá mér þessa
hugþekku barnabók. Frú Þóra
Marta lýsir þarna iífi og hugar-
heimi tveggja kynslóða á undan
sinni eigin. Þetta er vissulega
önnur veröld en sú, sem við nú
lifum og hrærumst í. En mann-
eskjan, vonir hennar, þrár og
kenndir eru hinar sömu um ár og
aldir — eins og beinagrindin, lif-
færin og likamsstarfsemin er hin
sama.
Það virðast svo margir, sérstak-
lega meðal hinna yngri í dag,
halda, að allt sé að verða nýtt i
þessum heimi — af því að fram-
takið og stefnan og tæknin sé svo
ör nú og áköf — jú ramminn
getur að ýmsu verið nýr, en mað-
urinn er í öllum aðaltriðum al-
veg sá sami — gleðst eins, grætur
eins, deyr eins, — ef hann þá fær
að fæðast. Ég tel, að Orðskviðir
Salomons fari með dypri speki en
margur hyggur, þegar þar er kom-
izt svo að orði, að ekkert sé nýtt
undir sólinni. Þar er fyrst og
fremst í huga höfð hin skammæja
vera hér, sem heitir „maður“. Það
langar margan til að sjá fyrir ein-
hverjar órabreytingar með mann-
inn — jú, i hinu ytra — en hið
innra verður baráttan sama upp
aftur og aftur, milli sannleiks og
lygi, milli ljóss og myrkurs, undir
ljóskeri samvizkunnar.
Barnabo'k Þóru Mörtu lýsir
undri lífsins með kynslóðum, sem
eru farnar — gleði og sorg barna,
sem voru löngu á undan börnun-
um í dag. — Hún lýsir íslenzkum
börnum í sveit hér heima á fyrri
öld, með hrikalega lífsbaráttu for-
eldra sinna i kringum sig — og
svo síðar úti í Kanada, þar sem
vitsmunir þeirra og tilfinningar
nærðust enn á íslenzkum arfi,
þótt kanadisku skógartrén og
vötnin umlykju þau á alla vegu.
Það er heiðrikja yfir bók Þóru
Mörtu, angan jarðar, og ótti og
gleði og þakklæti ungra hjartna.
Það er lífsnautn tærrar bernsku,
sem þarna er lýst þannig, að hver
ný bernska hlýtur að skilja,
þekkja og hrífast með. Þvi get ég
með góðri samvizku mælt með
þessari bók Þóru Mörtu Stefáns-
dóttur, við hvaða foreldra eða
barnavini sem er.
Garðar Svavarsson.
G FflLDft R
E i 121
J
Af"* TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
feKARNABÆR
LÆKJARGOTU 2 LAUGAVEGI 20A LAUGAVEGI 66