Morgunblaðið - 10.02.1974, Page 2
2
I fyrradag kom síðari
hópur bandarísku norr-
ænustúdentanna tii
landsins, alls um 100
manns. Stúdentarnir
hafa hér viðdvöl á leið til
Kaupmannahafnar, þar
sem þeir sitja námskeið í
norrænum fræðum á
vegum Hafnarháskóla.
Hér eru það Háskóli ís-
land$ og Kennaraháskól-
inn, sem taka á móti
Bandaríkjamönnunum,
og í gær var til að mynda
sameiginleg kvöldvaka
að Hótel Loftleiðum.
2 umsækjendur
Fyrir nokkru var embætti lög-
reglustjóra á Keflavikurflugvelli
auglýst laust til umsóknar. Tveir
hafa nú sótt um embættið og eru
þeir Þorgeir Þorsteinsson, fulÞ
trúi lögreglustjóra á Keflavíkur-
flugvelli, og Héðinn Finnbjörns-
son, lögfræðingur hjá Trygginga-
stofnun ríkisins.
— Staðleysur um
þvinganir Rússa
okkur hættulegar
Framhald af hls. 48
á heimsmarkaðsverði, sem hefði
hækkað gífurlega á undanförnum
árum. og teldum því ekki óeðli-
legt, að Rússar keyptu af okkur
fiskafurðir á sem næst heims-
markaðsverði, sem einnig hefði
hækkað gífurlega. Sá hængur
væri þó þar á, að ekki væru eins
skýrar línur um heimsmarkaðs-
verð á fiski og t.d. olíu og timbri,
og okkar verðhækkunarkröfur
miðuðust því fyrst og fremst við
Bandaríkjamarkað, sem er, eins
og allir víta, mjög hár um þessar
mundir. Sagði viðskiptaráðherra,
að Sovétrikin hefðu boðið umtals-
verðar hækkanir á fiskkaupum
sínum frá íslandi, en þær væru þó
ekki nógu háar að okkar dómi.
Hann taldi því fráleitt að setja
verðtregðu Rússa á nokkurn hátt
í samband við það, að þeir vildu
þvinga okkur til að láta varnar-
liðið hverfa af landi brott.
Að síðustu sagði viðskiptaráð-
herra, að töluvert bæri á milli
okkar krafa um verðhækkanir á
fiski og tilboðs Sovétmanna og
sagði, að þar af leiðandi væri
mikil óvissa um fisksölur okkar
til Rússlands á þessu ári. Fyrirsjá-
anlegur væri mikill halli á vöru-
skiptunum við Sovétríkin á þessu
ári. Hann var okkur mjög óhag-
stæður á síðasta ári — greiðslu-
hallinn var 800 milljónir og vöru-
skiptajöfnuðurinn neikvæður um
1100 milljónir sagði viðskiptaráð-
herra, að fyrirsjáanlegt væri, að
hallinn yrði töluvert meiri í ár.
Alvarleg bil-
un hiá Vigra
Heiðursfélagi Hringsins
Á 60 ára afmæli Kvenfélagsins
Hringsins þann 26. janúar sl. var
frú Sigþrúður (iuðjónsdóttir gerð
að heiðursfélaga, en hún var for-
maður félagsins um 10 ára skeið,
eðaá árunum 1961—‘71.
Við þetta tækifæri opnuðu
Hringskonur félagsheimili að As-
vallagötu 1, og hefur húsnæðið
verið endurbætt og þannig úr
garði gert, að starísaðstaða þar er
nú eins og bezt verður á kosið.
Hringskonur hafa allt frá upp-
hafi látið mjög til sfn taka við
margs kónar góðgerðastarfsemi,
og erþess skemmst aðminnast.að
árið 1971 var tekin í notkun geð-
deild Barnaspítalá Hringsins, en
konurnar höfðu búið deildina
öllum nauðsynlegum tækjum.
Áður höfðu þær af dæmafáum
dugnaði komið upp Barnaspítala
Hringsins, sem hefur verið starf-
ræktur frá árinu 1957.
Þann 15. febrúar halda Hrings-
konur hóf fyrir félagskonur og
aðra velunnara félagsins að Hótel
Borg. Þar verður framreiddur
góður matur á vægu verði, ýmis
skemmtiatriði verða og hljóm-
sveit mun leika fyrir dansi.
Ragnheiður Einarsdóttir (t.v.) og
SigþrúðurGuðjónsdóttir (t.h.).
Hlustendum fækkaði um þriðjung
— Kvöldfréttatíma breytt að nýju
tJTVARPSRAH ákvað á síðast-
liðnu hausti að gera tilraun með
breyttan k völdfréttatíma hljóð-
varpsins, færa hann fram um
hálfa klst. Ekki mæltist
þessi tilraun vel fyrir og á fundi
sínum í fyrradag ákvað (Jtvarps-
ráð að taka aftur upp hinn fyrri
fréttatíma. Um miðjan þennan
mánuð verður því aftur byrjað að
lesa kvöldfréttir klukkan 19.00,
en ekki klukkan 18.30 eins og
undanfarna mánuði.
Akvörðun sfna tók Útvarpsráð,
þegar fyrir lágu niðurstöður úr
könnun meðal hlustenda á frétta-
tíma útvarpsins. Hlustendakönn-
un þessa önnuðust þeir dr. Ólafur
Ragnar Grímsson og Erlendur
Lárusson í samvinnu við nemend-
ur í Þjóðfélagsfræði við Háskól-
ann og fleiri. Könnunin var fram-
Innbrot
BROTIZT var inn í læknahúsið
Domus Medica við Egilsgötu
aðfararnótt laugardags. Þykkar
glerrúður í útihurð og forstofu-
hurð voru brotnar, en ekki varð
séð, að nokkru hefði verið stolið i
húsinu.
r
Akvörðunin
tekin í gær
FORRAÐAMENN fiskimjöls-
verksmiðjanna á Suður- og
Vesturlandi héldu með sér annan
fund í gærdag, þar sem taka átti
endanlega ákvörðun um, hvort
verksmiðjurnar hætti loðnumót-
töku vegna yfirvofandi verkfalls
Alþýðusambandsins. Fundinum
var ekki lokið, þegar Morgun-
blaðið fékk síðast fréttir.
kvæmd á grundvelli úrtaks er
náði til 55. hvers manns á aldrin-
um 18 — 75 ára, samkvæmt þjóð-
skránni. Endanlega úrtakið nam
því 2276 manns og voru höfð við-
töl við 70% af þessum hópi, eða
1579
Könnunin leiddi í ljós, að um
þriðjungur fullorðinna hætti að
hiusta á kvöldfréttir hljóðvarps-
ins, eða 32,6%. Þessi skerðing á
hlustun kom mismunandi niður á
stéttum, um 40% verkamanna,
iðnaðarmanna, æðri menntunar-
starfa, forstjóra og nemenda, sem
áður hlustuðu, hættu nú að
hlusta. Húsmæður voru hins veg-
ar sá hópur, sem mest hélt áfram
að hlutsta þrátt fyrir breyting-
una.
Samkvæmt úrtaki hætti um
helmingur Vestfirðinga, sem áður
hlustuðu á kvöldfréttir, að hlusta
við breytinguna, eða 49,2%, en
aðeins um þriðjungur Sunnlend-
inga. Sé litið á aldursflokka og
kyn, kemur í ljós, að samkvæmt
úrtakinu hættu karlar meira að
hlusta en konur, 40,6% á móti
31,8%. Karlar og konur í efsta
aldursflokki (66—75) héldu hins
vegar mest áfram að hlusta.
Ástæðan fyrir því, að fólk hætti
að hlusta á kvöldfréttir hljóð-
varpsins, er, samkvæmt könnun-
inni, hinn langi vinnutími þjóðar-
innar. Þegar kannað var sérstak-
lega hvers vegna fólk hlustaði
ekki á fréttir klukkan 18.30,
reyndist tæpur helmingur þeirra,
sem ekki hlustuðu, ekki geta það
vegna vinnu sinnar. Séu ástæður
raktar eftir þéttbýlisstigum, kem-
ur greinilega í ljós, að langur
vinnutimi er mun ríkari ástæða
utan Reykjavíkursvæðisins.
1 könnuninni var spurt hvenær
fólk vildi helzt hafa fréttatimann
og voru gefnir fimm valkostir.
Timinn klukkan 19.00 skar sig úr
með tæpan helming 47,7%, en
13% vildu hafa fréttirnar klukk-
an 18.30 eða klukkan 19.30. Sú
stefna að færa fréttatíma hljóð-
TOGARINN Vigri liggur nú í
Reykjavfkurhöfn vegna alvar-
legrar bilunar, og getur farið svo,
að hann verði frá veiðum svo
mánuðum skipti.
Að sögn Gísla J. Hermanns-
sonar framkvæmdastjóra ögur-
víkur, sem gerir út Vigra og Ögra,
hefur gírinn, sem tengir aðalvél
við skrúfu og rafal, brotnað. Hann
á einmitt að vera einn öruggasti
og traustasti hluti í vélarbúnaði
skipa, og taldi Gísli vafasamt, að
hann væri til í varahlutum, en
bjóst við að smíða þyrfti þetta
stykki aftur. Er nú verið að vinna
að því að fá hingað til lands sér-
fræðing — annaðhvort frá Pól-
landi, þar sem togarinn er smíð-
aður, eða Þýzkalandi, þar sem
varps og sjónvarps fjær hvor öðr-
um með því að flýta kvöldfréttum
hljóðvarps hefur greinilega ekki
hljómgrunn. Þetta sést m.a. af
því, að svipaður hluti vill fréttir
kl. 19.30 og 18.30.
Könnunin á hlustun á kvöld-
fréttatíma hljóðvarpsins eraðeins
hluti af mikilli hlustendakönnun,
sem gerð var á hlustun á hljóð-
varp og sjónvarp. Niðurstöður
könnunarinnar í heild verða
væntanlega birtar í lok þessa
mánaðar.
Leiðrétting
í GREIN i Mbl á laugardag um
veiðiferð með skuttogaranum
Björgvin frá Dalvík var Stefán
Jónsson, starfsmaður Simrad-
fyrirtækisins, sagður frá Isafirði,
en hann erfrá Flateyri.
AÐALVANDAMALIÐ í sam-
bandi við loðnulöndun í gær var
það, að vegna óveðurs var ekki
hægt að senda skip til löndunar f
Siglufirði, Vopnafirði og á
Raufarhiifn. Norðanáttin með
stórsjó og hörku frosti hamlaöi
því, að loðnuskipin gætu siglt
norður fyrir, en segja má að
loðnuflotinn bíði víðast hvar
löndunar. Að undanfiirnu hafa
loðnuskip eins og t.d. Eldborg,
Súlan, Loftur Baldvinsson og
fleiri verið eins konar flutninga-
skip, því að þau hafa sigltlangar
leiðir með alfa sinn.
Þrær voru vlðast hvar fullar í
höfuðstöðvar vélarframleið-
andans eru. Gísli þorði engu að
spá um, hversu langan tíma við-
gerðin tæki, en kvað ljóst, að skip-
ið yrði lengi frá veiðum.
Vigri er hinn fjórði af nýju
skuttogurunum, þar sem vart
verður álvarlegrar bilunar; hinir
eru Spánartogararnir Bjarni
Benediktsson og Júní og Stál-
víkurtogarinn Stálvík á Siglu-
firði.
Snjóbíll í Blá-
fjöll og kennsla
í Hveradölum
MIKIÐ hefur verið um að vera á
skíðasvæðunum I nágrenni
Reykjavlkur undanfarna daga,
enda skíðafærið verið með ein-
dæmum gott. Ekki hefur verið
fært I skíðalandið í Bláfjöllum
vegna snjóþyngsla, en 1 dag
verður bætt úr þvl. I sambandi
við ferðir frá Umferðarmiðstöð-
inni klukkan 10 og 14 1 dag
verður snjóbfll og tekur hann við
fólkinu, þegar fólksflutningabíl-
arnar komust ekki lengra.
Á morgun hefst í Hveradölum
skíðaskóli á vegum Skíðasam-
bands íslands og verða kennarar
Frakkinn Gilbert, sem hér hefur
að undanförnu þjálfað skíðafólk,
og Hannes Tómasson. Kennt
verður í tveggja tíma önnum og
komast 15 nemendur í hvem hóp,
fyrsti hópurinn byrjar klukkan
10.30, sá næsti kL 14.00, þá kl. 17
og síðasti hópurinn klukkan 20.
Ferðir verða frá Umferðarmið-
stöðinni og geta þeir, sem ætla sér
að taka þátt í skíðanáminu, skráð
sig þar. Þetta námskeið stendur
alla vikuna fram á laugardag og
er ætlað 16 ára og eldri, en nám-
skeið fyrir yngra skíðafólkið verð-
ur líklega seinna í vetur. '
gær á öðrum stöðum en fyrr getur
um, þó losnar alltaf af og til í
Eyjum og á Austfjörðum. Bræðsla
gengur mjög vel á Austfjörðum
Og er þar um mun betri gang að
ræða en verið hefur áður. Þá
gengur sérstklega vel að bræða
hjá Gúanóinu í Eyjum, en þar
losnar 2500 tonna þróarrými í
dag, en hins vegar bíða þar skip
með 2800 tonn. Gúanóið bræðir
1200 lestir á sólarhring og er
afkastamestaverksmiðja landsins.
Loðnuaflinn síðasta sólarhring
var 8300 lestir, en frá miðnætti í
fyrrakvöld til hádegis í gær var
hann 3500 lestir.
Norðanáttin stöðv-
ar loðnnflutningana